Leita í fréttum mbl.is

Heimssýn biður um skýringar

Heimssýn hefur sent dómsmálaráðherra bréf. Þar segir svo:

 

Ágæti ráðherra

Athygli hefur vakið að lögreglubílar á Íslandi eru merktir fána erlends ríkjasambands sem Ísland á enga aðild að.  Af því tilefni óskar Heimssýn góðfúslega að fá svör dómsmálaráðherra við eftirfarandi spurningum:

  1. Er íslenska lögreglan, eða búnaður hennar, að einhverju leyti fjármögnuð af öðrum en íslenska ríkinu og þá jafnvel erlendum aðila? Tengjast slíkar greiðslur fána Evrópusambandsins á lögreglubílum?  Telur ráðherra viðeigandi að lögreglan sé fjármögnuð með öðrum hætti en með fé frá opinberum aðilum á Íslandi?

 

  1. Hefur öðrum erlendum ríkjum eða ríkjasamböndum, íslenskum eða erlendum einstaklingum eða lögaðilum verið boðið að auglýsa á íslenskum lögreglubílum? Ef svo er, hverjir hafa fengið slík boð og á hvaða kjörum?

 

  1. Lítur dómsmálaráðherra svo á, að vald það sem lögreglunni er fengið sé að einhverju leyti upprunnið annars staðar en hjá íslenskum löggjafa sem kjörinn er af íslensku þjóðinni?

 

  1. Má líta svo á að fánar Evrópusambandsins á lögreglubílum séu birtingarmynd þess að yfirvöld lögreglumála telji sig að einhverju leyti þjóna Evrópusambandsins, en ekki þjóna Íslendinga og íslenska ríkisins?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Ég vona sannarlega að þið birtið svar dómsmálaráðherra.

Það er annars ógeðslegt að fylgjast með þessari vaxandi innlimun eða landsölu og reyndar allri bölvaðri spillingunni, sem fer hér fram nánast fyrir opnum tjöldum - sorglegt.

P.S.

Ég get mér til að þessi beiðni ykkar þyki ekki svara verð, en bíð þó spenntur.

Jónatan Karlsson, 1.6.2020 kl. 10:33

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég er sárreið yfir þessari ósvífni og bíð líka eftir svari sem fyrst.

Helga Kristjánsdóttir, 1.6.2020 kl. 15:16

3 Smámynd: Halldór Jónsson

    • Má líta svo á að fánar Evrópusambandsins á lögreglubílum séu birtingarmynd þess að yfirvöld lögreglumála telji sig að einhverju leyti þjóna Evrópusambandsins, en ekki þjóna Íslendinga og íslenska ríkisins?

     

    Halldór Jónsson, 2.6.2020 kl. 01:53

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Heimssýn

    Heimssýn

    hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

     

    Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


    Nánar um Heimssýn

    Vertu með!

    Frjáls framlög

    Eldri færslur

    Apríl 2024
    S M Þ M F F L
      1 2 3 4 5 6
    7 8 9 10 11 12 13
    14 15 16 17 18 19 20
    21 22 23 24 25 26 27
    28 29 30        

    Heimsóknir

    Flettingar

    • Í dag (19.4.): 114
    • Sl. sólarhring: 144
    • Sl. viku: 693
    • Frá upphafi: 1116886

    Annað

    • Innlit í dag: 109
    • Innlit sl. viku: 610
    • Gestir í dag: 106
    • IP-tölur í dag: 105

    Uppfært á 3 mín. fresti.
    Skýringar

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband