Leita í fréttum mbl.is

Evran (EMU) er stjórnlaust rekald að sögn finnsks prófessors

euromistakesGjaldmiðilsbandalag Evrópu, EMU, er eins og risadallur, sem er með marga smíðagalla og lætur illa að stjórn. Áhöfnin er ósamstæð og óratíma tekur að taka ákvörðun um stefnuna. Það er enn hætta á að skipið láti ekki að stjórn, enda marar það í hálfu kafi. Farþegarnir eru neðan þilja, oft lítt meðvitaðir um ástandið að öðru leyti en því að þeir hafa það sjálfir margir ansi skítt.  

En það er eins gott fyrir áhöfn og farþega að þrauka. Yfirgefi þeir skipið drukkna þeir. Eina ráðið er að reyna að koma dallinum almennilega á flot, hversu langan tíma sem það tekur, því sökkvi hann, þá farast allir með.

 

Korkman prófessor kynnir galla evrunnar

Eitthvað í þessa veru lýsti doktor Sixten Korkman, prófessor í Finnlandi, og fyrrum háttsettur embættismaður ESB, stöðunni með evruna á fundi sem haldinn var í Háskóla Íslands í dag.

Korkman sagði að evruþjóðirnar væru enn í standandi vandræðum (we are still in a mess, sagði hann). Það er kreppa í ríkjunum í suðri. Spenna ríkir á milli suðurs og norðurs. Það er efast um réttmæti aðgerða Seðlabanka Evrópu. Bretar draga í efa ágæti aðildar að ESB. Ríkin eru að gliðna í sundur vegna mismunandi hagþróunar.

Evran krafa Frakka til að koma í veg fyrir of sterkt Þýskaland!

Korkman sagði að evran hefði aldrei komið til sögunnar ef þýsku ríkin hefðu ekki sameinast. Evrunni væri ætlað að koma í veg fyrir að of sterkt Þýskaland ógnaði stöðugleika í Evrópu. Það hefði verið krafa frá Frökkum.  Eins og annað í Evrópusamstarfinu endurspeglaði evran stöðu Frakka og Þjóðverja. Þjóðirnar væru mjög ólíkar að menningu og vinnuaðferðum. Þess vegna færi mikil orka í Evrópusamstarfinu í að sætta mismunandi sjónarmið Þjóðverja og Frakka. Þegar það væri í höfn þyrftu aðrar þjóðir að sætta sig við þá niðurstöðu. Frakkar og Þjóðverjar réðu öllu.

Ótal vandamál tengd evrunni

Í máli Korkmans kom fram að vegferð evrunnar hefði verið þyrnum stráð þótt forystumenn evruríkjanna kepptust við að óska sjálfum sér til hamingju fyrstu árin. Vandamálin sem Sixten týndi til tengdust skuldasöfnun hins opinbera í evruríkjunum, óstöðugleiki í fjármálakerfinu og núningur á milli þjóðlegra og yfirþjóðlegra stofnana. Önnur atriði sem hann nefndi tengdust m.a. óskipulagi við björgunaraðgerðir banka og ríkissjóða, hagvaxtar- og stöðugleikasáttmálanum og því sem hann kallaði að ríkin í suðri hefðu „misnotað“ sér lækkaða vexti eftir að evran var tekin upp – og safnað auknum skuldum fyrir vikið.

Reyndar viðurkenndi Korkman líka að myntbandalagið byggi við innbyggðan misvægisvanda þrátt fyrir sameiginlega peningastefnu sem kæmi fram í því að sum ríki gætu haldið verðbólgu niðri, svo sem Þýskaland, en önnur ekki, einkum ríkin í suðri. Fyrir vikið væru framleiðsluvörur Þýskalands ódýrari en hinna ríkjanna, samkeppnisstaða Þýskalands því betri og viðskiptaafgangur hjá Þjóðverjum á meðan viðskiptahalli og skuldasöfnun einkenndi hin ríkin.

Björgunaraðgerðir bara á teikniborðinu á meðan húsið brennur

Korkman nefndi ýmis atriði sem ætlað var að lappa upp á þetta rekald sem Gjaldmiðilsbandalagið er. Þar á meðal nefndi hann bankasamband (sem Bretar og Svíar vilja helst ekki sjá), aukna samvinnu í ríkisfjármálum og svo allsherjar pólitíska sameiningu.

Sixten þessi Korkman virtist ekki vera neitt yfir sig hrifinn af myntbandalaginu. Hann sagði stöðuna hins vegar vera þannig að það væri annað hvort að duga eða drepast. Það væri ekki aftur snúið því ef menn gæfust upp á evrunni myndi það hafa alveg hrikalegar afleiðingar í för með sér í evruríkjunum.

Evruríkin eru sem sagt á lítilli siglingu, marandi að hálfu í kafi. Þau geta kastað sér frá borði – og þá eru allir í hættu. Ef allir yfirgefa skipið yrðu flestir hvort sem er í mikilli hættu. Eina leiðin er að þrauka í þessu illa smíðuðu og illa þefjandii rekaldi og vona að einhvern tímann í ófyrirsjáanlegri framtíð muni birta til.

Hafa ESB- og evrusinnarnir hér á landi hugsað dæmið til enda?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Forvitnisspurning - hver skrifaði þessa samantekt?

TJ (IP-tala skráð) 18.2.2013 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 176
  • Sl. viku: 587
  • Frá upphafi: 1116780

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 508
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband