Leita í fréttum mbl.is

Ólga í Ţýskalandi vegna vaxtaákvörđunar Seđlabanka Evrópu

merkel_lettaŢađ eru ekki allir kátir međ síđustu ákvörđun Seđlabanka Evrópu. Ţjóđverjar eru nú alveg sjóđbullandi vitlausir yfir ţví ađ hún muni stuđla ađ bólumyndun í Ţýskalandi.

Seđlabanki Evrópu lćkkađi stýrivexti (vextir á lánum seđlabankans til annarra banka) í fyrri viku um 0,25 prósentur og verđa ţá vextirnir í 0,25 prósentum. Ţetta var önnur vaxtalćkkun bankans í ár og Mario Draghi seđlabankastjóri í Evrópu gerir ráđ fyrir ađ vextirnir munu haldast lágir á nćstunni og jafnvel lćkka enn frekar. Fyrir vikiđ féll evran á gjaldeyrismörkuđum.

Ţetta segir okkur ađeins ţađ ađ evrulöndin eru enn ađ basla í efnahagssamdrćttinum og atvinnuleysi. Verđbólgan er líka allt of lítil. Mćld verđbólga er ađeins 0,7 prósent, sem segir okkur ađ undirliggjandi verđbólga - sú sem endurspeglar í raun verđ á öllum keyptum vörum og ţjónustu - er líklega undir 0% (en ţessum tölum má fletta upp). Í öllu falli er efnahagslífiđ í Evrópu almennt í frosti.

Grikkir, Spánverjar og Ítalir fögnuđu ţessari ákvörđun.

Ţjóđverjar eru hins vegar verulega óhressir og einn af forsvarsmönnum Kristilegra demókrata, Michael Meister, segir ađ nú sé veruleg hćtta á eignabólumyndun í Ţýskalandi. Vextir séu ţađ lágir ađ eftir spurn eftir eignum aukist og verđ hćkki. Ţetta sé verulega hćttulegt fyrir ţýskan almenning ţví bólan gćti sprungiđ fyrr en varđi.

En  - bíđiđ nú viđ? Var ekki einhver sem sagđi ađ ţetta vćri sameiginlegt gjaldmiđilssvćđi ţar sem ţađ hentađi ađ hafa sömu peningastefnu og vaxtastefnu?

Viđbrögđin viđ síđustu vaxtaákvörđun Seđlabanka Evrópu sýna ađ evrusvćđiđ er ekki hagkvćmt gjaldmiđilssvćđi.

Ţađ er bannađ samkvćmt reglum ESB ađ greina frá ţví hvernig stjórnendur bankans greiddu atkvćđi um ţessa ákvörđun. Reuters telur sig ţó vita ađ stjóri ţýska seđlabankans, Jens Weidmann, hafi veriđ í hópi um fjórđungs af fulltrúum í stjórninni sem greiddi atkvćđi gegn ţessari vaxtaákvörđun.

Auđvitađ mćlir međaltalsverđbólguţróun á evrusvćđinu međ ţessari vaxtaákvörđun. Máliđ er bara ađ međaltaliđ hentar löndunum misvel. Í ţetta sinn hentar ákvörđunin Ţjóđverjum afskaplega illa - og getur stuđlađ ađ óstöđugleika í fjármálum í Ţýskalandi, en ákvörđunin hentar hins vegar skuldaţjáđum löndum á suđurjađri evrusvćđisins ákaflega vel.

Hver er svo lćrdómurinn af ţessu fyrir Íslendinga?

Dćmi hver fyrir sig (en til upprifjunar skal minnt á ađ hagsveiflan á Íslandi hefur aldrei veriđ í takti viđ međaltaliđ á evrusvćđinu).  

(Ofanritađ er m.a. sótt í Europaportalen.se)

Sjá einnig međfylgjandi skýringarmynd sem sýnir glögglega ójafnvćgiđ í ESB - en hún sýnir vöruskiptahalla og vöruskiptaafgang í löndunum áriđ 1999, ţegar veriđ er ađ taka evruna upp sem reiknieiningu og 2005 ţegar evran hefur veriđ notuđ í nokkur ár. Myndin sýnir ađ vandinn vex eftir ţví sem á líđur:

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 141
  • Sl. viku: 1041
  • Frá upphafi: 1117301

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 904
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband