Leita í fréttum mbl.is

Thorbjørn Jagland gefur Evrópusambandsaðild upp á bátinn

jagland_410856Frá því var greint í norskum fjölmiðlum um áramótin að Thorbjørn Jagland, fyrrum utanríkis- og forsætisráðherra Noregs og leiðtogi norska Verkamannaflokksins og núverandi forseti norska Stórþingsins, væri að sögn búinn að gefa upp alla von um Noregur eigi eftir að ganga í Evrópusambandið, a.m.k. ekki í náinni framtíð. Ástæðuna sagði hann vera þá að Norðmenn hefðu það einfaldlega of gott utan sambandsins. Hann lagði þó áherslu á að hann hefði sjálfur alls ekki skipt um skoðun í málinu. Þetta þykja stórar fréttir í Noregi, enda hefur Jagland lengi verið helsti leiðtogi norskra Evrópusambandssinna.

Yfirlýsing Jaglands er hins vegar í fullu samræmi við ummæli annars af forystumönnum norskra Evrópusambandssinna, forsætisráðherrans Jens Stoltenbergs, sem viðurkenndi í samtali við breska dagblaðið Sunday Telegraph í mars á síðasta ári að Norðmenn stæðu með pálmann í höndunum vegna þess að þeir kusu í tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum 1972 og 1994 að standa utan Evrópusambandsins. Efnahagslífið væri sterkt, hagvöxtur mikill og atvinnuleysi lítið auk þess sem þeir hefðu bjargað norskum sjávarútvegi. Fyrir vikið sæi hann ekki fyrir sér að kosið yrði á ný um Evrópusambandsaðild í Noregi, málið hefði einfaldlega verið afgreitt.

Skoðanakannanir í Noregi hafa sýnt stöðugan meirihluta Norðmanna andvígan Evrópusambandsaðild síðan fyrirhugaðri stjórnarskrá Evrópusambandsins var hafnað af Frökkum og Hollendingum í byrjun sumars 2005. Núverandi ríkisstjórn miðju- og vinstriflokka í Noregi hefur aðild að sambandinu ekki á stefnuskrá sinni frekar en aðrar ríkisstjórnir sl. 13 ár og nær útilokað er talið að ríkisstjórn hlynnt aðild geti komist til valda í Noregi þar sem þeir tveir stjórnmálaflokkar sem hlynntir eru aðild, Verkamannaflokkurinn og Hægriflokkurinn, geta ekki unnið saman.

Leiðtogi Hægriflokksins, Erna Solberg, hefur lýst yfir miklum vonbrigðum sínum með yfirlýsingu Jaglands. 

Heimildir:
Jagland gir opp å få Norge inn i EU (Bt.no 27/12/07)
Gir opp å få Norge inn i EU (Nationen.no 27/12/07)
Jagland gir opp å få Norge inn i EU (Aftenposten.no 27/12/07)
Erna er skuffet (Bt.no 27/12/07)
Jens gir opp EU-kampen (Vg.no 25/03/07)
Norwegians 'content' with life outside EU (Telegraph.co.uk 25/03/07)

Ítarefni:
Er líklegt að Noregur gangi í ESB?
Myndi EES-samningurinn líða undir lok ef Norðmenn gengju í ESB?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þetta er rétt hjá Jagland.Og þetta segir líka til um það af hverju þjóðir ganga í Evrópusambandið.Ef íslendingum tekst ekki að halda uppi svipuðum lífsskilyrðum og nágrannaþjóðirnar á Norðurlöndunum, Bretlandi og írlandi sem eru í Evrópusambandinu, án þess að þræla allann sólarhringinn og til þess að það sé hægt þá þarf að vera til vinna, þá munu Íslendingar ganga í Evrópusambandið.Engir stjórnmálamenn munu geta komið íveg fyrir það. 

Sigurgeir Jónsson, 25.1.2008 kl. 09:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 174
  • Sl. sólarhring: 208
  • Sl. viku: 2286
  • Frá upphafi: 1112328

Annað

  • Innlit í dag: 147
  • Innlit sl. viku: 2055
  • Gestir í dag: 144
  • IP-tölur í dag: 143

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband