Leita í fréttum mbl.is

Mikill meirihluti Þjóðverja vill ekki evruna

"Fimm árum eftir að evran tók við af þýska markinu telur meirihluti Þjóðverja að það hafi verið slæm hugmynd að skipta um gjaldmiðil. Sextíu prósent eitt þúsund aðspurðra töldu upptöku evrunnar hafa verið afturför, en 39% töldu það hafa verið framfaraskref."

Þetta er í samræmi við ítrekaðar niðurstöður skoðanakannana í Þýskalandi síðan evran var tekin í notkun sem almennur gjaldmiðill.

Og Þjóðverjar eru langt því frá einir um þessa afstöðu sína.


mbl.is Flestum Þjóðverjum þykir eftirsjá að markinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það tekur lengri tíma en fimm ár að ná fram kostinum við upptöku nýs gjaldmiðils... Það er auðvelt fyrir populista og íhaldspúka að benda á fyrirbæri eins og evruna og kenna henni um allt sem aflaga fer. Vandamál Þýskalands liggur fyrst og fremst í ósveigjanleika vinnumarkaðarins og því að stjórnmálamenn hafa ekki dug og afl til að breyta honum. Það að vera enn að tuða út af evrunni er álíka gáfulegt og tilgangslaust og rifrildin í BNA um þróunarkenninguna...

IJ (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 18:10

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Fólki var lofað öðru. Gallinn er hins vegar að ekkert bendir til þess að breyting verði á þessu í nánustu framtíð - eða jafnvel nokkurn tímann. Þvert á móti hafa ófáir málsmetandi aðilar innan alþjóðafjármálageirans lýst miklum áhyggjum sínum af framtíð evrusvæðisins og sagt hana dökka ef fari sem horfir.

En við getum alveg eins talað um evrusvæðið bara ef þér líður betur með það. Evrusvæðið er samnefnari fyrir efnahagslíf allra evrulandanna og þess fyrirkomulags sem þar er við líði, þ.e. evru fyrirkomulagsins. Hverjum sem um er að kenna um, að evrusvæðið hafi ekki verið að ganga vel til þessa, er ljóst að slæmt efnahagsástand í öðrum evruríkjum myndi hafa bein áhrif á okkar efnahagsmál hér á Íslandi ef við værum aðilar að Evrópusamabndinu og með evruna. T.d. bara í gegnum ákvarðanir um stýrivexti Seðlabanka Evrópusambandsins.

Hitt er svo annað mál að það liggur fyrir að evrusvæðið hefur haft bein áhrif á slæmt efnahagsástand margra evruríkjanna. Miðstýrðir stýrivextir evrusvæðisins hafa þýtt margfalt minni sveiganleika en áður var þar sem vextirnir henta í raun engu af aðildarríkjum svæðisins. Aðstæður eru það ólíkar innan þess, sums staðar er uppsveifla sem kallar á hærri vexti eins og á Spáni, annars staðar þarf að koma hjólum efnahagslífsins í gang með lágum vöxtum eins og í Þýzkalandi. Vaxtastig evrusvæðisins er því einhvers konar málamiðlun sem, eins og áður segir, hentar í raun engu af ríkjunum.

Hjörtur J. Guðmundsson, 5.1.2007 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 177
  • Sl. viku: 588
  • Frá upphafi: 1116781

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 509
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband