Leita í fréttum mbl.is

ESB-aðildarbrölti mótmælt á 1. maí

ESB motmaelt 1 mai

ESB-aðildarbröltinu var mótmælt í kröfugöngu og á útifundi í tilefni af hátíðisdegi verkalýðsins fyrsta maí. Þetta má meðal annars sjá hér á meðfylgjandi mynd.

Full atvinna hefur lengi verið meðal helstu krafna launþegasamtaka. Atvinnuleysi er um 12 prósent að meðaltali í ESB og heldur meira í evrulöndunum. Í fáeinum löndum er atvinnuleysið um 25 prósent og um 50 prósent meðal ungmenna.

ASÍ-forystan hér á landi virðist ekki átta sig á því að evrusamstarfið á stóran þátt í því mikla atvinnuleysi sem er víða á jaðri evrusvæðisins. 


Evru-atvinnuleysi mótmælt á 1. maí á Ítalíu

Verkamenn á Ítalíu mótmæla á hátíðisdegi verkalýðsins atvinnuleysi sem er afleiðing evrunnar. Á Ítalíu er atvinnuleysið tæplega 13 prósent. Ítalía, Spánn, Grikkland, Portúgal og fleiri ríki hafa farið halloka í samkeppni við Þýskaland og önnur ríki á kjarnasvæði evrunnar.

Fyrir vikið hafa jaðarríkin safnað skuldum vegna viðskiptahalla. Þessu hefur fylgt samdráttur í tekjum og niðurskurður í þjónustu hins opinbera sem hefur aukið enn frekar á atvinnuleysið. 

Verkalýðsforystan á Íslandi lokar augunum fyrir slæmum afleiðingum evrunnar fyrir þorra Evrópubúa.

Verkalýðsforystan á Íslandi  lifir í sínum eigin heimi.


mbl.is Atvinnuleysi mótmælt á Ítalíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. maí 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 12
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 723
  • Frá upphafi: 1118836

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 665
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband