Föstudagur, 20. mars 2015
Vilhjálmur Birgis æfur yfir ESB-klíkunni í ASÍ
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, lætur ESB-klíkuna í forystu ASÍ heyra það í pistli sínum á Pressunni í dag. Vilhjálmur segir það algjörlega magnað og ótrúlegt að sjá og heyra að áhyggjur miðstjórnar Alþýðusambands Íslands á síðasta miðstjórnarfundi lutu ekki að lökum kjörum og hörðustu verkfallsaðgerðum verkafólks á landsbyggðinni í áratugi. Nei, segir Vilhjálmur, heldur höfðu menn á þeim bænum meiri áhyggjur af bréfi utanríkisráðherra um afturköllun á aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið enda var ályktað á miðstjórnarfundinum um það mál.
ASÍ-forystan er blind á kjör verkafólks í ESB-löndunum sem Jón Baldvin Hannibalsson segir vera svívirðileg. ASÍ-foystunni er meira umhugað um að draga kjör verkafólks á Íslandi niður á sama atvinnuleysisplanið og er í evrulöndunum heldur en að vinna af krafti af því að bæta kjörin hér á landi.
Hvenær ætlar íslenskt verkafólk að vakna til vitundar um villu forystusauðanna sem hreiðrað hafa um sig á skriftsofum ASÍ og kasta af sér því evrutrúboði sem þar ræður ríkjum?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Föstudagur, 20. mars 2015
Blóðug mótmæli gegn evrunni
Fjölmargir slösuðust og um 350 manns voru handteknir vegna mótmæla við nýjar höfuðstöðvar Seðlabanka ESB í Frankfurt í vikunni. Mótmælin brutust út nokkrum klukkustundum áður en bankinn opnaði.
Fólkið kom saman til að mótmæla hlutverki bankans í sparnaraðgerðum í ríkjum Evrópusambandsins.
Mörg þúsund manns höfðu boðað komu sína á mótmælin. Mótmælendur kveiktu í rusli, bílum og dekkjum og beitti lögregla táragasi.
Evran og evrusamstarfið er ekki beint vinsælt í Evrópu.
Óeirðir í Frankfurt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 20. mars 2015
Stjórnarskráin leyfir ekki aðild að ESB segir Jón Steinar
Stjórnmálaumræður á Íslandi taka oft á sig undarlegar myndir svo ekki sé meira sagt. Nú ræða menn ekki annað meira en viðræður við Evrópusambandið um aðild Íslands að því. Enginn virðist telja ástæðu til að nefna, að Ísland getur ekki samið um aðild að þessu sambandi. Stjórnarskrá okkar leyfir það ekki.
Svo segir í grein sem Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi dómari við Hæstarétt, í grein sem birt er í Morgunblaðinu í dag og Pressan endurbirtir.
Áfram segir Jón Steinar:
Skilyrði fyrir aðild Íslands er að stjórnarskránni verði fyrst breytt og þar sett inn heimild til að stjórnvöld megi framselja ríkisvald í hendur alþjóðlegra ríkjasambanda eins og ESB. Eru þeir menn að gegna skyldum sínum sem trúnaðarmenn almennings í landinu sem standa í viðræðum við aðrar þjóðir um málefni sem þeim er óheimilt að semja um samkvæmt stjórnlögum landsins? Hafa þeir gert viðmælanda sínum grein fyrir stöðu málsins að þessu leyti?
Hvernig stendur á því að stjórnvöld á Íslandi tóku upp viðræður við Evrópusambandið um aðild okkar án þess að stjórnarskráin heimilaði slíkt? Hefði ekki verið nær að byrja á að leggja til breytingar á stjórnarskránni í því skyni að heimila slíka aðild áður en til þeirra yrði gengið? Hvað ætla menn svo að gera ef um aðildina semst við sambandið? Fara þá í að breyta stjórnarskránni? Breytingar á henni eru að mun þyngri í vöfum en breytingar á almennum lögum, jafnvel þó að farið yrði eftir sérreglunni sem um þetta var sett á árinu 2013 og gildir fram á árið 2017. Þeir sem vilja koma fram slíkri breytingu á stjórnarskrá hafa auðvitað ekki neina fyrirfram gefna vissu um hvernig því máli myndi reiða af.
Ástæða er til að segja nú við alþingismenn, sérstaklega þá sem sitja í stjórnarandstöðu: Ef þið viljið að Ísland hætti að vera fullvalda ríki og afhendi erlendu ríkjasambandi valdheimildir, sem núna eru í okkar eigin höndum, ættuð þið að gera fyrst tillögur um breytingar á stjórnarskránni í þessa veru. Og hætta síðan að breyta íslenskum rétti til samræmis við hinn erlenda rétt þar til ljóst er orðið að stjórnarskrá okkar leyfi aðildina. Það gerir hún ekki nú.
Föstudagur, 20. mars 2015
Árni Páll og Sigríður í pólitískum fenjaleiðangri
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formannskandídat, eru minnt á þá afstöðu kjarnans í Samfylkingunni með tillögu flokksins að stjórnmálaályktun að taka eigi upp evru. Sjálfur hafði Árni nært efann í þessu máli en kjarni flokksins heldur fast við sitt.
Samfylkingin, flokkur sem ætlaði sér að vera í fylkingarbrjósti fyrir íslenska alþýðu, hefur aldrei skilið gangvirki efnahagsmála í Evrópusambandinu. Flokkurinn hefur reynt að telja landsmönnum hér trú um að mögulegt sé að efnahagsumhverfið hér geti á örskotsstund orðið það sama og í Þýskalandi. Flokksforystan hefur neitað að meðtaka innihald fjölmargra skýrslna sem segja að það henti ekki að vera með sama gjaldmiðil og sömu peningastefnu hér og á meginlandi Evrópu vegna þess að efnahagssveiflur eru ólíkar og það þarf oft vaxtahækkun í Evrópu þegar þörf er á vaxtalækkun hér á landi og öfugt.
Forysta Samfylkingarinnar skilur ekki heldur að evran hefur valdið gífurlegu efnahagsmisvægi í álfunni þar sem Þjóðverjar og örfáar aðrar þjóðir hafa getað haldið verði á útflutningsafurðum sínum niðri og unnið í samkeppni á útflutningsmörkuðum við jaðarþjóðirnar með þeim afleiðingum að mikill afgangur hefur verið á utanríkisviðskiptum Þjóðarverja en halli og skuldasöfnun á Ítalíu, Spáni, Grikklandi og víðar. Þetta hefur leitt til verri afkomu útflutningsfyrirtækja á jaðarsvæðunum, atvinnuleysis og skuldasöfnunar.
Samfylkingin ætlaði að bæta kjör landsmanna. Í staðinn stefnir flokkurinn að því að koma Íslandi í hóp þeirra landa þar sem kjörin eru svívirðileg, svo vitnað sé til Jóns Baldvins Hannibalssonar, guðföður umsóknar um aðild að ESB. Hann sér engar líkur á því að Ísland verði aðili að ESB á næstunni.
Upptaka evru besta leiðin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 20. mars 2015
Jón Baldvin segir svívirðileg kjör í ESB-löndum
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir ungt fólk á Spáni og í fleiri ESB-löndum búa við svívirðileg kjör. Fólk þurfi að taka á sig skuldavanda fjármálakerfisins auk þess sem atvinnuleysi sé óhugnanlegt þar sem annar hver ungur maður á Spáni sé t.d. án atvinnu. Jón sagði opinbert hagkerfi að hruni komið á Spáni.
Þetta kom fram í þættinum Hip hop og pólitík þar sem Jón Baldvin ræddi meðan annars við Þorbjörn Þórðarson fréttamann.
Þorbjörn minnti á að evrusvæðið væri ekki hagkvæmt myntsvæði þar sem hreyfanleiki vinnuafls væri mjög lítill.
Jón Baldvin sagði einnig í þættinum að Ísland væri ekkert á leið inní ESB, viðræður hefðu verið settar á ís af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og ESB væri búið að loka fyrir ný lönd.
Auk þess sagði Jón Baldvi að ESB væri í svo djúpri kreppu að það væri ekki fýsilegt fyrir okkur að ganga þangað inn.
Bloggfærslur 20. mars 2015
Nýjustu færslur
- Norðmenn greina
- Barnaskapur
- Blóm í grjóthrúgu
- Á útlensku
- Annars hafið þið verra af
- Enn ríða hetjur um héruð
- Á hann að hafa skoðun á nokkrum sköpuðum hlut?
- Ætli hinir séu eins staðfastir?
- Meira lýðskrum
- Siggi flytur viðvörun frá Bretlandi
- Kannski er lýðskrumið ástæðan
- Varðmaður talar
- Blekið rennur hraðar, hraðar
- Undirgefni í von um þægilega innivinnu
- Ætli Baldur viti það?
Eldri færslur
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 128
- Sl. sólarhring: 229
- Sl. viku: 1063
- Frá upphafi: 1117662
Annað
- Innlit í dag: 120
- Innlit sl. viku: 937
- Gestir í dag: 116
- IP-tölur í dag: 116
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar