Leita í fréttum mbl.is

Umdeildur fræðagrunnur og stofnanastrúktúr á bak við evruna

Seðlabanki Evrópu er skapaður að fyrirmynd þýska seðlabankans, Bundesbank. Þar ræður ríkjum ótti eða allt að því hatur á verðbólgu, jafnframt trúnni á að algjörlega sjálfstæður seðlabanki sé best til þess fallinn að vinna gegn verðbólgu. 

Hinn fræðilegi grunnur sem evran byggir á gengur m.a. út á að fínstilla peningamagn í hagkerfinu með það fyrir augum að verðbólga haldist innan ákveðinna marka. Þessu fylgir jafnframt sú trú að það sé nánast ekkert annað en aukið peningamagn sem getur valdið verðbólgu. Aðrir áhrifaþættir, svo sem pólitískar ákvarðanir eða samningar á launamarkaði eða öðrum mörkuðum, eru nánast aukaatriði. Samt voru það samningar á launamörkuðum í Þýskalandi sem eiga stærstu sökina á því hvernig komið er fyrir evruríkjunum síðustu árin. 

 

 raunlaun

Þjóðverjar framleiða þriðjung þess sem framleitt er á evrusvæðinu. Vegna hefðbundins ótta við mikla verðbólgu, sem Þjóðverjar töldu mikla hættu á eftir upptöku evrunnar, tókst þeim að halda verulega aftur af launahækkunum, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Raunlan stóðu í stað eða lækkuðu í Þýskalandi frá því um 2000 til 2012 (svarta línan), á meðan raunlaun hækkuðu talsvert í viðskiptalöndunum.

Fyrir vikið urðu framleiðsluvörur Þjóðverja ódýrari en annarra framleiðenda á evrusvæðinu, þeir sigruðu í samkeppninni á sölumörkuðum, söfnuðu afgangi á viðskiptum við önnur lönd og söfnuðu eignum á meðan hið gagnstæða gilti fyrir önnur lönd sem söfnuðu skuldum.

Afleiðingin varð hið gígantíska atvinnuleysi sem ríkt hefur á evrusvæðinu að undanförnu. Hin augljósa leið til að skapa jafnvægi var að leyfa verðlagi að hækka meira í Þýskalandi en að meðaltali á evrusvæðinu. Slíkt er þó eitur í beinum Þjóðverja og kom aldrei til greina. Þá var eina leiðin að reyna að draga úr raunkostnaði á öðrum hlutum evrusvæðisins. Það var gert m.a. með beinum launalækkunum og stórfelldum samdrætti í opinberum rekstri. Það ásamt skuldabaslinu í jaðarríkjunum, lítilli einkaneyslu og minni eftirspurn jók á atvinnuleysi, einkum kvenna og ungs fólks.

Allt var þetta gert, m.a. til að þjóna lund Þjóðverja, þeim hagfræðikenningum sem evran byggir á og stjórnendum og fylgjendum Seðlabanka Evrópu, en  bankinn er nú ófær um að koma hjólum efnahagslífsins almennilega í gang aftur hversu mikið sem reynt er að dæla út fjármagni. 

Hér að neðan er mynd sem sýnir hvernig Þjóðverjar hafa skákað öðrum evruþjóðum í samkeppni um útflutningsvörur. Myndin sýnir hvernig Þjóðverjar hafa stöðugt verið með viðskiptaafgang frá árinu 2001 á meðan samanburðarþjóðir á evrusvæðinu hafa verið með stöðugan viðskiptahalla:

 

vidskipti 

 

 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við þessum pistli er lítið annað að segja en ... endalaust þvaður sem er byggt á hatri á þjóðverjum.

Fyrir hvað hatar þú þjóðverja? Því þeir drápu gyðinga? Eins ljótt og það er, þá er afskapleg þversögn að þú skulir trúa því, því að þjóðverjar eru af sama bergi brotnir og þú, en ekki gyðingar.  Ef þjóðverjar hafa getað gert þetta, af fávitahætti þá máttu vita að fávitahátturinn er að öllum líkindum erfðagrein og þú átt hann til líka.

Sú staðreynd að þjóðverjar eru hræddir við verðbólgu á sér grundvöll í fyrri heimstyrjöldinni.  Þar sem miljónir þjóðverja sultu til dauða, vegna þess að þeir áttu ekki nóga peninga fyrir brauði.

Þessi hræðsla er afskaplega eðlileg og er örsök þess að þeir björguðu sér út úr erfiðleikunum við hrunið 2008.

En ÞÚ ert ástæða hrunsins, deli sem gengur um og sleikir afturendan á einhverju kana fífli, sem ekki getur lesið og fer í strið um allan heim án þess að vita við hvern, eða af hverju.  Því hann dreymir um að verða annar Rosevelt.  Á þessu fífli urðu Íslendingar ríkir, en þetta fífl tók bíljóna lán um allan heim, aðallega Evrópu, sem hann síðan neitaði að greiða.  Ásamt Íslendingum, delum eins og þér.

Þú, og þetta vangefna gerpi í bandaríkjunum, eruð ástæða hrunsins og atvinnuleysis Evrópu.

Og í stað þess, að standa ábyrgð á gerðum þínum ... þá gerðuð þið eins og nasistarnir, kennduð bönkunum um (Gyðingum) og eruð enn að reyna að koma þeim fyrir kattarnef, fyrir að taka ölið af barnum.

Á meðan, þá eru Íslendingar duglegir í því að biðja Rússa um hjálp, og Kínverja.  Bandaríkjamenn líka ... til þess að fá peninga, og gefa þeim vopn og þekkingu í staðinn.

Og þú heldur að vandamál evrópu sé fjárhagslegt ... þvílík della.

Vandamál evrópu er Merkel, þessi stasi kerling er ekkert annað en kommúnista tík og er skömm að hún skuli vera við völd.  Það er það sama og verðlauna austur-þjóðverjum skíthæla háttinn í kalda stríðinu.  Þessi stasi kelling, er alinn upp og heilaþveginn af KGB og STASI.  Og fyrir vikið, er vandamálið í Evrópu án lausnar, vegna þess að hún er eitt aðal vandamálið.

Hinn hluti vandamálsins, eru Frakkar.  Sem eftir að George "Klikkaði" Bush hótaði þeim, þora ekki að láta á sér kræla á Pólitíska yfirborði Evrópu.  Fyrir vikið, leika Ítalir og Stasi lausum hala á borðunum.

Eina skynsama röddin í röðum Evrópu,frá því 2001.  Hefur verið sú breska.  Bretar hafa mótmælt, og eina rödd skynseminar sem heirist í öllum löndum Evrópu í dag ... er bresk.  Fyrir rúmum áratug, var hún frönsk.

Vandamál Evrópu, meðal annars Íslands ... er pólitísk, pólitísk og aftur pólitísk.  Því við völd hér, eru delar, sem ættu heima í díflyssum en ekki í pólitík.  Því þeir eru glæpamenn, sem styðja að því að setja alla Evrópu aftur í hendur Feutalism.

Og ef ekki tekst, að stöðva þessa þróun verður afleiðingin heimstyrjöld.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 19.7.2014 kl. 07:33

2 Smámynd:   Heimssýn

Bjarne gerir sér far um að vera með leiðindarathugasemdir ef marka má bloggsíðu hans sjálfs. Í stað þess að ræða málefnin á yfirvegaðan hátt er hann með alls kyns sleggjudóma um málefni og uppnefnir hina og þessa sem honum líkar greinilega ekki við. Svona umræða skilar náttúrulega litlu.

Heimssýn, 19.7.2014 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 636
  • Frá upphafi: 1116829

Annað

  • Innlit í dag: 55
  • Innlit sl. viku: 556
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband