Leita í fréttum mbl.is

Fé var borið á Íslendinga, segir Ögmundur

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, tók það fram í umræðum á Alþingi í kvöld um tillögu Samfylkingar og fleiri um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um inngöngu Íslands í ESB að hann vildi breyta spurningu sem lagt er til að lögð verði fyrir þjóðina þannig að spurt yrði beint um afstöðu til aðildar að ESB. 

Jafnframt sagði Ögmundur að þeir sem samþykkt hefðu tillögu um umsókn um aðild að ESB árið 2009 hefðu verið hafðir að fíflum með því að látið var í veðri vaka að umsóknarferlið tæki ekki nema 18-24 mánuði. Umsóknarferlið hefði hins vegar reynst miklu víðfeðmara og langdregnara en nokkur hefði búist við. 

Þá ítrekaði og undirstrikaði Ögmundur að ekki hefði verið um neinar venjulegar aðildarviðræður að ræða heldur hefði komið í ljós að þetta voru aðlögunarviðræður (eins og lýst hefur verið hér í þessu bloggi nýlega með vísan í framvinduskýrslur) og að aðilar í stjórnkerfinu hefðu verið keyptir með aðlögunarstyrkjum til að hraða aðlöguninni sem mest.

Ögmundur sagði í því efni að það hefði verið borið fé á Íslendinga.

Vill Samfylkingin að áfram verði borið fé á Íslendinga?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Það eru svo ótrúlega margir sem töldu það,en hvað geta veslings kjósendur sannað.Slík framkoma við landið/þjóðina sem ól þá,er forkastanlegt,um leið og það réttlætir skammaryrðið landráðamaður.

Helga Kristjánsdóttir, 15.4.2015 kl. 03:39

2 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Hvort sem spurt verður um að halda aðildarferlinu áfram eða hvort vilji sé til að ganga í ESB eða ekki þá verður jafnframt að taka afstöðu til fyrirvara sem alþingi setti árið 2009 fyrir aðildarumsókn.

Þessi fyrirvarar komu í veg fyrir að mikilvægustu kaflarnir voru opnaðir enda aðlögunarkröfur ESB algjörlega óásættanlegir fyrir Íslands.

Ljóti leikur stjórnarandstöðunnar, með Pírata í fylkingarbrjósti, er að láta sem fyrirvarar alþingis séu ekki til og hefur stjórnarandstaða engu svarað um hvað gera skuli við fyrirvarana ef þjóðin samþykki að halda áfram aðildarferlinu.

Tillaga stjórnarandstöðunnar er í raun tillaga um að afnema fyrirvarana með tilstuðlan þjóðarinnar svo halda megi áfram fullri aðlögun Ísland að ESB áður en þjóðin fái nokkra aðkomu að málinu.

Spurningarnar sem þarf að svara eru:

1. Vilt þú að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við ESB á grundvelli fyrirvara alþingis. JÁ/NEI

2. Vilt þú að Ísland haldi áfram aðildarferlinu við ESB og að fyrirvörum alþingis verði vikið frá til að svo megi verða. JÁ/NEI

3. Vilt þú að Ísland gangi í ESB á grundvelli fyrirvara alþingis eða ekki. JÁ/NEI

4. Vilt þú að Ísland gangi í ESB og að fyrirvörum alþingis verði vikið frá til að svo megi verða. JÁ/NEI

Það liggur kýrskýrt fyrir að ESB málið verður ekki til lykta leitt nema afstaða verði tekin til fyrirvara alþingis.

Eggert Sigurbergsson, 15.4.2015 kl. 08:04

3 identicon

Enn er Ömmi að bulla um perlur og eldvatn. Þegar Vinstri stjórnin var og hét var hann í stjórnarandstöðu, núna er með stjórnarliðum. Af hverju tekur maðurinn ekki skrefið til fulls og gengir í Framsóknarflokkinn? Hann er einhver óheiðarlegasti stjórnmálamaður sem klakinn hefur alið, "undurchsichtig."

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 15.4.2015 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 249
  • Sl. viku: 935
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 817
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband