Leita í fréttum mbl.is

Þingmaður veit ekki hver er best til þess fallinn að stjórna Íslandi

heimssyn-mogensen

Þingmaður Pírata, Halldóra Mogensen, ræðir málin á Útvarpi Sögu.  Hún hefur skoðanir á ýmsum málum, en þegar kemur að spurningunni um hvort Ísland eigi að vera fullvalda ríki eða hvort það eigi að lúta bandalagi gömlu evrópsku nýlenduveldanna hefur hún ekki skoðun. 

Það er merkilegt að stjórnmálamaður skuli ekki geta gert upp hug sinn í slíku grundvallarmáli. 

https://www.utvarpsaga.is/piratar-stjornarskra-breytingar/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Evrópusambandsríkin eru öll sjálfstæð ríki sem hvert og eitt hefur ákveðið hvað það gerir hvað Covid-19 snertir.

Og í Evrópusambandinu taka þau ákvarðanir um eigin málefni, svo og Íslands og Noregs, sem með aðild sinni að Evrópska efnahagssvæðinu (EES) eru de facto í Evrópusambandinu en án atkvæðisréttar í sambandinu. cool

En enginn stjórnmálaflokkur sem á sæti á Alþingi, ekki einu sinni Flokkur fólksins eða Miðflokkurinn, vill segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.

Ungverjaland er í Evrópusambandinu og á landamæri að sjö ríkjum, þar af tveimur sem ekki eru í sambandinu.

Öll þessi landamæri hafa nú verið opin í töluverðan tíma og ekki kannað á landamærunum hvort ferðamennirnir hafa fengið Covid-19.

Skráð smit í Ungverjalandi voru sex í gær og þar hefur skráður fjöldi smita verið svipaður síðastliðnar vikur og hér á Klakanum, enda þótt Ungverjar séu tíu milljónir. cool

Hins vegar eru alltaf einhverjir sem hafa fengið Covid-19 án þess að vita af því, hvort sem þeir búa í Ungverjalandi eða hér á Íslandi.

Og í Búdapest gengur lífið nú sinn vanagang, krökkt af fólki, bæði heimamönnum og erlendum ferðamönnum, í verslunum, veitingahúsum, krám og almenningsgörðum.

Fólk verður hins vegar að nota grímur í verslunum og þegar það notar almenningssamgöngur.

Og Mörlendingar geta flogið héðan frá Íslandi til Búdapest með ungverska flugfélaginu Wizz Air.

Viktor Orbán,
forsætisráðherra Ungverjalands, hefur engan áhuga á að Ungverjaland segi sig úr Evrópusambandinu og vill að fleiri ríki, til að mynda Serbía, fái aðild að sambandinu.

Og útlendingar sem ekki eru í Evrópusambandinu, til að mynda Kínverjar, eiga fjöldann allan af fyrirtækjum í Ungverjalandi, banka, veitingahús og verslanir.

"
Viktor Mihály Orbán is a Hungarian politician who has been Prime Minister of Hungary since 2010; he was also Prime Minister from 1998 to 2002.

He has also been President of Fidesz, a national conservative political party, since 1993, with a brief break between 2000 and 2003."

En mörlenskir íhaldsmenn halda náttúrlega að þeir séu meiri íhaldsmenn en Viktor Orbán, sem þeir hafa þó margir hverjir mært árum saman í bak og fyrir. cool

Þorsteinn Briem, 12.7.2020 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 120
  • Sl. viku: 680
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 599
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband