Leita í fréttum mbl.is

Djúpstćđur trúnađarbrestur

arni_thor_sigurdssonFlest bendir á ţessari stundu til ađ talsverđur meirihluti Íra hafi hafnađ Lissabon-sáttmálanum svokallađa.  Miđađ viđ tölur sem ţegar hafa birst virđist munurinn meiri en flestir töldu fyrirfram og má ţá hafa í huga ađ fyrir fáum mánuđum hvarflađi ekki ađ mörgum annađ en ađ sáttmálinn rynni greiđlega í gegnum írska ţjóđaratkvćđagreiđslu.

Vafalaust er hćgt ađ nefna fjölmargar ástćđur ţess ađ andstćđingar sáttmálans eru fleiri en stuđningsmenn í atkvćđagreiđslu sem er afar afdrifarík fyrir framtíđ Evrópusambandsins.  Ţćttir eins og valdaframsal til Brussel, minnkuđ áhrif fámennari ríkja í framkvćmdastjórn ESB og í ţinginu og illskiljanlegur texti sáttmálans eru oft nefndir til sögunnar.  Jafnvel nefnt ađ afsögn írska forsćtisráđherrans fyrr í vetur vegna hneykslismála geti veriđ ein af ástćđunum o.s.frv. 

Enginn getur fullyrt međ vissu ađ einhver ein ástćđa sé hér ađ baki.  Og líklega skipta ástćđurnar ekki miklu máli.  Hitt varđar miklu, ađ niđurstađan sýnir fullkominn og djúpstćđan trúnađarbrest á milli almennings annars vegar og kjörinna leiđtoga landsins og stjórnenda ESB hins vegar.  Ć ofan í ć kemur í ljós ađ leiđtogar og forystumenn einstakra ríkja eđa Evrópusambandsins í heild hafa enga tilfinningu fyrir viđhorfum og sjónarmiđum almennings og virđast líka kćra sig kollótta um ţau.  Ţess vegna völdu leiđtogar annarra ríkja en Írlands ađ sniđganga ţjóđir sýnar og notfćra sér ţingmeirihluta til ađ knýja sáttmálann í gegn.

Ţetta er ekki í fyrsta skipti sem ţessi stađa kemur upp.  Áriđ 2005 höfnuđu bćđi Frakkar og Hollendingar nýrri stjórnarskrá Evrópusambandsins í ţjóđaratkvćđagreiđslu og flest benti til ađ ţađ sama yrđi ofan á hjá Bretum og fleirum.  Ferlinu var ađ vísu hćtt strax ađ loknum atkvćđagreiđslunum í Frakklandi og Hollandi, ţađ hafđi jú ekkert upp á sig ađ halda áfram ţá.  Ţađ var ţó gert međ nokkuđ laumulegum hćtti, međ ţví ađ taka stjórnarskrána sem hafđi veriđ hafnađ og fćra hana í nýjan búning og kalla Lissabon-sáttmála.  Og ţá töldu menn sig geta komist hjá ţjóđaratkvćđagreiđslum.  Nema á Írlandi, ţar sem stjórnarskráin ţeirra er afdráttarlaus í ţessu efni.

Ţađ var sem sagt međ ráđnum hug ađ leiđtogar ESB-ríkjanna og Brussel-veldiđ ákvađ ađ sniđganga almenning.  Nú virđist írskur almenningur hafa tekiđ í taumana.  Og ţađ hefđi áreiđanlega gerst víđar ef ţjóđirnar hefđu veriđ spurđar.  Ţessi stađa endurspeglar djúpstćđan trúnađarbrest og valdhroka stjórnvalda.  Evrópusambandiđ er ekki lýđrćđislegur vettvangur og verđur ţađ enn síđur ţví meir sem stjórnendurnir fjarlćgjast allan almenning.  Einmitt lýđrćđisskorturinn og valdhrokinn munu vćntanlega líklega leiđa til ţess ađ Írum verđi hótuđ brottviking úr Evrópusambandinu. En viđ skulum bíđa og sjá hverju fram vindur.

Árni Ţór Sigurđsson,
ţingmađur Vinstrihreyfingarinnar - grćns frambođs

(Birtist áđur á bloggsíđu höfundar)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 60
  • Sl. sólarhring: 207
  • Sl. viku: 639
  • Frá upphafi: 1116832

Annađ

  • Innlit í dag: 58
  • Innlit sl. viku: 559
  • Gestir í dag: 57
  • IP-tölur í dag: 56

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband