Leita í fréttum mbl.is

Tala af lítilsvirðingu um íslenskan sjávarútveg

c_sigurdurkariSigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði stuðningsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið hafa fjallað af ákveðinni lítilsvirðingu um sjávarútveginn hér á landi í ræðu á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) sem lauk í gær. Sigurður Kári kom víða við í ræðu sinni og m.a. inn á Evrópumálin og fer sá hluti ræðunnar hér á eftir með góðfúslegu leyfi höfundar:

"Í þriðja lagi vil ég nefna umræðuna um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu sem reglulega skýtur upp kollinum. Af fréttaskeytum síðustu daga að dæma virðast áhugamenn um aðild aftur vera farnir að láta að sér kveða, eftir að hafa legið í leyni um nokkurt skeið.

Nú vill þetta ágæta fólk fara að láta kanna hvort EES-samningurinn brjóti í bága við stjórnarskránna og vill auk þess breyta stjórnarskránni til að greiða fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Í umræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu hafa Evrópusinnar að mínu mati talað af ákveðinni lítilsvirðingu um sjávarútveginn.  Þeir hafa ítrekað sagt að þar sem vægi sjávarútvegsins í þjóðarbúskapnum skipti nú minna og minna máli sé það ekkert tiltökumál að íslensk útgerðarfyrirtæki að þurfa að lúta reglum sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Mér finnst miður að íslenskir stjórnmálamenn tali með þessum hætti um eina undirstöðuatvinnugrein landsins.  Raunar ættu stjórnmálamenn ekki að tala með þessum hætti um neina atvinnugrein.

Í mínum huga kemur aðild Íslands að Evrópusambandinu ekki til greina. Í henni væri fólgin óþolandi óvissa um framtíð fiskveiðistjórnunar á Íslandi. Þeir sem fylgst hafa með þeim að undanförnu vita að drög að stjórnarskrá sambandsins, sem felld voru í þjóðaratkvæðagreiðslu í Hollandi og Frakklandi og hurfu í kjölfarið af yfirborði jarðar, hafa dúkkað upp á nýjan leik. Nú í formi fjölda samninga, sem ekki munu verða lagðir fyrir íbúa sambandsins og verða vafalítið að lögum án þeirra vitundar.

Í þessum samningum verður endanlega staðfest, að stjórn sjávarauðlinda verður á valdi Evrópusambandsins, en ekki aðildarríkja þess. Þetta er mikilvægt fyrir okkur að hafa á hreinu, því hér dettur engum manni í hug að framselja yfirráð yfir auðlindunum til Belgíu. Það fæli í sér tilræði við íslenskan sjávarútveg. Það vita allir sem hafa látið þessi mál sig varða, einnig þeir sem hlynntir eru aðild. En því miður virðast þeir enn vera reiðubúnir til að fórna hagsmunum heillar atvinnugreinar fyrir þetta áhugamál sitt."

Heimild:
Stjórnarskráin og stjórnmálin (Ræða Sigurðar Kára Kristjánssonar á aðalfundi LÍÚ 2007)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég hef nú lengi sagt og það er nú raunar alltaf að koma betur í ljós, að það breytir engu fyrir okkur sem þjóð hvort eigendur kvótans heita Samherji eða Youngs Blue Crest. Mér finnst meira að segja líklegt, að það gæti orðið meira eftir af arðinum í landinu sem fjárfesting í greininni hjá YBC en hjá Samherja, sem fjárfestir erlendis hverja krónu sem þeir sjúga undan nöglunum á íslenskum sjómönnum og verkafólki.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.10.2007 kl. 00:36

2 Smámynd: haraldurhar

Tek undir hvert orð sem Kristinn segir, og ég hef verið meir og meir að komast á skoðun Hafsteins, og vil jafnvel íhuga það að opna fyrir það að selja EB aðgang að Íslands, í formi á sölu á aflakvóta, líkt og Grænlendinar hafa gert í áraraðir, væri ekki hissa að verðmæti kvótanna væri hærra en nemur heildaraflaverðmæti okkar í dag.

   Þá yrði líka veisla hjá eftirlitsiðnaðnum fiskistofu og Landhelgisgæsunni, og gætu þær sjálfsagt tekið við meginn þorranum af sjómönnum, líkt og hefur gerst í flugstöðinni eftir brotthvarfs hersins.

haraldurhar, 28.10.2007 kl. 01:02

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Hvað sem líður skiptum skoðunum um núverandi kerfi fiskveiðistjórnunar við Ísland breytir það því ekki að ófáir Evrópusambandssinnar hafa beinlínis hlakkað yfir því að vægi sjávarútvegar í íslenzku efnahagslífi hafi minnkað og af þeim sökum sé að þeirra mati sífellt minni ástæða til að taka tillit til hagsmuna þeirra sem stunda sjávarútveg hér við land, algerlega óháð því hvort það séu útgerðamenn, sjómenn eða aðrir sem hafa lifibrauð sitt með einum eða öðrum hætti af þessari atvinnugrein. Þeir hagsmunir standa einfaldlega í vegi fyrir því markmiði þessara aðila að koma Íslandi inn í Evrópusambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson, 28.10.2007 kl. 17:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 124
  • Sl. sólarhring: 127
  • Sl. viku: 2369
  • Frá upphafi: 1112154

Annað

  • Innlit í dag: 106
  • Innlit sl. viku: 2117
  • Gestir í dag: 101
  • IP-tölur í dag: 99

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband