Leita í fréttum mbl.is

Aðildarsinnar og þjóðin

Tvískinnungurinn í aðdraganda umsóknar Íslands að Evrópusambandinu, þar sem þingmenn Vinstri grænna sögðust styðja umsókn en ekki aðild, leiðir til mótsagna í málflutningi aðildarsinna. Þorsteinn Pálsson segir eftirfarandi í viðtali á Eyjunni

Ég ætla engum þingmanni að vita ekki hvað felst í því að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ákvörðun Alþingis felur í sér að Ísland stefnir að aðild.

Samkvæmt skilgreiningu Þorsteins í Eyjuviðtalinu hlýtur spurningin að vera hvort við eigum að stefna á aðild með því að halda viðræðum áfram eða draga umsóknina tilbaka þar sem hvorki er stuðningur á þingi né meðal þjóðarinnar að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu. En nei, málið er ekki svo einfalt í augum aðildarsinna. Sami Þorsteinn Pálsson skrifar dálk í Fréttablaðið, endurbirtur á Vísi, þar sem spurningin um aðild er aukaatriði en viðræðurnar aðalatriðið. 

Eftir stendur eins og áður að þjóðin getur ekki tekið endanlega afstöðu fyrr en fyrir liggur hvernig viðræðum lyktar.

Aðildarsinnar telja sig geta verið fylgjandi aðild á grundvelli almennrar þekkingar á Evrópusambandinu. Aðildarsinnar telja aftur á móti að almenningur geti ekki verið á móti aðild fyrr en samningur liggur fyrir.

Aðildarsinnar vilja hafa vit fyrir þjóðinni - þess vegna verða þeir alltaf í minnihluta.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 116
  • Sl. viku: 682
  • Frá upphafi: 1116894

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 601
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband