Leita í fréttum mbl.is

Er ESB að gefast upp á því að bjarga evruríkjunum?

Þessi yfirlýsing seðlabankastjóra Þýskalands gæti verið til marks um að ESB og evruríkin séu að gera sér grein fyrir því að engir björgunarsjóðir muni geta tryggt að ríkissjóðir allra evrulanda haldist á floti.

Þýskaland er öflugast ESB-ríkjanna og þýski seðlabankinn fyrirmynd Seðlabanka Evrópu. Þegar bankastjóri hans talar ættu menn að hlusta og velta því fyrir sér hvaða sjónarmið þessi valdamikli maður endurspeglar.

Bankastjórinn er greinilega á því að björgunaraðgerðir ESB og evruríkjanna séu ekki að skila tilætluðum árangri.

 

Fréttin í mbl.is er svohljóðandi:

Seðlabankastjóri þýska Seðlabankans, Jens Weidmann, sagði síðastliðinn föstudag að sá möguleiki yrði að vera fyrir hendi á evrusvæðinu að ríki þess gætu lent í greiðsluþroti en til þessa hefur Evrópusambandið lagt megináherslu á að hrindra að það gerðist.

„Til lengri tíma litið ættum við að sjá til þess að ríkjum standi til boða það lokaúrræði að fara í greiðsluþrot,“ sagði Weidmann samkvæmt frétt AFP. Það væri lykilatriði til þess að koma á aga á fjármálamörkuðum.


mbl.is Evruríki geti farið í greiðsluþrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi yfirlýsing seðlabankastjóra Þýskalands gæti verið til marks um að Seðlabankastjóri þýska Seðlabankans hafi skoðanir. Enda ekki þekktur fyrir annað. En hann talar ekki fyrir ESB eða neitt ESB ríki og hann nefnir þarna ekki einu orði björgunaraðgerðir ESB og evruríkjanna.

Það er undarleg þessi árátta sumra að telja breska fréttaritara, skoska þingmenn og hina ýmsu bankastjóra, fjármálaspekúlanta og ESB andstæðinga málpípur ESB en hundsa algerlega það sem kemur frá ESB. Það hljóta að vera merki um veikan málstað og rökþrot að geta ekki haldið sig við staðreyndir en þurfa ætíð að nota mjög frjálslegar túlkanir og hreinar rangfærslur.

SonK (IP-tala skráð) 26.5.2013 kl. 17:45

2 Smámynd: Elle_

Ég sá engar rangfærslur í pistlinum og skil ekki reiðina.  Taka ekki andstæðingar miklu meira mark á Brusselmönnum þegar þeir halda fram að um aðlögun sé að ræða, en ekki um neina eiginlega 'samninga'?  Hafa ekki andstæðingar bent ESB-sinnum á það árum saman?  Meðan þeir síðarnefndu blekkja, neita og ljúga??  Þeir vita sko betur en allir andstæðingar landsins, 60-70% þjóðarinnar, og betur en Brusselmenn sjálfir.  Þannig að þessi gagnrýni kom úr hörðustu átt og var ekkert nema frjálsleg túlkun og hrein rangfærsla, svo maður noti þín orð. 

Ætla að taka fram að ég er ekki í Heimsýn og skrifaði ekki pistilinn.

Elle_, 26.5.2013 kl. 19:01

3 Smámynd: Elle_

Kannski var það rökþrotið eða veikur málstaður sem olli þessari reiði yfir sakleysislegu orðalagi og skoðunum annars manns, svo maður vísi nú aftur í þín orð.

Elle_, 26.5.2013 kl. 19:09

4 identicon

þýskaland er búið að fá nóg af aumingjaskap og agaleysi annara E U þjóða og skyldi engan undra! þjóðverjar eru fyrirmyndar þjóð í alla staði og þeir sætta sig ekki við svona þvælu.

Við ættum að minnast þess að þetta land var sprengt aftur á steinöld í seinna stríði. þjóðverjar mistu svo 6 miljónir manna í þessu stríði. þessu stríði lauk eins og allir vita 1945. Enn 1955 eru þeir orðinr efnahagsstórveldi!

Hvernig má þetta nú vera? Jú þeir fengu Marsalhálp, enn það fengu nú næstum allir. Málið er að þetta er öguð og dugleg þjóð með skýr markmið og stefnu. þetta er það sem okkur skortir.. Að vera jaxlar eins og þjóðverjar!

óli (IP-tala skráð) 27.5.2013 kl. 10:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 205
  • Sl. sólarhring: 230
  • Sl. viku: 2317
  • Frá upphafi: 1112359

Annað

  • Innlit í dag: 176
  • Innlit sl. viku: 2084
  • Gestir í dag: 172
  • IP-tölur í dag: 171

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband