Leita í fréttum mbl.is

Orkumál til umræðu hjá Heimssýn á fimmtudag

kathrine-kleveland680Aðalfundur Heimssýnar verður haldinn fimmtudaginn 1. mars næstkomandi á Hótel Sögu við Hagatorg. Hann hefst klukkan 17.15 með hefðbundinni aðalfundardagskrá, en klukkustund síðar, eða klukkan 18.15 hefst svo opinn fundur með Kathrine Kleveland, formanni Nei til Eu í Noregi. 

Kathrine mun einkum fjalla um innleiðingu orkulöggjafar ESB í EES-samninginn.  Fyrirhugað er að setja á stofn orkueftirlit sem lýtur tilskipunum ACER, Orkustofu ESB og ESA, með svipuðum hætti og fjármálaeftirlit lýtur tilskipunum frá Evrópusambandinu. 

Markmið ACER er að þróa sameiginlegan orkumarkað í ESB-ríkjunum þar sem meintir hagsmunir ESB-svæðisins ganga framar hagsmunum einstakra ríkja. Á það meðal annars við um raflínur og orkuflutning milli landa. Hvort tveggja mun lúta stjórn Evrópusambandsins. 

Kathrine mun einnig ræða andstöðu í Noregi við þessa þróun. Umræðan hér á landi er skammt á veg komin og því verður áhugavert að heyra af umræðunni í Noregi um þetta mál.

 

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Fundarsetning og kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla formanns
  3. Reikningar
  4. Umræður um skýrslur og reikninga
  5. Kosning formanns og varaformanns
  6. Kosning aðalstjórnar
  7. Önnur mál
    - EES-samningurinn.
  1. Opinn fundur með Kathrine Kleveland formanni Nei til EU í Noregi.
  2. Fundarslit

Félagar í Heimssýn eru hvattir til að fjölmenna.


Kathrine Kleveland á aðalfund Heimssýnar 1. mars

IslandNorgeAðalfundur Heimssýnar verður haldinn fimmtudaginn 1. mars næstkomandi á Hótel Sögu við Hagatorg. Hann hefst klukkan 17.15 með hefðbundinni aðalfundardagskrá, en klukkustund síðar, eða klukkan 18.15 hefst svo opinn fundur með Kathrine Kleveland, formanni Nei til Eu í Noregi. 

Dagskrá fundarins er svohljóðandi:

  1. Fundarsetning og kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla formanns
  3. Reikningar
  4. Umræður um skýrslur og reikninga
  5. Kosning formanns og varaformanns
  6. Kosning aðalstjórnar
  7. Önnur mál
    - EES-samningurinn.
  1. Opinn fundur með Kathrine Kleveland formanni Nei til EU í Noregi.
  2. Fundarslit

Félagar í Heimssýn eru hvattir til að fjölmenna.


Heimssýn í samstarfi við systursamtök í Noregi

IslandNorgeErna Bjarnadóttir, formaður Heimssýnar, var á ferð í Noregi nýverið og notaði þá tækifærið og hitti forystu Nei til EU í Noregi, þeirra á meðal Kathrine Kleveland, formann Nei til EU í Noregi.

Á vef Nei til EU er fjallað um heimsókn Ernu til systursamtakanna í Noregi. Þar kemur m.a. fram að Kathrine Kleveland, formaður Nei til EU í Noregi hefur þegið boð um að mæta á ársfund Heimssýnar sem verður fyrsta mars næstkomandi. 

Að undanförnu hefur æ meiri þungi í starfi samtakanna Nei til EU farið í að greina afleiðingar af EES-samningnum fyrir Noreg og gagnrýna þar ýmsa þætti, svo sem er varðar orkumál.

Sjá hér umfjöllun á vef Nei til EU um heimsókn Ernu.


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Feb. 2018
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 270
  • Sl. viku: 511
  • Frá upphafi: 1116613

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 447
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband