Leita í fréttum mbl.is

Stöðugur og góður meirihluti gegn aðild að ESB

Það er alveg sama hvað ESB-aðildarsinnar reyna þessa dagana: Það er stöðugur og góður meirihluti Íslendinga sem er þeirrar skoðunar að best sé að Ísland sé utan ESB.

Annars er ýmislegt óljóst með þessa könnun eins og sjá má hér

Fréttin á mbl.is er birt hér í heild sinni: 

 

Meiri­hluti and­víg­ur aðild að ESB

stækka

Nor­d­en.org

Meiri­hluti Íslend­inga er and­víg­ur aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sam­kvæmt niður­stöðum nýrr­ar skoðana­könn­un­ar sem Capacent gerði fyr­ir sam­tök­in Já Íslandsem hlynnt eru aðild að sam­band­inu. Spurt var í skoðana­könn­un­inni hvernig aðspurðir myndu greiða at­kvæði ef kosið yrði um aðild að ESB. 54,7% sögðu að þau myndu hafna aðild en 45,3% að þeir myndu styðja hana. 

Greint var frá niður­stöðum skoðana­könn­un­ar­inn­ar á aðal­fundi Já Ísland sem fram fór í dag. Sam­kvæmt henni er meiri­hluti kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins (92%) og Sjálf­stæðis­flokks­ins (83%) and­víg­ur aðild að ESB en meiri­hluti kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­inn­ar (89%), Bjartr­ar framtíðar (81%), Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar - græns fram­boðs (55%) og Pírata (55%) hlynnt­ir henni.

Skoðana­könn­un­in var gerð dag­ana 29. júlí – 10. ág­úst 2014. Um var að ræða net­könn­un meðal 1.500 manns á öllu land­inu, 18 ára og eldri sem voru hand­vald­ir úr Viðhorfa­hópi Capacent Gallup. Þátt­töku­hlut­fall var 54,6%. 


mbl.is Meirihluti andvígur aðild að ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er ánægjulegt að sjá hve mjög hefur dregið saman með fylkingunum, þeim fjölgar greinilega sem eru fylgjandi ESB og nei sinnum og innibyggjum fækkar greinilega.

Það kæmi mér ekki á óvart ef rétthugsandi fylgjendum ESB fjölgi og fari yfir 50% áður en árið er liðið, en því væri ekki síst að þakka núverandi stjórnvöldum sem keppast nú um að svíkja hvert kosningaloforði á fætur öðru, saman ber loforð um kosningu um áframhaldandi viðræður og svo hið svokallaða loforð um skuldalækkun íbúðarlána sem er að koma betur og betur í ljós að engin innistæða er fyrir.

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.9.2014 kl. 16:04

2 identicon

Þátttökuhlutfallið í þessari könnun er aðeins 54.6%, sem þýðir að aðeins 29.9% aðspurðra svöruðu að þeir væru á móti aðild.

Það er ekki hægt að reikna með að þeir sem svöruðu ekki muni skiptast í sömu hlutföllum og þeir sem svöruðu. Ástæðan er að margir vilja ekki taka afstöðu fyrr en samningur liggur fyrir. Í þeim hópi tel ég að ESB-sinnar séu í miklum meirihluta.

Mér sýnist því þessi könnun gefa vísbendingu um að meirihluti muni líklega velja aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.9.2014 kl. 16:55

3 Smámynd: Elle_

Í nokkur ár eru Evrópuvaktin, Heimsýn, Vinstrivaktin, og þó nokkrir enn, búnir að vera að skýra að þessar svokölluðu viðræður (sem voru aldrei samningaviðræður) voru stopp 2011 og þar með ekki um neitt að ræða.  Helgi, eins og þú skrifaðir í gær: Vaknaðu.

Elle_, 5.9.2014 kl. 17:00

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Því meir sem heimssýn, vv, ev og Páll Vilhjálmsson tala ásamt LÍÚ-Mogga - því fleiri flykkjast yfir til ESB sinna.

Fólk flykkist frá fáfræði og hatursáráðri yfir í ESB-sæluna þar sem ríkir þekking og sáttar- og samningavilji.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.9.2014 kl. 19:29

5 Smámynd: Elle_

Alveg merkilegt að þið skuluð ekki vera flúnir í alla þessa himnasælu.  Sem þið kallið sælu af eintómri fáfræði ykkar.  Þú ert nú ekki viðræðuhæfur annars með þinn hatursáróður og ættir síst allra að nota það orð.  Það er þó framför að þú notaðir ekki vanalegu öfgaorðin.

Elle_, 5.9.2014 kl. 20:42

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Til hvers leggja þeir á sig þetta þjark um himneska sælu Esb.hversvegna flýja þau ekki þangað. .Þingsályktunar tillaga Össurar var hrein aðför SF.og mestum hluta Vg.að lýðræðinu.við gerum kröfu til Gunnars Braga að hún verði afturkölluð eins og hún kom.Íslendingar vilja ekki ganga í ESB,það er svo augljóst.Mb kv. úr sveitasælu Íslands sem enginn vill framselja.

Helga Kristjánsdóttir, 6.9.2014 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 101
  • Sl. sólarhring: 185
  • Sl. viku: 598
  • Frá upphafi: 1116700

Annað

  • Innlit í dag: 76
  • Innlit sl. viku: 509
  • Gestir í dag: 72
  • IP-tölur í dag: 72

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband