Leita í fréttum mbl.is

Eru fleiri sem skilja hlutverk Alþingismanna?

arnar-thor-mynd

Vatnaskil urðu í íslenskri stjórnmálaumræðu í tengslum við orkulagabálk Evrópusambandsins.  Yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna allra stjórnmálaflokka var andvígur því að vald í orkumálum yrði fært til útlanda. Engu að síður samþykkti Alþingi að gera það.  Aldrei komu fram haldbær rök fyrir þeirri ákvörðun.  Skýjum hærra flugu undarlegar fullyrðingar um að það væri ekki hægt að neita, því þá mundi eitthvað hræðilegt gerast.  Fólk á meginlandi Evrópu mundi hætta að borða fisk ofan af Íslandi eða að hann yrði látinn úldna í tolli, Ísland yrði rekið úr Evrópusöngvakeppninni og annað í þeim dúr.  Allt var það þvæla.

Þessi undarlega orkulagaumræða varpaði ljósi á þá kreppu sem Ísland er komið í.  Sífellt fleiri lög eru sett án raunverulegrar aðkomu lýðræðislega kjörinna manna, fulltrúa sem einhver tengsl hafa við Ísland og hægt er að kalla til ábyrgðar.  Það er stórkostlegt vandamál sem verður að taka á. 

Núna stefnir í að Sjálfstæðisflokkurinn eignist frambjóðanda sem lítur svo á að hlutverk löggjafa sé ekki bara að gæta þess að valda ekki hneykslun, heldur líka, og fyrst og fremst, að setja landsmönnum lög.

Það eru líka lýðræðissinnar í öðrum stjórnmálaflokkum, jafnvel þeim sem segjast vilja færa stjórnvaldið til útlanda.  Er ekki kominn tími til að þeir fari á fætur?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ég sem fylgdist með þessari plágu Orkupakka3# sem virkilega hrelldi okkur sjálfstæðissinna.Ég fylgdist með umræðum frá Alþingi þar sem Miðflokkurinn af öllum flokkum mótmælti kröftuglega og var sjónvarpað nokkur kvöld án þess að nokkur annar flokkur tæki til mmáls. Forseti þingsins sýndi vanþóknun sína á þessu sem hann kallaði málþóf.Dag einn  hélt fundurinn áfram langt fram eftir nóttu,þótt þingmenn bæðu forseta margoft að slíta fundinum,en hann galt þeim, eftir því sem séð verður;"rauðan belg fyrir gráan". Ætlaði að þreyta þá til uppgjafar.Þessu átaka tímabili gleyma Íslendingar ekki.  Miðflokkurinn er tryggastur flokka sjálfstæðis Íslands. Góðar fréttir eru að fleiri framboð hafa konmið fram sem hafna inngöngu í ESB.   

Helga Kristjánsdóttir, 10.5.2021 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 93
  • Sl. sólarhring: 422
  • Sl. viku: 1950
  • Frá upphafi: 1109238

Annað

  • Innlit í dag: 84
  • Innlit sl. viku: 1695
  • Gestir í dag: 83
  • IP-tölur í dag: 83

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband