Leita í fréttum mbl.is

Annars hafið þið verra af

Það fjarar hratt og örugglega undan EES-samningnum í Noregi.  Ekki mun útfallið minnka við nýjasta útspil Evrópusambandsins sem segir Norðmönnum að samþykkja lög sem sambandið setti um orkumál og heita Orkupakki 4.  Að öðrum kosti muni Norðmenn hafa verra af. 

Allur þorri Norðmanna lítur svo á að löggjöf sé í höndum lýðræðislega kjörinna fulltrúa í Stórþinginu í Osló, ekki í höndum embættismanna í Evrópusambandinu sem starfa eftir fyrirmælum frá Berlín og París.  

Hvað skyldi umbi Evrópusambandsins hafa sagt við íslensk stjórnvöld um þetta mál?

https://montelnews.com/news/0d1b4d1b-d099-4328-9253-a0d56a154dc8/adopt-green-directive-or-face-sanctions-eu-orders-norway

 

Og að öðru:  Arnar Þór Jónsson heldur fund á Sauðárkróki fimmtudaginn 11. apríl og á Akureyri föstudaginn 12. apríl.  Á laugardag verður hann á Dalvík og á sunnudag á Húsavík.  Það er sagt að það sjáist ekki milli veggja fyrir meitluðum setningum á þessum fundum. 

https://arnarthor.is/dagskra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta sýnir okkur bara það og segir okkur, að það þarf að fara að taka EES-samninginn upp og semja við ESB upp á nýtt á öðrum forsendum, ellegar bara segja honum hreinlega upp. Það er líka eftirtektarvert, að Jón Baldvin er farinn að stórsjá eftir því að hafa komið Íslandi inn í þetta ESS-bandalag, og segist aldrei hefðu gert það, hefði honum órað fyrir, að þau mál þróuðust eða myndu þróast á þann hátt, sem nú hefur komið í ljós. Það sýnir og sannar, að við þurfum að taka þetta mál allt saman til gagngerrar endurskoðunar og segja okkur frá þessum samningi og semja við ESB og EES á einhvern þann hátt, sem er hagstæðari okkur en raunin er nú, í stað þess að beygja okkur og bugta fyrir þessu dóti þarna suður í Brüssel, eins og mér finnst stjórnvöld gera - sér og okkur öllum að meini. Þetta getur ekki gengið svona mikið lengur.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2024 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 918
  • Frá upphafi: 1118452

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 820
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband