Leita í fréttum mbl.is

Ólafur Ragnar: fullur réttur Íslands í samfélagi ţjóđa

Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýđveldisins flutti ţjóđhátíđarrćđu ársins á Hrafnseyri viđ Arnarfjörđ, fćđingarstađ Jóns Sigurđssonar. Rćđan er kröftug áminning um hvers virđi fullveldiđ er og ađ ekki megi hrófla viđ undirstöđum ţess. Forsetinn er ćttađur af Vestfjörđum líkt og Jón Sigurđsson og ţekkir af eigin raun brauđstrit alţýđufólks til sjávar og sveita sem er baksviđ ţjóđmálabaráttunnar á síđustu tveim öldum. Í framhaldi segir Ólafur Ragnar

Ţegar Jón Sigurđsson ritađi Hugvekju til Íslendinga mótađi ţessi heimanmundur ásamt lćrdómi og reynslu bođskapinn, bjargiđ sem baráttan byggđist á, áherslur um ţjóđarvitund og sjálfstćđisţrá. Ţetta voru burđarásar sigranna sem síđar unnust, sumir löngu eftir ađ Jón var allur, hugsjónir í brjóstum fólksins sem safnađist til Hrafnseyrar 17. júní 1911 og 1944, leiđarljós í uppbyggingu samfélags sem viđ hlutum í arf, undirstöđur ađ traustum sessi Íslands í veröldinni; sjálfstćđisţrá og ţjóđarvitund.

Nokkru síđar

Sjálfstćđisţrá og ţjóđarvitund skópu líka sigrana í glímunni um landhelgina, veittu kynslóđunum sem okkur ólu kraft til ađ umbylta samfélagi fátćktar, gera menntun og velferđ ađ réttindum allra, efla atvinnugreinar sem skapa ungu fólki fjölda nýrra tćkifćra – allt árangur sem á rćtur í hugsjónum Jóns Sigurđssonar og kynslóđanna sem fögnuđu 17. júní 1911 og 1944.

Lokaorđin eru bein tilvísun í umsókn Samfylkingarinnar um ađild Íslands ađ Evrópusambandinu

Okkur ber ađ vega slíkar ákvarđanir á vogarskálum Jóns Sigurđssonar, bođskapar hans, ćviverks og stefnu – og einnig á vogarskálum fólksins sem međ einurđ og trúmennsku fćrđi okkur fullan rétt í samfélagi ţjóđa heims, fólksins sem fyrir hundrađ árum og á sigurstundum síđustu aldar var á ţessum sögufrćga stađ.

Umorđun á sömu hugsun: drögum umsóknina tilbaka.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 28
  • Sl. sólarhring: 52
  • Sl. viku: 934
  • Frá upphafi: 1117706

Annađ

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 833
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband