Leita í fréttum mbl.is

Prófessor gerir könnun í þágu ESB-aðildar

ESB-sinnar lærðu það snemma að í áróðrinum ber fremur að tala um ,,viðræður“ við Evrópusambandið en aðildarumsókn,- og hvað þá aðlögun. Fólk er hvatt til að skoða hvað er „pakkanum.” Viðræður er saklaust orðalag og gefur til kynna að engar skuldbindingar fylgi. En það er öðru nær.

Ríki sem sækir um aðild að Evrópusambandinu fer inn í aðlögunarferli þar sem umsóknarríki tekur jafnt og þétt upp lög og reglugerðir Evrópusambandsins. Ráðamenn í Brussel gera ráð fyrir að umsóknarríki hafi gert upp hug sinn og vilji inn í félagsskapinn. Evrópusambandið býður ekki upp á neinar óskuldbindandi viðræður. Orðrétt segir Evrópusambandið

First, it is important to underline that the term "negotiation" can be misleading. Accession negotiations focus on the conditions and timing of the candidate's adoption, implementation and application of EU rules - some 90,000 pages of them. And these rules (also known as "acquis", French for "that which has been agreed") are not negotiable.

Víkur þá sögunni að Rúnari Vilhjálmssyni prófessor sem keypti könnun af Félagsvísindastofnun til að kanna afstöðu þjóðarinnar til umsóknarferlisins. Rúnar gefur sig út fyrir að vera áhugamaður um opinbera umræðu um Evrópumál og hefur gagnrýnt fyrri kannanir.

Hvaða spurningu kaupir Rúnar af Félagsvísindastofnun, líklega fyrir um 150 - 200 þús. kr? Jú, hún er þessi: „Hver er afstaða þín til aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins? Vilt þú halda aðildarviðræðunum áfram eða hætta þeim?”

Til að stimpla það inn í huga þeirra sem svara eru búnar til tvær spurningar þar ,,aðildarviðræður“ koma fram og þar með er áfram spunnin sá þráður að við séum í viðræðum til að sjá hvað er í boði.

Hlutlægari mæling á afstöðu þjóðarinnar til núverandi stöðu málefna Íslands og Evrópusambandsins er að spyrja um afstöðuna til umsóknarinnar. Capacent Gallup spurði fyrir Heimssýn eftirfarandi spurningar ,,Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú að Ísland dragi til baka umsókn sína um aðild að Evrópusambandinu?“

Niðurstaðan var eftirfarandi

51,0 prósent sögðust hlynnt því að umsóknin yrði dregin tilbaka.

10,5 prósent sögðust hvorki hlynnt né andvíg

38,5 prósent sögðust andvíg því að umsóknin yrði dregin tilbaka.

Könnunin var gerð 16. til 23 júní. Fjöldi svarenda var 820.


mbl.is Helmingur vill viðræður áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 84
  • Sl. sólarhring: 283
  • Sl. viku: 2329
  • Frá upphafi: 1112114

Annað

  • Innlit í dag: 69
  • Innlit sl. viku: 2080
  • Gestir í dag: 69
  • IP-tölur í dag: 67

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband