Leita í fréttum mbl.is

Evran - bezt í heimi?

Í Fréttablađinu 7. júlí sl. birtist grein eftir Árna Pál Árnason, ţingmann Samfylkingarinnar, undir fyrirsögninni "Íslenska krónan - best í heimi?" ţar sem hann gerđi ađ umfjöllunarefni sínu nýlega úttekt danska viđskiptablađsins Břrsen. Niđurstađa hennar var á ţá leiđ ađ íslenzka krónan vćri um ţessar mundir einn veikasti gjaldmiđill heimsins og hefđi ţannig falliđ um 30% gagnvart dönsku krónunni frá síđustu áramótum. Svona lagađ ţekkist ađeins hjá ţjóđum sem viđ erum ekki vön ađ bera okkur saman viđ eins og hjá íbúum einrćđisríkja á borđ viđ Zimbabwe og Túrkmenistan sagđi Árni laus viđ allt yfirlćti.

Evran = stöđnun
Árni Páll er sem kunnugt er einhver ákafasti talsmađur ţess hér á landi ađ Ísland gangi í Evrópusambandiđ og taki upp evru. Hann hefur veriđ iđinn viđ ađ reka áróđur fyrir ţeirri afstöđu sinni á undanförnum árum og er umrćdd grein hans ţar engin undantekning. Ađ venju á allt ađ verđa svo miklu betra ef Ísland legđi nú bara niđur sjálfstćđiđ og gerđist svo gott sem áhrifalaust hérađ í ţví evrópska ríki sem veriđ er ađ breyta Evrópusambandinu í og ţá ekki sízt međ tilliti til gengismála.

Stađreyndin er ţó sú ađ sá gengisstöđugleiki sem Evrópusambandsađild og evra býđur upp á heitir réttu nafni stöđnun sem sést t.a.m. ágćtlega á stöđu mála í Ţýzkalandi undanfarin ár. Evrusvćđiđ býr í raun viđ fastgengisstefnu og sveiflurnar sem ekki koma fram í gjaldmiđilunum koma fyrir vikiđ einfaldlega fram annars stađar, ţá einkum í miklu og viđvarandi atvinnuleysi sem á stundum hefur fariđ upp í tveggja stafa tölu. Atvinnuleysi á međal ungs fólks víđa innan Evrópusambandsins er ta.m. um og yfir 20%  og hefur veriđ lengi.

Ónothćfur gjaldmiđill?
Ţađ er ţó langt frá ţví ađ evran sveiflist ekki eins og allir ađrir gjaldmiđlar. Árna Páli er eins og áđur segir tíđrćtt um veika stöđu íslenzku krónunnar um ţessar mundir og telur greinilega ađ ţađ sé til marks um ađ hún sé ónothćfur gjaldmiđill (ţađ er ţó ekki langt síđan hún var einn sterkasti gjaldmiđill heimsins).

Ţá má rifja upp ađ ekki er lengra síđan en 2005 ađ evran var einn veikasti gjaldmiđill heimsins ţađ áriđ samkvćmt úttekt brezka viđskiptablađsins Financial Times. Ţegar 58 helztu gjaldmiđlar heimsins voru skođađir var evran ađeins í 50. sćti! Ţađ eru heldur ekki mörg ár síđan evran féll um 30% á fáeinum mánuđum gagnvart dollaranum. M.ö.o. vćntanlega alls ónothćfur gjaldmiđill samkvćmt kenningu Árna Páls, sambćrilegur viđ ţađ sem gerist í Túrkmenistan og Zimbabwe?

Í dag er evran einn sterkari gjaldmiđill heimsins ef ekki sá sterkasti og hefur fyrir vikiđ ekki sízt leikiđ útflutningsgreinar í evruríkjunum vćgast sagt grátt. Einkum ţćr sem greiđa rekstrarkostnađ sinn í evrum en selja vörur sínar t.a.m. í dollurum eđa pundum eins og t.d. evrópska flugvélaframleiđandann Airbus sem hefur fyrir vikiđ m.a. ţurft ađ segja ţúsundum starfsmanna sinna upp störfum undanfarin misseri. Og ţetta er ţví miđur ađeins eitt dćmi af fjölmörgum.

Er ţetta ţađ sem viđ viljum? Ég fyrir mína parta kýs ađ afţakka.

Hjörtur J. Guđmundsson

(Birtist áđur á bloggsíđu höfundar)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 93
  • Sl. viku: 928
  • Frá upphafi: 1117700

Annađ

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 828
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 19

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband