Leita í fréttum mbl.is

Evrukrísan hefur ekki verið leyst

Hér greinir yfirmaður bankaeftirlits í Þýskalandi frá því að evrukrísan sé enn til staðar. Skuldir opinberra aðila eru stærsta ógnin við efnahagsbata. Peningaprentun Seðlabanka Evrópu bætir stöðu banka í álfunni en veldur ríkjunum vanda. Svo segir mbl.is um þetta:

„Skuldakrísan hefur alls ekki verið leyst. Evrópski seðlabankinn dældi fé inn í kerfið en það þýðir ekki sjálfkrafa að það sé gjaldfært,“ segir Roeseler. Hann segir að umrætt fé, ódýr lán til banka á evrusvæðinu upp á 1.000 milljarða evra, hafi leitt til þess að bankarnir hefðu mikið af lausafé en þrátt fyrir það vildu þeir enn frekar geyma það hjá Evrópska seðlabankanum en hætta á að lána það til hver annars vegna viðvarandi vantrausts.

„Vandamálið liggur ekki aðallega hjá bönkunum heldur ríkjunum. Það eru enn áhyggjur til staðar af greiðslufærni ríkja [innan evrusvæðisins] og hvað gerist ef ríki lendir í vandræðum,“ segir hann. Forgangsmál sé að leysa skuldavanda ríkjanna en hann hafi hins vegar áhyggjur af því að fjármagnið frá Evrópska seðlabankanum dragi úr þrýstingnum á ríkisstjórnir ríkjanna að gera það.

Roeseler segir að ein áhættan í stöðunni sé að þetta mikla lausafé kunni að leiða til nýrrar fjármálabólu. Það sem verra væri þá væri engin áætlun til staðar um það hvert ætti að beina öllu þessu fé. „Ódýr lán Evrópska seðlabankans voru meðal sem hjálpaði sjúklingnum að ná sér en þau hafa líka skapað fíkn. Við þurfum meðferð sem læknar fíknina án þess að drepa sjúklinginn.“

 


mbl.is „Skuldakrísan hefur ekki verið leyst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara pissa meira í Evruskóinn, Seðlabanki Evrópu má ekki prenta fleiri evrur svo hann fer bara nýju leiðina og býr til nýjar evrur í tölvunum og lánar þær hingað og þangað. Vúhú - engar nýjar evrur og allir glaðir!

Gulli (IP-tala skráð) 16.2.2013 kl. 11:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 117
  • Sl. sólarhring: 132
  • Sl. viku: 696
  • Frá upphafi: 1116889

Annað

  • Innlit í dag: 112
  • Innlit sl. viku: 613
  • Gestir í dag: 108
  • IP-tölur í dag: 107

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband