Leita í fréttum mbl.is

ESB kann sér ekki hóf

Þessi frétt er ein hliðin á þeirri skoðun að ESB hefði aldrei átt að vera stærra en Þýskaland, Austurríki, Frakkland og Beneluxlöndin - og e.t.v. með Bretlandi og fáeinum öðrum jaðarlöndum án evrunnar. Fréttin endurspeglar þá skoðun stórs hluta Evrópu að ESB er að verða að risa sem hefur vaxið úr hófi þannig að hann stendur ekki undir sér lengur. Löndin á ysta jaðri og evran eru að kafsigla ESB.
mbl.is Vilja ekki frekari stækkun ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Feitir bitar fyrir ESB-uppana

Þetta er enn ein fréttin um ofurlaun þeirra sem ganga ESB-elítunni á hönd:

 

Mbl. segir svo frá: 

Fjór­ir full­trú­ar í fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem setið hafa tíma­bundið í henni frá því síðastliðið vor, fá sam­tals 500 þúsund evr­ur í heild­ar­laun hver fyr­ir fjög­urra mánaða vinnu eða sem nem­ur rúm­um 19 millj­ón­um króna á mánuði.

Full­trú­arn­ir, þau Mart­ine Reicherts frá Lúx­emburg, Jacek Dom­inik frá Póllandi, Fer­d­in­ando Nelli Feroci frá Ítal­íu og Jyrki Katain­en frá Finn­landi, tóku all­ir sæti tíma­bundið í fram­kvæmda­stjórn­inni eft­ir að kosn­ing­arn­ar til Evr­ópuþings­ins í lok maí þar sem fjór­ir full­trú­ar sem áður höfðu setið í henni voru kjörn­ir á þingið.

Frá þessu grein­ir þýska tíma­ritið Der Speig­el. Nú­ver­andi fram­kvæmda­stjórn­in læt­ur af störf­um í haust en ný tek­ur við 1. nóv­em­ber og sit­ur næstu fimm árin. 


mbl.is Með 19 milljónir í laun á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. ágúst 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 123
  • Sl. sólarhring: 129
  • Sl. viku: 2368
  • Frá upphafi: 1112153

Annað

  • Innlit í dag: 105
  • Innlit sl. viku: 2116
  • Gestir í dag: 100
  • IP-tölur í dag: 98

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband