Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Blóraböggull efnahagsþrenginga

Tekið er að sverfa að og blóraböggullinn var auðfundinn. 

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_economist_cfn543_595633

Meðfylgjandi graf er notað til að sýna fram á, að íslenzka krónan er þó ekki orsakavaldur, heldur er gengi hennar háð öðrum hagstærðum.  Þegar ódýrt lánsfé var ekki lengur fáanlegt á fjármálamörkuðum heimsins, færðu spákaupmenn fé sitt til, og þá kom í ljós sterkasti krafturinn, sem virkar á gengi gjaldmiðla til langframa og við þrengingar.  Það er viðskiptajöfnuður landanna.  Bláa línan á myndinni sýnir meðalsamband viðskiptajafnaðar og gengisbreytinga. Athugull lesandi sér strax ("den observante læser innser umiddelbart", eins og stóð í kennslubókunum), að að unnt er að draga nokkurn veginn beina línu frá stöðu Íslands, um Suður-Afríku, Bretland og til Japans.  Þetta þýðir, að gengi íslenzku krónunnar er háð viðskiptajöfnuði í sama mæli og gengi téðra landa.  Með öðrum orðum stafar hið mikla gengisfall íslenzku krónunnar af viðskiptahalla, sem á ekki sinn líka.  Hið mikla gengisfall krónunnar stafar af lögmáli um tengsl viðskiptajafnaðar og gengisbreytinga, en krónan er ekki í neins konar fríu falli sem haldlaus gjaldmiðill, eins og látið hefur verið í veðri vaka.  Afhjúpun þessarar staðreyndar, sem meðfylgjandi graf ber órækan vott um, opinberar jafnframt, að landsmenn geta sjálfir stjórnað genginu, og gengið þarf ekki að vera sveiflukennt.  Það, sem þarf að gera, er að ná jákvæðum viðskiptajöfnuði.  Við sjáum af myndinni, að í öllum löndum með jákvæðan viðskiptajöfnuð við útlönd hefur gengið styrkzt á undanförnu hálfa ári.  Það er ekkert land staðsett í 4. fjórðungi (að neðan hægra megin).  Ef það hefði gerzt hjá okkur, hefði verðbólgan orðið mun minni en ella og efnahagslægðin grynnri. 

Ályktunin, sem af þessu má draga, er sú, að náum við Íslendingar jákvæðum viðskiptajöfnuði, þá verður ekki hætta á gengisfalli, þó að á móti blási, eins og núna.  Með öðrum orðum er jákvæður viðskiptajöfnuður trygging fyrir stöðugleika.  Það er þess vegna eftir gríðarlega miklu að slæðast. 

Núverandi gengisfall krónunnar ásamt gríðarlegum hækkunum á verði eldsneytis, hrávörum og matvælum á alþjóðlegum mörkuðum hafa valdið mikilli verðbólgu á Íslandi.  Við verðum að ná henni niður fyrir markmið Seðlabanka Íslands til að verða samkeppnihæf við önnur lönd.  Það verður mikil þrautaganga.  Falsspámenn hafa haldið því að þjóðinni, að auðveldasta lausnin á vanda hennar sé að ganga í Evrópusambandið og að taka upp evru.  Að uppfylla öll fimm skilyrði Maastricht sáttmálans varðandi evrópska myntsamstarfið er mjög erfitt og mundi kosta miklar fórnir almennings. 

Markmið þessarar vefgreinar var að sýna fram á, að Íslendingum standa aðrir, nærtækari og miklu betri kostir til boða til að ná efnahagsstöðugleika en að ganga í ESB og fórna fullveldi Alþingis og Seðlabanka og verða þannig leiksoppar ráðamanna í útlöndum að nýju. 

Bjarni Jónsson,
verkfræðingur

(Birtist áður á bloggsíðu höfundar)


« Fyrri síða

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 331
  • Sl. viku: 499
  • Frá upphafi: 1116601

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 435
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband