Sunnudagur, 12. maí 2019
Skoðanakúgun í Samfylkingunni?
Fregnir berast af því að mismunandi skoðanir varðandi orkupakkann margfræga séu ekki liðnar í Samfylkingunni. Til er umræðuvefur á vegum flokksins þar sem ætlunin var að gefa flokksfólki kost á að skiptast á skoðunum og ræða málin. En ekki orkumálin.
Viðri einhver efasemdir um orkupakkann mætir viðkomandi þvílíkur fúkyrðaflaumur og skammir sem ekki er hægt að verjast með öðru en draga sig út úr umræðunni. Þetta kemur svo sem ekki á óvart miðað við það að til langs tíma hefur aðeins ein skoðun varðandi ESB verið liðin í flokknum. Það er þó athyglisvert að það séu talsverðar efasemdir meðal Samfylkingarfólks um orkupakkann, eins og komið hefur fram á umræðuvef flokksins og í því að fyrrverandi ráðherrar Samfylkingar og Alþýðuflokks vara við samþykkt orkupakkans.
Opin og frjáls skoðanaskipti eru forsenda virks lýðræðis. Það er því hægt að hafa samúð með Össuri Skarphéðinssyni þegar hann kvartar yfir skömmum sem hann hefur fengið yfir sig á netinu. Honum ætti að vera í lófa lagið að draga úr slíku í sínum heimahögum og gera umræðuna opnari og málefnalegri í Samfylkingunni með því að leyfa andstæðingum orkupakkans að tjá sig án þess að fá yfir sig ómálefnalegan fúkyrðaflaum.
Varðandi þessa umræðu er hins vegar spurningin hvort umræða af þessu tagi geti orðið opin og frjáls þegar annars vegar stenda einstaklingar í lítt skipulögðum hreyfingum og hins vegar sameinað ríkisvaldið hér á landi, stór hagsmunasamtök hér innanlands, ríkisstjórnir annarra landa og samband á borð við ESB. Miðað við þetta ójafna valdahlutfall í umræðunni er það stórfrétt að meirihluti landsmanna skuli vera andvígur orkupakkanum.
En ræður hér vilji lýðsins eða verða það innlendar og erlendar valdastofnanir sem keyra sinn vilja í gegn?
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 9. maí 2019
Friðarverðlaunahafi vill leggja niður Evrópusambandið
Það vekur athygli að Lech Walesa, verkalýðshetja, friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi forseti Póllands, leggur til að Evrópusambandið verði lagt niður. Hann segir það komið á leiðarenda, í öngstræti, og að Evrópubúar þurfi að byrja upp á nýtt. Þessi gamla kempa segir Evrópusambandið vera allt annað en lagt var upp með og að ósætti á milli ríkja sambandsins um leiðir sé varla yfirstíganlegt.
Ummæli Walesa vekja athygli, ekki hvað síst vegna þess að han hefur verið heldur hliðhollur ESB til þessa.
Þriðjudagur, 7. maí 2019
Kóngurinn í Háskólanum úthúðar evru-hugsjóninni
Það var feykilegur skammarblástur um evrusvæðið sem Benedikt Jóhannesson evruáhugamaður fékk yfir sig frá herra Mervyn King, lávarði og fyrrum seðlabankastjóra Bretlands, þegar Bensi forvitnaðist um skoðanir Kings um efnið á fundi sem samtök fjársparenda á Íslandi héldu með King lávarði í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag.
King sagði að evrusmiðirnir hefðu sýnt algert skeytingarleysi og glannaskap því margir þeirra hefðu viðurkennt að evrusvæðið í þeirri mynd sem til var stofnað gæti aldrei staðist án verulegra og reglubundinna erfiðleika.
King sagði að gjaldmiðilssamstarf af þessu tagi hefði hvergi staðist til lengdar í mannkynssögunni án sameiginlegra ríkisfjármála. Ýmsir evrusmiðir hefðu viðurkennt þetta en bættu því við að það væri ekkert vandamál því að í næstu fjármálakreppu myndu menn sjá að evran stæðist ekki án eins stórs ríkissjóðs og í þeirri kreppu myndu menn sannfærast um að stíga hið nauðsynlega skref til eins stórríkis. Nú er hins vegar liðinn um áratugur frá því að evrukreppan hóf innreið sína og þrautseigir þýskir og fleiri andstæðingar frekari samvinnu í ríkisfjármálum hefðu herst verulega í andstöðu sinni við sameiginleg ríkisfjármál. Því væri ekki séð fyrir endann á evruvandanum.
Bensa varð orða vant eftir þennan reiðilestur Kings um evruna.
Evrópumál | Breytt 8.5.2019 kl. 07:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 6. maí 2019
Ríkisstjórnin í orkufeni
Það verður ekki annað sagt en að ríkisstjórnin sé komin út í fen með svokallaðan orkupakka númer þrjú í fanginu. Þar situr hún klossföst á meðan sérfræðingar segja margs konar óvissu varðandi umræddan pakka og að lögfræðilega væri réttara að velja aðra leið en ríkisstjórnin kýs að fara.
Á fundi með utanríkismálanefnd Alþingis í morgun sagði Stefán Már Stefánsson, fyrrverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands að hin rétta lögfræðilega leið væri að hafna innleiðingu á þriðja orkupakkanum á þeim forsendum að óvíst sé hvort stjórnarskráin heimili það valdaframsal sem í honum felst. Í framhaldi af því yrði málinu vísað aftur til hinnar sameiginlegu EES-nefndar til nýrrar meðferðar.
Hvað vakir eiginlega fyrir stjórnarliðum og fleirum að keyra þetta mál svona áfram?
Lögfræðilega rétt að hafna innleiðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 2. maí 2019
Vilhjálmur kýrskýr
Vilhjálmur á Skaganum er kjarnyrtur sem fyrr. Hann segir m.a.
"...orkupakkarnir og raforkumálin eru stórmál sem við verðum að taka alvarlega og hafa skoðun á, en mín skoðun er hvellskýr; þetta mál á að fara í þjóðaatkvæðagreiðslu, enda eitt af stærstu hagsmunamálum sem þjóðin hefur staði frammi fyrir í mörg ár."
Í ræðunni sem hann hélt 1. maí er líka vísbending um hvernig hann muni verja atkvæði sínu. Hann segir nefnilega:
"Við sem þjóð verðum að huga vel að því að hafa ætíð full yfirráð yfir okkar mikilvægustu auðlindum og það er mitt mat að við megum aldrei framselja yfirráð á auðlindum okkar til annarra þjóða."
Ræðan í heild sinni:
http://vlfa.is/index.php/um-felagidh/annadh/frettir/item/2565-raedha-formanns-verkalydhsfelags-akraness-a-1-mai
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 14:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. maí 2019
Fulllveldi í orkumálum áréttað á 1. maí
Fjöldi fólks gekk niður Laugaveg í dag, 1. maí, til að lýsa yfir vilja sínum til að vald í orkumálum verði í höndum kjörinna fulltrúa á Íslandi, en ekki í höndum stofnana Evrópusambandsins
Við minnum alla á að skrifa undir á orkanokkar.is
Nýjustu færslur
- Norðmenn greina
- Barnaskapur
- Blóm í grjóthrúgu
- Á útlensku
- Annars hafið þið verra af
- Enn ríða hetjur um héruð
- Á hann að hafa skoðun á nokkrum sköpuðum hlut?
- Ætli hinir séu eins staðfastir?
- Meira lýðskrum
- Siggi flytur viðvörun frá Bretlandi
- Kannski er lýðskrumið ástæðan
- Varðmaður talar
- Blekið rennur hraðar, hraðar
- Undirgefni í von um þægilega innivinnu
- Ætli Baldur viti það?
Eldri færslur
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 206
- Sl. sólarhring: 214
- Sl. viku: 1231
- Frá upphafi: 1117491
Annað
- Innlit í dag: 184
- Innlit sl. viku: 1074
- Gestir í dag: 173
- IP-tölur í dag: 173
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar