Leita í fréttum mbl.is

Evru-atvinnuleysi mótmælt á 1. maí á Ítalíu

Verkamenn á Ítalíu mótmæla á hátíðisdegi verkalýðsins atvinnuleysi sem er afleiðing evrunnar. Á Ítalíu er atvinnuleysið tæplega 13 prósent. Ítalía, Spánn, Grikkland, Portúgal og fleiri ríki hafa farið halloka í samkeppni við Þýskaland og önnur ríki á kjarnasvæði evrunnar.

Fyrir vikið hafa jaðarríkin safnað skuldum vegna viðskiptahalla. Þessu hefur fylgt samdráttur í tekjum og niðurskurður í þjónustu hins opinbera sem hefur aukið enn frekar á atvinnuleysið. 

Verkalýðsforystan á Íslandi lokar augunum fyrir slæmum afleiðingum evrunnar fyrir þorra Evrópubúa.

Verkalýðsforystan á Íslandi  lifir í sínum eigin heimi.


mbl.is Atvinnuleysi mótmælt á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá, "hundruð mót­mæl­enda í borg­inni Túrín á Ítal­íu í dag en mót­mæl­end­ur kröfðust þess að unnið yrði bug á miklu at­vinnu­leysi í land­inu og aðhaldsaðgerðum hætt" ---  En það er ekkert minnst á ESB eða Evruna í fréttinni sem pistlahöfundur gefur í skyn að hann sé að vitna í. Og pistlahöfundur lætur hjá líðast að minnast á það að svona atvinnuleysi var ekki óþekkt í þessum löndum fyrir daga ESB og Evru.

Ufsi (IP-tala skráð) 1.5.2014 kl. 13:59

2 Smámynd:   Heimssýn

Það er vel þekkt staðreynd að evrópskur vinnumarkaður hentar evrunni illa vegna stífra regla og stirðleika á evrópskum markaði. Margir hagfræðingar hafa ritað um þetta. Olivier Blanchard minnist meðal annars skýringuna á hærra atvinnuleysi í ESB löndum en víða annars staðar hér:

Eurosclerosis:

due to labour market rigidites the

natural (equilibrium) unemployment rate rises

https://miamieuc.fiu.edu/events/general/2013/meuce-euro-challenge-3rd-teacher-workshop-at-the-federal-reserve-bank-miami-fiu-1/1362413357_causes_eu_unemployment.pdf

Heimssýn, 1.5.2014 kl. 16:12

3 identicon

Það er satt, hærri laun, stöðugt verðlag og stabíll gjaldmiðill sem stjórnvöld geta ekki fiktað í getur kostað aukið atvinnuleysi. Við höfum krónuna og með henni höfum við verslað okkur minna atvinnuleysi. Það kostar okkur bara lægri laun, kaupmáttarrýrnun, atgerfisflótta og verðbólgu. Nokkuð sem Evruríkin hafa ekki átt kost á að bjóða sínum þegnum eins ríkulega.

Við Íslendingar leggjum áherslu á lítið atvinnuleysi og erum tilbúin til að sætta okkur við helmingi lægri laun og lægra menntunarstig til að viðhalda fullri atvinnuþátttöku og stjórn á eigin gjaldmiðli.

Ufsi (IP-tala skráð) 1.5.2014 kl. 17:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 184
  • Sl. viku: 598
  • Frá upphafi: 1116791

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 518
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband