Leita í fréttum mbl.is

Írar og evran

c_bjorn_bjarnasonÍ breska blađinu The Daily Telegraph hinn 13. mars segir, ađ írska ríkisstjórnin kunni ađ ţurfa ađ rétta írskum bönkum hjálparhönd vegna lćkkunar á fasteignaverđi í landinu. Ríkisstjórnin virđist ekki hafa nein ráđ til ađ stöđva alvarlega, efnahagslega niđursveiflu. Tímabundin ţjóđnýting á bönkum kunni ađ verđa ţrautalendingin.

Morgan Kelly, prófessor viđ University College í Dyflinni, segir ríkisstjórnina nćstum úrrćđalausa til ađ sporna gegn ţví ađ niđursveiflan breytist í alvarlegan samdrátt. Hann segir Íra ekki geta gert neitt, sem ţjóđ mundi venjulega gera viđ ađstćđur sem ţessar, ţar sem ţeir séu hluti evrusvćđisins. Ţeir geti ekki lćkkađ vexti, ţeir geti ekki lćkkađ gengiđ og ţeir hafi miklu minna svigrúm til fjármálalegra ađgerđa en fólk ćtli. Ţeir sitji einfaldlega í súpunni.

Fasteignaverđ lćkkađi um 7% á Írlandi síđasta ár og heldur áfram ađ lćkka á ţessu ári. Atvinnuleysi var 5,2% í febrúar sl. hiđ mesta í 8 ár. Bankarnir séu bjargar ţurfi eins og ţeir voru á Norđurlöndunum í byrjun 10. áratugarins, ţegar ríkiđ tók ţá í fóstur. Minnt er á, ađ tveir sćnskir bankar voru ţjóđnýttir og blásiđ í ţá nýju lífi, áđur en ţeir voru aftur settir á markađ. Svíar hafi ţó ekki náđ tökum á stjórn eigin peningamála, fyrr en eftir ađ ţeir hćttu ţátttöku í evrópska gjaldmiđlasamstarfinu (ERM) og tóku peningamálin í eigin hendur.

Í fréttinni er einnig rifjađ upp, ađ síđustu 20 ár hefur veriđ litiđ til Írlands sem fyrirmyndar vegna hagvaxtar og efnahagsframfara. Írar eigi ţó mest undir viđskiptum í pundum og dollar af öllum evruríkjum og finni ţví ţyngst fyrir áhrifum af síhćkkandi gengi evrunnar. Morgan Kelly telur, ađ Írar hafi tapađ 20% af samkeppnishćfni sinni frá ţví sem hún var, ţegar evran kom til sögunnar.

Af umrćđum hér á landi um viđbrögđ í efnahagsmálum stendur upp úr furđulega mörgum, ađ eina bjargráđiđ sé ađ fara sömu leiđ og Írar gerđu međ ađild ađ evrusvćđinu. Írar eru eina ESB-ţjóđin, sem verđur ađ ganga til ţjóđaratkvćđagreiđslu um Lissabon-sáttmála ESB. Af fréttum má ráđa, ađ reiđi almennings í garđ evrunnar kunni ađ leiđa til ţess, ađ sáttmálanum verđi hafnađ af Írum. Ţar međ yrđi allt í uppnámi innan ESB.

Á Schengen-fundi í Brussel á dögunum rćddi ég viđ írskan ráđherra um vćntanlega ţjóđaratkvćđagreiđslu. Hann sagđi, ađ hún yrđi í sumar. Á hinn bóginn hefđi endanleg dagsetning ekki veriđ ákveđin.

Sjá má, ađ ríkisstjórnin vill draga sem lengst ađ tilkynna daginn, ţví ađ vitađ er, ađ í kosningabaráttunni muni andstćđingar Lissabon-sáttmálans hvađanćva ađ úr Evrópu koma til Írlands til ađ leggja sitt af mörkum til ađ fella hann.

Undanfarnar vikur hef ég setiđ tvo Schengen-ráđherrafundi og ţar á međal tekiđ ţátt í tveimur lokuđum, óformlegum umrćđum. Ég fullyrđi, ađ Ísland, Noregur og Sviss standa ekki verr ađ vígi en ađildarríki ESB, ef áhugi er á ţví ađ viđra á ţessum vettvangi einhver sérgreind hagsmunamál ţessara ríkja eđa hafa áhrif á ákvarđanir. Ég er einnig ţeirrar skođunar, ađ unnt sé ađ vinna skipulegar ađ ţví ađ kynna og rćđa íslenska Schengen-hagsmuni viđ framkvćmdastjórn ESB međ núverandi skipan en ef Ísland vćri ađili ađ ESB.

Störf mín á ţessum vettvangi síđan 2003, fyrir utan formennsku í Evrópunefndinni, 2004 til 2007, hafa gefiđ mér einstakt tćkifćri til ađ afla mér haldgóđrar ţekkingar á tengslum Íslands og Evrópusambandsins – jafnvel meiri en flestra annarra íslenskra stjórnmálamanna. Međ ţessa reynslu ađ baki blćs ég á ţau sjónarmiđ, ađ međ núverandi skipan sé ekki unnt ađ tryggja íslenska hagsmuni á fullnćgjandi hátt gagnvart Evrópusambandinu. Auk ţess lít ég á ţađ sem uppgjöf viđ stjórn íslenskra efnahagsmála ađ halda, ađ allur vandi hverfi međ ţví einu ađ ganga í Evrópusambandiđ til ađ komast í eitthvert evruskjól.

Björn Bjarnason,
dómsmálaráđherra

(Greinin birtist áđur á heimasíđu höfundar á slóđinni www.bjorn.is)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 698
  • Frá upphafi: 1116910

Annađ

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 616
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband