Leita í fréttum mbl.is

Fróðlegur pistill á RUV um efnahagsstöðuna í Evrópu

Það gengur hægt fyrir evrulöndin að rétta úr kreppukútnum. Þetta var sérstaklega rætt á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um síðustu helgi. Það eru hins vegar pólitísk átök um hvernig eigi að taka á kreppuvandanum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í fróðlegum pistli Sigrúnar Davíðsdóttur sem fluttur var í Spegli Ríkisútvarpsins nýverið. 

Þar kemur fram að menn séu smám saman að hverfa frá þeirri sparnaðarhneigð til að bjarga evrunni sem Þjóðverjar hafa helst verið talsmenn fyrir. Nú er meira að segja AGS farið að tala fyrir því að ríkisstjórnir evrulandanna verði að auka útgjöld, t.d. með fjárfestingum, til þess að komast út úr vandanum. Það sé eina leiðin til að vinna á atvinnuleysi sem er að meðaltali um 12%, en er allt upp í 50% á vissum svæðum og hjá yngstu aldurshópunum.

Sjá pistilinn hér:  Efnahagsstaðan í Evrópu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er enginn ástæða til að rjúka upp til handa og fóta þó að það verði smá samdráttur á evrusvæðinu. Öll hagkerfi búa við samdrátt öðru hvoru.

Ósveigjanleiki evrunnar er af andstæðingum hennar talinn hennar helsti galli því að einstaka þjóðir geta ekki fellt gengi gjaldmiðilsins að eigin geðþótta.

En þessi eiginleiki evrunnar er í raun hennar helsti kostur meðal annars vegna þess að hann kemur í veg fyrir að stjórnmálamenn geti varpað ábyrgðinni af eigin misgjörðum yfir á almenning.

Þannig komast stjórnmálamenn ekki upp með annað en vandaða stjórnsýslu. Það er þó ekki hægt að útiloka að einstaka þjóðir geti á stundum farið út af sporinu.

Samtryggingarkerfi ESB kemur þá til aðstoðar. Með því að ESB hefur eftirlit með einstökum ríkjum og setur þeim skilyrði er kostnaði við slíkt samtryggingarkerfi haldið í lágmarki.

Öllum þjóðum ESB er fengur i slíku samtryggingarkerfi því að enginn veit hvenær kemur að þeim að þurfa á því að halda.

Þrátt fyrir skilyrði og eftirlit er þó ekki útilokað að það verði sömu þjóðirnar sem þurfa sífellt á aðstoð að halda. 

Það er þó ekki teljandi vandamál vegna þess að betur settar þjóðir njóta í raun góðs af vanda hinna verst settu í formi hagstæðari vaxta ofl. Það er því ekki óeðlilgt að þær skili því að hluta tilbaka. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 14.10.2014 kl. 23:33

2 identicon

Í þessum pistli Sigrúnar Davíðsdóttur er fjallað um Evrópulönd almennt og ESB-lönd en ekki evru eða evrulönd sérstaklega. 

Vandinn er ekkert síður utan evrusvæðisins eins og við ættum að vita manna best.

Annars er athyglisvert fyrir okkur að heyra þessar áherslur í ljósi niðurskurðar núverandi ríkisstjórnar á opinberum framkvæmdum.

Ásmundur (IP-tala skráð) 15.10.2014 kl. 09:52

3 identicon

Sá eini sem er að rjúka upp til handa og fóta er þú í þinni örvæntingu að verja þitt heittelskaða áhugamál.

Það eina sem þú gerir er að endurbirta heilaþvottinn sem þú skilur ekki einu sinni sjálfur. Þetta er þín leið til að reyna að segja við sjálfan þig að þú sért ekki þessi hallærislegi lúser sem þú ert. Þú ert eins og lítil geðsjúk fluga sem vill ekki fara í burtu, óþolandi lítið kvikindi. Hrokinn hreinlega lekur af þér. Dæmigert besserwisser fífl í keppni í að sýnast vera voða klár, þótt þú hafir nákvæmlega ekkert vit í hausnum.

Eru yfirleitt einhver takmörk fyrir dellunni í þér? Hvað þurfa hlutirnir að vera orðnir slæmir til að þú yfirleitt íhugir að endurmeta eigin heilaþvott? Svarið er að það eru engin takmörk. Þú ert helsjúkur einstaklingur, fyrir löngu drukknaður í dellunni. Geðræn meðferð er þín síðasta von.

palli (IP-tala skráð) 15.10.2014 kl. 12:44

4 identicon

Ásmundur, ég fann fyrir þig greindarvísitölupróf á netinu.

http://www.iq-test.cc/

Drífðu þig nú og taktu prófið. Þú þarft að átta þig á eigin heimsku sem allra fyrst, því blaðrið í þér er óþolandi. Ekkert röfl og múður, taktu prófið. Það sjá það allir nema þú sjálfur hvað þú ert heimskur og vitlaus. 

palli (IP-tala skráð) 15.10.2014 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 84
  • Sl. sólarhring: 319
  • Sl. viku: 1019
  • Frá upphafi: 1117618

Annað

  • Innlit í dag: 82
  • Innlit sl. viku: 899
  • Gestir í dag: 80
  • IP-tölur í dag: 80

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband