Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Viðskipti

Financial Times viðurkennir að rétt hafi verið fyrir Breta að halda pundinu

ktp_logoTil þessa hefur hið heimsþekkta viðskiptablað Financial Times verið mikill talsmaður þess að Bretar tækju upp evruna í staðinn fyrir breska pundið. En í leiðara blaðsins 24. október sl. kveður við annan tón. Þar viðurkennir leiðarahöfundur að Bretar hafi ekki beðið skaða af því að halda í pundið eins og blaðið hafði áður og ítrekað spáð ásamt ófáum fleirum. Á sama tíma hafi evran ekki verið að skila sér sem skyldi.

Heimildir:
Sterling sits pretty as volatility vanishes (Financial Times 24/10/06)
Sterling sits pretty as volatility vanishes (Open Europe 24/10/06)


Frakkar kvarta sáran undan háu gengi evrunnar

dominique_de_villepinFrönsk stjórnvöld kvarta þessa dagana mjög undan því að sterk staða evrunnar sé farin að skaða frönsk útflutningsfyrirtæki. Þetta kom m.a. fram hjá Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, á fundi með undirverktökum hjá franska flugvélaframleiðandanum Airbus um miðjan síðasta mánuð. Airbus hefur komið hvað verst út úr háu gengi evrunnar. Skuldir fyrirtækisins jukust um nær 200 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi þessa árs sem er afleiðing þess að flugvélar þess eru seldar í dollurum á sama tíma og laun eru greidd í evrum.

Reglulega kemur upp sú staða að aðildarríki evrusvæðisins kvarti yfir of miklum sveiflum í gengi evrunnar, annað hvort að staða hennar sé of sterk eða of veik, enda eru allir gjaldmiðlar heimsins háðir sveiflum þó sumir virðast halda að það sé engöngu bundið við íslensku krónuna.

Heimild:
France calls for powers to stem rise of the euro (Telegraph 15/11/06)


Þýskt viðskiptalíf kallar eftir minni skriffinsku hjá ESB

jurgen_thumannÁ dögunum greindi franska viðskiptablaðið Les Echos frá því að forsetar samtaka þýskra iðnfyrirtækja (Bundesverband der Deutschen Industrie) og samtaka þýskra atvinnurekenda (Bundesvereinigung der Deutschen Arbeitgeberverbände) hafa gefið út leiðbeiningarrit fyrir þýsk stjórnvöld í tilefni af því að þau taka við forsætinu innan Evrópusambandinu um áramótin. Hvetja þeir þýsk stjórnvöld til að gera allt til að auka hagvöxt innan sambandsins.

Forseti samtaka þýskra iðnfyrirtækja, Jürgen Thumann, sagði að aðildarríki Evrópusambandsins væru að "kremjast undir lamandi skriffinsku" í Brussel og að skriffinskan "flækti daglegt líf evrópskra fyrirtækja." Hann sagði brýnt að dregið yrði úr skriffinsku innan sambandsins um a.m.k. 25%.


Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 14
  • Sl. sólarhring: 115
  • Sl. viku: 920
  • Frá upphafi: 1117692

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 821
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband