Leita í fréttum mbl.is

Látum embættismenn ESB móta framtíð okkar

Iðnþing 2008 fór fram fyrir helgi á vegum Samtaka iðnaðarins og var yfirskriftin að þessu sinni "Mótum eigin framtíð". Þingið gekk þó allt meira eða minna út á að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið og að embættismönnum þess yrði eftirleiðis falið að móta framtíð íslensku þjóðarinnar.

---

Rétt er að hafa ávallt hugfast að umræðan um Evrópumálin snýst fyrst og síðast um það hvort við Íslendingar eigum áfram að vera sjálfstæð og fullvalda þjóð eða hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Við þurfum fyrst að skoða hvað okkur er boðið! Þetta er staðlaður frasi þegar deilt er um aðildarumsókn.

Sá sem hefði látið þessa setningu út úr sér á fundi fyrir 50 árum hefði verið borinn út óvígur.

Árni Gunnarsson, 9.3.2008 kl. 08:50

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Ég held að það ríði fremur á í þínu tilfelli (sem og margra) að kynna sér þessi mál betur. Þá myndir þú t.d. komast að því að samningssvigrúmið í aðildarviðræðum við Evrópusambandið er mjög þröngt. Það er ekki margt er í boði er að semja um og ekkert sem flokkast sem grundvallaratriði. Þ.á.m, er t.d. formleg áhrif okkar innan sambandsins kæmi til aðildar að því. Um það gilda mjög skýrar reglur og er þar miðað við fjölmenni aðildarríkjanna. Malta er minnsta aðildarríkið í dag og hafði í lok árs 2006 um 400 þúsund íbúa. Við fengjum því aldrei meiri áhrif en það ágæta ríki. Maltverjar hafa 5 þingmenn á Evrópusambandsþinginu af 785 eins og staðan er í dag og önnur áhrif eru í samræmi við það, í kringum 1%. Nokkuð sem einfaldlega þýðir að ákvarðanir um það hvernig framtíð okkar yrði mótuð, kæmi til aðildar að Evrópusambandinu, yrði nokkuð ljóslega í höndunum á flestum öðrum en okkur sjálfum enda þeir orðnir fáir málaflokkarnir innan aðildarríkjanna sem sambandið er ekki meira eða minna með puttana í og þeim fer fjölgandi.

Þetta er þannig svo sannarlega enginn "staðlaður frasi" heldur nokkuð sem þú kæmist að raun um ef þú aðeins kynntir þér málið. Og þetta er ekki sagt þér til minnkuna, en athugasemdin hér að ofan lýsir einfaldlega hrópandi þekkingarleysi á málinu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 09:56

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

´Nú er mér fyrirmunað að skilja hvað þú hefur misskilið í minni athugasemd. Mér finnst þessi frasi að við eigum að skoða hvað sé í boði svo niðurlægjandi að það fer um mig hrollur þegar ég heyri þessa setningu.

Og ég endurtek: Ef einhver hefði látið sér um munn fara skömmu eftir að við náðum sjálfstæði, að til greina kæmi að við afsöluðum okkur því ef nægilegur ábati væri í boði, -þá hefði sá maður verið laminn til óbóta.

Mín afstaða í þessu aðildarmáli er afar ljós og ég mun ekki af neinum þiggja fróðleik í þá veru að það sé skynsamlegt í ljósi þessara eða hinna aðstæðna að við afsölum sjálfstæði okkar meira en orðið er.

Og þetta er í fullu samræmi við andstöðu mína við inngönguna í EES á þeim tíma.

Í mínum huga er þetta tilvitnaða. "staðlaður frasi" fullkomlega eðlilegt orðalag um afstöðu sem er niðurlægjandi.

Hörmulegt er til þess að vita að aulalega og galgopalega útfærð hugmyndafræði markaðshyggjunnar hefur komið þjóðinni í þá aðstöðu að pólitíkusarnir eru farnir að skoða í alvöru flóttaleið frá eigin verkum.

Árni Gunnarsson, 9.3.2008 kl. 17:21

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Mér finnst of eins og menn séu vangefnir.

Erum við sjálfstæð þjóð eða ekki.. Ef við viljum gefa sjálfstæði okkar hvernig væri að byrja á að gefa sjálfræði okkar til stjórnvalda hér á landi og láta þá gefa land og okkur með áfram. Er það ekki þetta það sem sumir sækjast eftir þ.e. að Evrópubandalagið stjórni okkur. Nei ég vil tilheyra sjálfstæðu Íslandi.   

Valdimar Samúelsson, 9.3.2008 kl. 20:18

5 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Árni:
Ég biðst forláts þúsundfalt!!! Ég held að ég hafi bara aldrei misskilið einhvern svona illilega. Ég  átti líka erfitt með að trúa þessari afstöðu upp á þig. En gott mál, þetta er allavega komið á hreint.

Hjörtur J. Guðmundsson, 9.3.2008 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 130
  • Sl. sólarhring: 199
  • Sl. viku: 1065
  • Frá upphafi: 1117664

Annað

  • Innlit í dag: 122
  • Innlit sl. viku: 939
  • Gestir í dag: 118
  • IP-tölur í dag: 118

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband