Leita í fréttum mbl.is

Samansúrrað hagsmunaveldi stórauðvalds og skriffinna

Bjarni Jónsson nær, sem fyrr, góðu flugi:

"Hrakfallasaga evrusamstarfsins er dæmalaus, og meðferðin á Grikkjum fyrir tæplega áratug var forkastanleg, þar sem þeim var fórnað á altari peningaveldis í ESB.  Þýzkir og franskir bankar, lánadrottnar Grikklands, voru skornir úr snörunni og lengt í hengingaról Grikkja.  Evrópusambandið er ekki góðgerðarstofnun, sem hleypur undir bagga með aðildarríkjunum, þegar á bjátar.  Evrópusambandið er samansúrrað hagsmunaveldi evrópsks stórauðvalds og búrókrata í Brüssel, sem maka krókinn með risasporslum og skattafríðindum. "

 

https://bjarnijonsson.blog.is/blog/bjarnijonsson/entry/2253021/

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 12.7.2014:

Eignir útlendinga í íslenskum krónum eru um eitt þúsund milljarðar og ef gjaldeyrishöftin yrðu afnumin í einu vetfangi myndi gengi krónunnar hrynja enn og aftur. cool

Og skuldir ríkissjóðs Íslands eru um eitt þúsund og fimm hundruð milljarðar króna, um 90% af vergri landsframleiðslu.

22.10.2012:

Eignir útlendinga í íslenskum krónum um eitt þúsund milljarðar

30.9.2013:

Skuldir ríkissjóðs Íslands um eitt þúsund og fimm hundruð milljarðar króna

16.4.2020:

Gjald­eyris­forði Seðlabanka Íslands nú um 950 milljarðar króna

13.8.2020:

Heildarskuldir ríkissjóðs Íslands voru 1.136 milljarðar króna í lok júlí síðastliðins en 882 milljarðar í janúar síðastliðnum.

Hrein skuld ríkissjóðs var 745 milljarðar króna í lok júlí en 619 milljarðar í janúar.

Hlutfall ríkisskulda af vergri landsframleiðslu er nú tæplega 40% en var 28% í janúar.

Skuldir ríkissjóðs Íslands jukust um 250 milljarða króna á sex mánuðum

17.8.2020 (síðastliðinn mánudag):

Skuldir ríkissjóðs Íslands hafa aukist um rúman milljarð króna á degi hverjum frá því í mars síðastliðnum vegna Covid-19

Þorsteinn Briem 17.2.2015:

Hér á Íslandi hafa nú verið gjaldeyrishöft í tæp sjö ár. cool

Á Írlandi eru hins vegar engin gjaldeyrishöft, enda er evran gjaldmiðill Íra. cool

Gengi íslensku krónunnar hrundi þegar íslensku viðskiptabankarnir og Seðlabanki Íslands urðu gjaldþrota haustið 2008 og Íslendingar í námi erlendis lentu þá í gríðarlegum erfiðleikum.

Evrópusambandsríki, til að mynda Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Pólland, lánuðu þá íslenska ríkinu stórfé og björguðu því frá gjaldþroti. cool

"19. nóvember 2008:

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykkti fyrir stundu á fundi sínum beiðni Íslendinga um 2,1 milljarða Bandaríkjadollara lán.

Íslenskt efnahagslíf þarf á fimm milljörðum dollara að halda að mati ríkisstjórnarinnar.

Sú upphæð jafngildir um 700 milljörðum króna miðað við Seðlabankagengi." cool

"Fra norsk side har en lagt stor vekt på et tett nordisk samarbeid om støtte til Island. I forbindelse med IMF-styrets behandling av Islands stabiliseringsprogram 19. november 2008, gikk Norge derfor sammen med Danmark, Finland og Sverige om å love at de fire landene samlet ville gi et mellomlangsiktig lån på 2,5 mrd. USD."

Norska fjármálaráðuneytið 13. mars 2009

Ísland gæti fengið aðild að gengissamstarfi Evrópu, ERM II, þegar landið fengi aðild að Evrópusambandinu.

"The currency of Denmark, the krone (DKK), is pegged at approximately 7.46 kroner per euro through the ERM.

Although a September 2000 referendum rejected adopting the euro, the country in practice follows the policies set forth in the Economic and Monetary Union of the European Union and meets the economic convergence criteria needed to adopt the euro."

10.2.2015:

"Í Danmörku hafa lágir vextir á húsnæðislánum einnig styrkt efnahagslífið og komið því enn betur í gang.

Nú er hægt að fá lán til 30 ára með föstum 1,5% vöxtum en aldrei hefur verið boðið upp á lægri fasta vexti.

Þessi lán eru óverðtryggð." cool

19.8.2018:

"Dómsmálaráðherra birti á dögunum svar við fyrirspurn Ólafs Ísleifssonar, þingmanns Flokks fólksins [nú Miðflokksins]. cool

Þar kemur fram að á tíu árum var árangurslaust fjárnám gert 117 þúsund sinnum hjá einstaklingum.

Um þrjú þúsund voru lýstir gjaldþrota og 8.800 eignir einstaklinga voru seldar á nauðungaruppboði.

Þar bætast reyndar við um 400 fasteignir sem seldar voru á nauðungarsölu eða sölu vegna greiðsluaðlögunar skuldara, eins og kom fram í fyrra svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn Ólafs.

"Ég er nýkominn frá Færeyjum. Þar fjármagna menn íbúðarhúsnæði með föstum vöxtum, 1,7% til 20 ára," segir Ólafur Ísleifsson."

Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - og Grænlands. cool

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:12

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Total Government Gross Debt (% of GDP) in Year 2013:

Japan 245,4%,

Bandaríkin 108,1%,

Ísland 91,9%,

Evrópusambandið 89%. cool

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:17

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Evrópusambandsríkin og Bretland eru langstærsti markaðurinn fyrir íslenskar sjávarafurðir. cool

Fyrir þremur áratugum var það hins vegar stórfrétt hér á Klakanum ef verð á þorskblokk hækkaði eða lækkaði í Bandaríkjunum. cool

Fyrir Evrópusambandið og gjaldmiðil þess, evruna, skiptir einnig máli að vextir af lánum haldist innan sambandsins en Kínverjar eru stærstu lánardrottnar Bandaríkjanna. cool

Og harla einkennilegt væri ef ekki færu fram miklar umræður um fjármál og fleira á milli Evrópusambandsríkjanna.

Eru engar deilur hér á Klakanum, þar sem örfáar hræður búa, graðgandi í sig sviðakjamma, og geta ekki verið sammála um nokkurn skapaðan hlut, 364 þúsund kóvitar?! cool

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:19

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Graphic showing how much Greece owes to whom

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:21

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

21.8.2020 (í fyrradag):

"UK government debt has risen above £2 trillion for the first time amid heavy spending to support the economy amid the coronavirus pandemic. cool

Spending on measures such as the furlough scheme means the debt figure now equals the value of everything the UK produces in a year.

Total debt hit £2.004tn in July, £227.6bn more than last year, said the Office for National Statistics (ONS).

Economists warned the situation would worsen before improving.

It is the first time debt has been above 100% of gross domestic product (GDP) since the 1960-61 financial year, the ONS said." cool

Virus spending pushes UK government debt to £2 trillion - BBC

Rétt eins og fjölmörg önnur ríki gera vegna Covid-19 dælir nú bandaríska ríkið með Trump í broddi fylkingar gríðarlegum fjárhæðum út í bandaríska hagkerfið, sem bandarískir skattgreiðendur munu greiða. cool

Og Bandaríkin fá þessar trilljónir Bandaríkjadala auðvitað að láni hjá Kínverjum, sem eru stærstu lánardrottnar Bandaríkjanna, og auka þar með enn frekar skuldir bandaríska ríkisins, sem voru um 108% af vergri landsframleiðslu árið 2017, með þeim mestu í heiminum. cool

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:22

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru komnir í 18% haustið 2008 og verðbólgan hér á Íslandi var 18,6% í janúar 2009, þegar Davíð Oddsson var ennþá bankastjóri Seðlabankans. cool

Og verðbólgan hér var 84% árið 1983 þegar Ragnar Arnalds var fjármálaráðherra.

Grikkir og Írar hafa því engan áhuga á að leita í þeirra smiðju varðandi "sjálfstæði" smárra gjaldmiðla og 80% Íra eru ánægð með evruna.

Ef Írar og Grikkir vildu hins vegar segja sig úr Evrópusambandinu og hætta að nota evruna sem gjaldmiðil sinn væru þeir löngu búnir að því. cool

Þorsteinn Briem, 5.6.2015:

Hér á Íslandi hafa verið gjaldeyrishöft í tæplega sjö ár. cool

Á Írlandi eru hins vegar engin gjaldeyrishöft, enda er evran gjaldmiðill Íra. cool

Stýrivextir Seðlabanka Íslands
hafa verið mun hærri en stýrivextir Seðlabanka Evrópu sem ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu.

Stýrivextir hér á Íslandi og evrusvæðinu 2002-2007

13.1.2015:

Stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands skilar sér ekki - Leiðinlegt segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:37

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Stórríkið":

"Í reglum Evrópusambandsins er tiltekið að velta sambandsins megi ekki vera meiri en 1,27% af þjóðarframleiðslu aðildarríkjanna. cool

Evrópusambandið fer með samanlagt 2,5% af opinberu fé aðildarríkjanna og ríkin sjálf þar af leiðandi 97,5%." cool

Þorsteinn Briem, 23.8.2020 kl. 23:42

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Um 45% af útgjöldum Evrópusambandsins renna til landbúnaðar í aðildarríkjunum og 39% til uppbyggingarsjóða." cool

"Sænskir bændur um 135 milljarða íslenskra króna á ári í styrki frá Evrópusambandinu, sem er hærri upphæð en nettótekjur bændanna."

Og nú vilja íslenskir sauðfjárbændur greinilega ganga í Evrópusambandið. cool

6.8.2020:

"Afurðaverð til íslenskra sauðfjárbænda er það lægsta í Evrópu og hefur lækkað talsvert að raungildi undanfarin ár. cool

Þetta sýna gögn sem Landssamtök sauðfjárbænda tóku saman. Þau byggja á skýrslu frá Evrópusambandinu þar sem fram kemur að rúmenskir bændur fá minnst allra innan sambandsins eða um 485 íslenskar krónur á kílóið.

Verð til íslenskra bænda haustið 2019 var með viðbótargreiðslum 468 krónur fyrir kílóið.

Árið 2013 var verðið tæpar sex hundruð krónur. Landssamtökin segja líka að verð á lambakjöti til neytenda hafi ekki fylgt almennri verðlagsþróun frá árinu 2014.

Að þeirra sögn hefur verðlag hækkað um 12,7% en lambakjötið aðeins um 2,7%. Verð á sauðfjárafurðum er frjálst á öllum sölustigum.

Hluti bænda af því nemur 37% en til samanburðar fá bændur í nágrannalöndunum að jafnaði 45-50% í sinn vasa."

Íslenskir sauðfjárbændur líta til Evrópusambandsins

Þorsteinn Briem, 24.8.2020 kl. 02:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 24
  • Sl. sólarhring: 51
  • Sl. viku: 704
  • Frá upphafi: 1116916

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 621
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband