Leita í fréttum mbl.is

Elliði segir Evrópusinna færa áhersluna til hægri

Óumdeildur sigurvegari síðustu sveitarstjórnakosninga, Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir stofnun nýs hægriflokks um inngöngu í ESB myndi í raun færa áherslu í stjórnmálum til hægri á Íslandi. Slíkur flokkur myndi fyrst og fremst sækja fylgi til Samfylkingar og Bjartrar framtíðar.
 
Þetta kemur fram í frétt á mbl.is í dag: 
 
 

Fyr­ir­huguð stofn­un nýs hægri­flokks hlynnt­um inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið væri til hags­bóta fyr­ir hægri­menn á Íslandi. Þetta seg­ist Elliði Vign­is­son, odd­viti sjálf­stæðismanna í Vest­manna­eyj­um, vera sann­færður um á Face­book-síðu sinni í dag. Slíkt myndi skapa ró inn­an Sjálf­stæðis­flokks­ins ogum leið færa hina al­mennu áherslu til hægri.

Elliði bend­ir á að stefna Sjálf­stæðis­flokks­ins sé skýr þegar kem­ur að Evr­ópu­sam­band­inu. Flokk­ur­inn sé and­víg­ur inn­göngu í sam­bandið. Stefn­an sé mótuð með lýðræðis­leg­um hætti inn­an hans. Hins veg­ar felli ákveðinn hóp­ur sig illa við þá niður­stöðu og gripið til þess ráðs að kalla þá sjálf­stæðis­menn sem eru þeim ekki sam­mála ýms­um ónefn­um. Við þær aðstæður fari bet­ur á því að myndaður sé hægris­innaður flokk­ur um þetta mál.

„Stuðning­ur minn við Sjálf­stæðis­flokk­inn er vegna þeirr­ar hug­mynda­fræði sem hann stend­ur fyr­ir. Ég tel lík­legra að þessi hug­mynda­fræði nái fram að ganga með því að það fólk sem ekki sætt­ir sig við hug­mynda­fræðina leiti hóf­anna á nýj­um stað. Ef þessu góða fólki ber gæfa til að gera það án þess að brenna brýr til okk­ar sem eig­um svo margt sam­eig­in­legt með þeim þá eyk­ur það lík­urn­ar á því að hinar sam­eig­in­legu hug­sjón­ir nái fram að ganga,“ seg­ir hann.

Elliði seg­ist enn­frem­ur telja lík­legt að slík­ur hægris­innaður flokk­ur með áherslu á Evr­ópu­sam­bandið ætti einkum eft­ir að höggva í raðir annarra flokka með sömu stefnu líkt og Bjartr­ar framtíðar og Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og færa þar með áhersl­una í stjórn­mál­un­um til hægri. 

mbl.is Færir áhersluna til hægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 259
  • Sl. viku: 946
  • Frá upphafi: 1117545

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 828
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband