Leita í fréttum mbl.is

Formaður Heimssýnar vill ekki á þetta hótel

erna_bjarnadottirErnu Bjarnadóttur, formanni Heimssýnar, hugnast ekki gisting á þeim stað sem ekki er hægt að yfirgefa. Þetta sagði hún í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar (á 10.mín) sem tekið var í tilefni af því að fyrrum útgönguráðherra Breta, David Jones, mætir til fundar við fólk í Háskóla Íslands í dag til að deila reynslu Breta af Brexit. Erna sagði að reynsla Breta sýndi hversu gífurlega flókið það væri að yfirgefa ESB fyrir ríki sem eru komin þangað inn.

Af því tilefni vísaði Erna til söngtexta í vinsælu lagi bandarísku hljómsveitarinnar The Eagles, en þar segir m.a. „You can check-out any time you like, But you can never leave! " Sagt er að textahöfundur lagsins hafi sótt hugmyndina til orða hagfræðings sem fjallaði um erfiðleika við að ná fjárfestingu sinni frá tilteknum löndum.

Fundurinn með David Jones verður í Háskóla Íslands í dag, Háskólatorgi, stofu HT105 og hefst klukkan 17:30.

David mun flytja erindi og svara fyrirspurnum. Erindi hans ber yfirskriftina „The British Experience of Brexit“. David Jones er nú þingmaður breska Íhaldsflokksins en hann á rætur í stjórnmálum í Wales. Theresa May, forsætisráðherra Breta, valdi hann til að sinna Brexit-málum eftir kosningarnar 2016 og hélt Jones því ráðherraembætti þar til í ár. 

David Jones kemur hingað til lands á landi á vegum samtakanna „The Red Cell“, en þau beittu sér fyrir samþykkt Brexit í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Bretlandi í fyrra og er gestur Heimssýnar og félaganna Herjans og Ísafoldar. 

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Heimssýn, Herjan og Ísafold


Brexit í Háskóla Íslands í dag

DavidJonesnyÍ dag klukkan 17:30 verður fundur með fyrrverandi útgönguráðherra Breta, David Jones, í Háskóla Íslands, Háskólatorgi. David mun flytja erindi og svara fyrirspurnum. Erindi hans ber yfirskriftina „The British Experience of Brexit“. David Jones er nú þingmaður breska Íhaldsflokksins en hann á rætur í stjórnmálum í Wales. Theresa May, forsætisráðherra Breta, valdi hann til að sinna Brexit-málum eftir kosningarnar 2016 og hélt Jones því ráðherraembætti þar til í ár. 

David Jones kemur hingað til lands á landi á vegum samtakanna „The Red Cell“, en þau beittu sér fyrir samþykkt Brexit í þjóðaratkvæðagreiðslunni í Bretlandi í fyrra og er gestur Heimssýnar og félaganna Herjans og Ísafoldar. 

Fundurinn í dag verður á Háskólatorgi, Háskóla Íslands í Reykjavík, stofu HT105 klukkan 17:30.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Heimssýn, Herjan og Ísafold


Bloggfærslur 9. nóvember 2017

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 80
  • Sl. sólarhring: 222
  • Sl. viku: 659
  • Frá upphafi: 1116852

Annað

  • Innlit í dag: 77
  • Innlit sl. viku: 578
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 75

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband