Leita í fréttum mbl.is

Lögum þvingað á Breta

Eins og þessi frétt ber með sér hefur fjölda laga verið þröngvað upp á Breta þótt þingmenn þeirra séu þeim andsnúnir. Alls hafa 485 frumvörp af 576 sem meirihluti breskra þingmanna var á móti orðið að lögum. Bresku þingmennirnir hafa þannig orðið undi rí 86% þeirra tilfella þegar þeir hafa lagst gegn setningu laga.

Bretar búa því við minna lýðræði vegna aðildar að ESB. 

Sjá nánar í meðfylgjandi frétt Morgunblaðsins. 


mbl.is Bretar í flestum tilfellum tapað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Stórveldið Bretland og kjörnir almanna fulltrúar þaðan hafa nákvæmlega ekkert að segja í embættisskarann í Brussel.

Hann kemur alltaf sínu í gegn engu að síður.

Örfáir og meðvirkir fulltrúar Íslands hefðu akkúrat ekkert að segja og alls enginn áhrif eða völd í Valdapparati ESB elítunnar í Brussel!

Þessi sláandi dæmi um algert áhrifaleysi Stóra Bretlands gegn Brussel bossum sína það algerlega.

Gunnlaugur I., 2.9.2014 kl. 22:57

2 identicon

Það er svo sjúklegur brandari að samfylkingin haldi það að við myndum hafa einhver völd þarna þótt svo að bretar hafi þau ekki. Ef að bretar ráða engu af hverju ætti litla Ísland þá að geta það?

gaur (IP-tala skráð) 2.9.2014 kl. 23:08

3 identicon

100% af dönskum þingmönnum hafa orðið undir þegar þeir hafa lagzt gegn nýjum tillögum á Micky Mouse þinginu í Strasbourg. Danskir þingmenn hafa margfalt fleiri atkvæði en íslenzkir ESB-þingmenn hefðu eftir aðild. Einnig hafa danskir ráðherrar orðið undir í 100% tilfella í ráðherraráðinu og kvartað sáran undan því hvernig valtað sé yfir þá í málum sem skipta þá miklu.

Og íslenzkir ESB-sinnar halda áfram að þvaðra endalaust um að "hafa áhrif" og "að sitja við borðið". Ef maður vissi ekki að þeir eru að gæta annarlegra hagsmuna, myndi maður halda að þeir væru hálfvitar.

Pétur D. (IP-tala skráð) 3.9.2014 kl. 00:40

4 Smámynd: Snorri Hansson

Málið er að þing ESB er til þess að SAMÞIKKJA  þær tillögur sem fyrir það eru lag. Ekki FELLA ÞÆR EÐA BREYTA.

Hinsvegar má tala tölvert.

Snorri Hansson, 3.9.2014 kl. 01:57

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

ESB-þingmenn bera ekki fram neina tillögu fyrir þingið í Strassborg, þeim er það ekki heimilt.  Þeim er einvörðungu ætlað að samþykkja tillögur búrókratanna í Brussel, fólksins sem enginn hefur kosið til að sinna lagasmíð.  Það er ótrúlegt að sambandsríkin skuli láta þetta yfir sig ganga án þess að hreifa mótmælum, Bretar þar með taldir.

Tómas Ibsen Halldórsson, 3.9.2014 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 222
  • Sl. sólarhring: 245
  • Sl. viku: 2334
  • Frá upphafi: 1112376

Annað

  • Innlit í dag: 191
  • Innlit sl. viku: 2099
  • Gestir í dag: 186
  • IP-tölur í dag: 185

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband