Leita í fréttum mbl.is

Jóhanna drap hvort eđ er umsóknina - Gunnar Bragi er bara ađ stađfesta útförina

Gunnar BragiAlţingi samţykkti á sínum tíma umsóknina miđađ viđ tilteknar forsendur, međal annars um sjávarútvegsmál. Ţegar ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grćnna sá ađ ekki yrđi hćgt ađ uppfylla ţessar forsendur var hinu svokallađa umsóknarferli hćtt og umsóknin var ţar međ dauđ. 

Ţađ var ţví ríkistjórn Jóhönnu Sigurđardóttur sem hóf ţetta ferli, fékk umbođ til ađ ljúka ţví en lenti úti í feni međ máliđ. Umsóknin gekk ekki eftir. 

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra er í raun bara ađ stađfesta ţetta.

Ţađ er ekki hćgt ađ endurvekja dauđa og grafna umsókn nema međ endurnýjuđu umbođi Alţingis og ţá vćntanlega međ breyttum forsendum - t.d. um ađ viđ afhendum Brussel allt forrćđi í sjávarútvegsmálum.

Slíkt verđur aldrei gert. Almenningur á Íslandi mun aldrei leyfa ţađ.


mbl.is Ísland ekki lengur umsóknarríki
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

UMSÓKNIN HEFUR VERIĐ AFTURKÖLLUĐ SEGIR GUNNAR BRAGI

Íslendingar hafa afturkallađ umsóknina um inngöngu í ESB međ sérstöku bréfi Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráđherra til forystu ESB í dag.

Frá ţessu var sagt í fréttum RUV rétt í ţessu.

Sjá nánar á vef utanríkisráđuneytisins.

 

RUV segir svo frá:

Ríkisstjórnin hefur samţykkt ađ hún hafi ekki í hyggju ađ taka upp ađildarviđrćđur viđ Evrópusambandiđ á nýjan leik. Ríkisstjórnin lítur svo á ađ Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknarríkja og hefur fariđ ţess á leit viđ ESB ađ sambandiđ taki hér eftir miđ af ţví.
 
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra afhenti nú rétt klukkan sex ađ íslenskum tíma formanni ESB, sem er utanríkisráđherra Lettlands, bréf ţess efnis. Ţetta kom fram í kvöldfréttum útvarps.
 
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamađur, rćddi viđ Gunnar Braga nú skömmu fyrir klukkan sex. „Viđ teljum ađ ţessu máli sé lokiđ og ef menn vilja sćkja um ađ nýju ţá verđi ađ leita til ţjóđarinnar,“ segir utanríkisráđherra.
 
Gunnar Bragi segir ađ ţeir hafi veriđ í samskiptum viđ ESB undanfarnar vikur. Fundurinn í dag hafi veriđ góđur, báđir ađilar hafi skilning á ţessari stöđu og ţetta sé leiđ sem sé eđlileg. „Ţeir ţekkja ferliđ sem hefur veriđ í gangi á Íslandi - ţetta er í rauninni bara „common sense“ - ef mađur leyfir sér ađ sletta.“
 
Gunnar Bragi segir ađ bréfiđ útskýri stöđuna. „Ţađ sjá ţađ allir ađ máliđ er komiđ á endastöđ.“ Hann segir viđrćđurnar hafa veriđ búnar, ekkert hafi gerst í langan tíma. „Viđ erum bara ađ loka ţessu ferli,“ segir ráđherra.

Evrusvćđiđ er skrímsli segir framúrskarandi hagfrćđingur

piketty_capitalHinn heimskunni franski hagfrćđingur, Thomas Piketty, sem skrifađi eina víđlesnustu hagfrćđibók síđustu áratuga, Auđmagn á 21. öldinni, segir í viđtali viđ ţýska tímaritiđ Spiegel ađ ESB hafi skapađ skrímsli međ ţví ađ koma evrukerfinu á fót. Ţađ gangi ekki ađ 19 lönd međ mismunandi skattakerfi og ólíka ríkisfjármálastefnu reki sameiginlegan gjaldmiđil. Evran sé ein af ástćđunum fyrir erfiđleikum Grikklands.

Sjá hér nánari upplýsingar um Piketty.

Sjá hér vefsíđu Der Spiegel.

 


Stórtíđinda ađ vćnta frá Gunnari Braga?

Ţađ verđur fróđlegt ađ heyra hvađ Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráđherra hefur sagt í dag á fundi í Slóvakíu međ utanríkisráđherrum Evrópulanda.

Mun hann tilkynna um einhliđa afturköllun umsóknar um inngöngu í ESB?

Evrópuvaktin vekur athygli á ţessu. 


Bloggfćrslur 12. mars 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 142
  • Sl. viku: 907
  • Frá upphafi: 1117679

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 809
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband