Leita í fréttum mbl.is

Rafræn skilríki og náttúrupassi að kröfu EES!

regulationsSvo virðist af fréttum að dæma að krafan um rafræn skilríki og náttúrupassa sé tilkomin að miklu leyti vegna þeirra kvaða sem EES-samningurinn setur á okkur. Það er talsverð andstaða í þjóðfélaginu, meira að segja í Samfylkingunni, gegn náttúrupassa. Eins er talsverður urgur vegna rafrænna skilríkja.

Erum við að kaupa köttinn í sekknum með EES-samningnum?

Sjá hér meðal annars umfjöllun Morgunblaðsins um rafræn skilríki. Þar segir m.a.:

Rafræn skilríki eru ekki ný af nálinni, verkefnið er orðið fimmtán ára gamalt. Rótin er lög um rafrænar undirskriftir sem sett voru á Evrópuþinginu árið 1999 og í framhaldinu var tilskipun tekin upp á Íslandi. Evróputilskipunin var uppfærð á þessu ári og unnið er að innleiðingu hennar hérlendis um þessar mundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Geirsson

Hvernig væri að hætta þessu mjálmi og segja hlutina hreint úr.

Það var enginn köttur keyptur þegar EES samningurinn var samþykktur.  Samningurinn er hægfara aðlögun að Evrópusambandinu.

Og EES samningurinn kostaði þjóðina næstum því fjárhagslegt sjálfstæði sitt.  Fjármálabólan, og síðan fjármálahrunið er bein afleiðing af reglum Evrópusambandsins um frjálst flæði fjármagns.

Reglufarganið sem slíkt er síðan hengingaról á alla nýsköpun og grósku, býr til óheyrilegan milliliðakostnað, sem ekki sér fyrir endann á.  Því alltaf koma nýjar og nýjar samræmingar reglur.

Það er hláleg andstaða við Evrópusambandið að þora ekki að segja það hreint út að EES samningurinn er óþurftarsamningur sem aldrei hefði átt að koma til.

Svisslendingar fundu flöt á samstarfi við Evrópusambandið, þeirra leið hefðum við átt að velja.

Ég er viss um að hér ættu fleiri leið um, ef skrifarar töluðu mannamál, ekki kattamál, að þeir þyrðu að segja sannleikannt, í stað þess að stunda innri ritskoðun af ótta við að styggja hálfvolga Evrópusinna fjórflokksins, sem einmitt mæra EES samninginn því hann er beina leiðin í sambandið.

Hægfara en án hindrana.

Vonandi er Heimssýn ekki sama sinnis.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 13.12.2014 kl. 15:30

2 Smámynd: Ívar Pálsson

Ómar, framkvæmd EES- samningsins var eftir þörfum Íslands vel framan af og jafnan varast að taka upp nokkuð það sem skaðað gæti hagsmuni okkar. Túlkun samningsins var þröng, fyrir okkur alveg eins og mótaðilarnir hafa það fyrir sig. En um árin 2005- 2006 fóru Evrópusinnar allra flokka að ýta tilskipanaflæði ESB að þinginu, sem jafnan hafði verið hafnað áður. Tilgangurinn var sá að undirbúa jarðveginn fyrir inngöngu. Jóhönnustjórnin fór síðan alveg með þetta og opnaði gáttirnar, þrátt fyrir andmæli þeirra sem til þekktu. 

Við getum enn stöðvað þessa vitleysu, dregið umsóknina til baka og farið í það að vinda ofan af tilskipanaæði síðustu ára.

Ívar Pálsson, 14.12.2014 kl. 09:40

3 identicon

Tilskipun 1999/93/EC var innleidd með lögum 28/2001 þau kveða einungis á um réttaráhrif rafræna undirskrifta.

Grímur (IP-tala skráð) 14.12.2014 kl. 10:23

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Ívar.

Ég held reyndar að fjármagnið hafi mun fyrr hafið niðurbrot hinna innlendu varna.  Minnir að fjölgun klögumála til ESA hafi lotið veldisaukningu.

Og síðan er hitt eiginlega óhjákvæmilegt.

Geri ekki ágreining um að EES samningurinn hafi ýtt undir nauðsynlegar breytingar hér á landi, en til lengri tíma litið  er hann skaðlegur.  Fjórfrelsið er skaðlegt minni einingum, veldisaukning reglubálka er skaðleg öllum lifandi samfélögum.

Svo ég sæki þekkta samsvörun, áveitur Sovétsins í Mið Asíu, skiluðu uppskeru á ógrónu landi, en aðeins fyrstu árin.  Svo safnaðist salt fyrir í jarðveginum, og uppskeran minnkaði með hverju árinu.  Síðan fór allt að fjúka, og í dag er talað um hamfarir.

Svisslendingar náðu uppskerunni, en sátu ekki upp með skaðann.

ESB andstæðingar eiga að feisa raunveruleikann, og hafa kjark til að endurskoða fyrri afstöðu.

Hitt er samdaunun.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 14.12.2014 kl. 12:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 44
  • Sl. sólarhring: 119
  • Sl. viku: 2156
  • Frá upphafi: 1112198

Annað

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 1935
  • Gestir í dag: 26
  • IP-tölur í dag: 26

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband