Leita í fréttum mbl.is

Hafna Írar Stjórnarskrá Evrópusambandsins?

euconstitutionBúist er viđ ţví ađ ţjóđaratkvćđagreiđsla um Stjórnarskrá Evrópusambandsins (sem nú heitir Lissabon-sáttmálinn) verđi haldin á Írlandi ţann 12. júní nk. Írar eru sem kunnugt er eina ađildarţjóđ sambandsins sem mun fá ađ kjósa um sáttmálanna, en írska stjórnarskráin krefst ţess. Ráđamenn Evrópusambandsins hafa alls stađar annars stađar komiđ í veg fyrir ađ kosiđ yrđi um stjórnarskrá sambandsins af fenginni reynslu, en Frakkar og Hollendingar hönfuđu henni í ţjóđaratkvćđagreiđslum áriđ 2005. Ţađ er hins vegar vinnuregla innan Evrópusambandsins ađ "nei" er ekki tekiđ sem gilt svar en ţess í stađ er fólk látiđ kjósa aftur og aftur ţar til niđurstađa fćst sem er ráđamönnum sambandsins ţóknanleg og ţá er aldrei kosiđ aftur um máliđ. Ţ.e. ef fólki er ţá leyft ađ segja álit sitt á einhverjum samrunaskrefum á vegum ţess.

Í kjölfar ţess ađ Frakkar og Hollendingar höfnuđu Stjórnarskrá Evrópusambandsins brugđu ráđamenn sambandsins á ţađ ráđ ađ breyta uppsetningu hennar og gefa henni nýtt nafn, "Lissabon-sáttmálinn", međ ţađ ađ markmiđi ađ koma í veg fyrir ađ hún yrđi aftur lögđ í ţjóđaratkvćđi innan ţess, en stjórnvöld í ófáum ađildarríkjum Evrópusambandsins höfđu lofađ kjósendum sínum ţjóđaratkvćđi um hana. Eftir ađ stjórnarskráin hafđi veriđ sett í nýjan búning viđurkenndu ófáir ráđamenn ađildarríkjanna ađ Lissabon-sáttmálinn vćri í raun Stjórnarskrá Evrópusambandsins auk ţess sem gerđar hafa veriđ ítarlegar samanburđarrannsóknir í ţeim efnum sem stađfest hafa ţađ.

Nýjustu skođanakannanir á Írlandi hafa bent til ţess ađ mjög mjótt geti orđiđ á mununum í ţjóđaratkvćđagreiđslunni um Stjórnarskrá Evrópusambandsins og ađ jafnvel geti fariđ svo ađ henni verđi hafnađ. Írska ríkisstjórnin hefur hins vegar róiđ ađ ţví öllum ráđum ađ hún verđi samţykkt međ fulltingi ráđamanna í Brussel sem m.a. hétu írskum stjórnvöldum nýveriđ ađ fresta öllum ákvörđunum sem gćtu stuđađ írska kjósendur ţar til ţjóđaratkvćđiđ er afstađiđ. Nokkuđ sem ekki átti ađ fara hátt en var lekiđ. Bág stađa í írsku efnahagslífi er annars talin líkleg til ađ stuđla ađ andstöđu viđ stjórnarskrána, en hún er ekki síst tilkomin vegna ađildar Írlands ađ evrunni

Taki Stjórnarskrá Evrópusambandsins endanlega gildi verđur sambandiđ, auk stjórnarskrárinnar sjálfrar, í raun komiđ međ allt ţađ sem einkennir ríki samkvćmt alţjóđlegum skilgreiningum s.s. sameiginlegt ţing, gjaldmiđil, hćstarétt, fána, ţjóđsöng, ríkisstjórn, ríkisborgararétt, ytri landamćri, utanríkisstefnu, utanríkisráđherra, utanríkisţjónustu, alríkislögreglu og forseta svo ţađ helzta sé nefnt til sögunnar.

Tengt efni:
Stjórnarskrá Evrópusambandsins stađfest í Danmörku
Kanslari Ţýskalands í áróđursferđ til Írlands
Segir ákvćđi um aukin áhrif ţjóđaţinga ađildarríkja ESB gagnlaus
Fyrirhuguđ stjórnarskrá ESB samţykkt af leiđtogum ađildarríkjanna
Stjórnarskrá ESB í dularklćđum
Ráđherrum verđur bannađ ađ vinna ađ hagsmunum eigin ríkja
96% stjórnarskrárinnar í "nýja sáttmálanum"
Forystumenn ESB viđurkenna ađ stjórnarskráin muni í raun halda sér
Reynt ađ komast hjá ţjóđaratkvćđi um stjórnarskrána
Evrópusambandiđ hvetur til ţess ađ breskir kjósendur séu hunsađir

Ítarefni:
Samanburđur á Lissabon-sáttmálanum og Stjórnarskrá Evrópusambandsins
Leiđarvísir um Lissabon-sáttmálann

--- 

Rétt er ađ hafa ávallt hugfast ađ umrćđan um Evrópumálin snýst fyrst og síđast um ţađ hvort viđ Íslendingar eigum áfram ađ vera sjálfstćđ og fullvalda ţjóđ eđa hvort viđ eigum ađ ganga í Evrópusambandiđ.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 120
  • Sl. sólarhring: 123
  • Sl. viku: 699
  • Frá upphafi: 1116892

Annađ

  • Innlit í dag: 115
  • Innlit sl. viku: 616
  • Gestir í dag: 111
  • IP-tölur í dag: 110

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband