Leita í fréttum mbl.is

Ragnar Arnalds: Össur blekkir auðtrúa sálir

Það var ósvífin blekking sem Össur utanríkisráðherra viðhafði þegar hann fullyrti blákalt í Silfri Egils 22. maí s.l. að Íslendingar gætu tekið upp evru þremur árum eftir aðild. Fullyrðingin er einkar digurbarkaleg þegar haft er í huga að íslenskt hagkerfi uppfyllir nú aðeins eitt af skilyrðunum fimm sem sett voru í Maastrichtsáttmálanum og Íslendingar hafa ALDREI uppfyllt öll skilyrðin á sama tíma eins og þó er gerð krafa um. Afar ólíklegt er að það verði næsta áratuginn.

Síðan er það allt önnur spurning hvort yfirleitt sé nokkur glóra í því fyrir Íslendinga að taka upp evru eftir þá skelfilegu reynslu sem mörg smærri ríkin á evrusvæðinu hafa fengið af myntsamstarfinu nú í seinni tíð.  Evrópski seðlabankinn hefur ákveðið með stuðningi ESB að Írar, Portúgalar og Grikkir megi ekki fallast á gjaldþrot einkabanka, þótt þeim sé í raun ekki viðbjargandi, heldur verði ríkissjóðir landanna að þiggja gríðarleg lán á háum vöxtum til að halda bönkunum á lífi. Ábyrgðin er því að fullu lögð á herðar skattgreiðenda komandi kynslóða í viðkomandi ríkjum.

Hér á landi hafa menn deilt hart um það hvort lágmarks innistæðutryggingar  Icesave reikninga Landsbankans  ættu að lenda á skattgreiðendum. Þær voru þó aðeins brot af allri skuldabyrðinni sem íslensku bankarnir þrír voru ábyrgir fyrir. En í Grikklandi, Portúgal og á Írlandi eiga skattgreiðendur framtíðarinnar að taka á sig alla skuldasúpuna. Og hvers vegna? Til að þýskir og franskir lánveitendur grísku, portúgölsku og írsku bankanna hafi allt sitt á þurru.

Kjósendur á Íslandi hafa hafnað því tvívegis með yfirgnæfandi meiri hluta að skattgreiðendur framtíðarinnar taki afglöp einkabanka á sínar herðar meira en þegar er orðið. Þeir munu enn síður sætta sig við að taka upp mynt ESB sem skuldbindur skattgreiðendur komandi kynslóða til að ábyrgjast afglöp einkabanka.

Evran hefur verið helsta tálbeita ESB-sinna frá því að umsókn um aðild var samþykkt. Enn sem fyrr eru engar líkur á að Íslendingar geti tekið hana upp sem mynt á næstu árum þótt þeir vildu. En þar á ofan er orðið ljóst að evrunni fylgja þess háttar skuldbindingar sem Íslendingar geta og munu aldrei fallast á. Ein helsta forsendan fyrir aðildarumsókn að ESB er því brostin og þegar af þeirri ástæðu er full ástæða til að afturkalla umsóknina.

Nýlega svaraði Árni Páll viðskiptaráðherra fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur um það hvort Ísland uppfyllti skilyrðin fyrir upptöku evru. Árni Páll neyddist til að játa að Ísland uppfylli aðeins eitt skilyrðið, þ.e. hvað varðar langtímavexti, en gefur þó í skyn að á þessu ári náist líklega að uppfylla verðbólguskilyrðið sem segir til um að verðbólga sé ekki meiri en 1,5 prósentustigum yfir meðaltali verðbólgu í þeim þremur aðildarríkjum ESB þar sem hún mældist minnst, en sú tala er 1,63%. En þar sem spáð sé að verðbólga á Íslandi árið 2011 verði 3%, séu líklegt að þetta skilyrði verði þó uppfyllt á árinu.

Fátt bendir til þess að nokkuð sé að marka þetta svar Árna Páls. Verðbólga á Íslandi fór þegar í maí s.l. upp í 3,4 % og fyrirsjáanlegt var að hún færi yfir 4%. Þetta hlýtur ráðherra efnahagsmála að hafa verið ljóst þegar hann svaraði fyrirspurninni 10. júní s.l. Greiningardeild Arion banka spáir nú 4,3% verðbólgu strax í júní. Hér er því bersýnilega á ferðinni enn ein blekkingin um möguleikann á upptöku evru, óskabarni og helstu tálbeitu ESB-sinna.

Ragnar Arnalds

(Tekið héðan.)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 175
  • Sl. viku: 584
  • Frá upphafi: 1116777

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 505
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband