Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2023

Valdaránskennslubókin

Af greinargerð Arnars Þórs Jónssonar verður varla annað séð en að fyrir dyrum sé stórfellt framsal á stjórnvaldi frá íslenskum stjörnvöldum til erlendrar stofnunar sem rekin að að stórum hluta af alþjóðlegum stórfyrirtækjum. 

Þetta gæti reynst Íslendingum dýrkeypt nái það fram að ganga!

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296834/

 

 

Og við minnum á fullveldisfagnað á morgun.  Jakob Frímann mun mæla vel valin orð.  

 

Fullveldisfagnaður 1. desember 2023

 

Heimssýn fagnar afmæli fullveldis Íslands kl. 19:00 föstudaginn 1. desember næstkomandi.  Fundað verður við Álfabakka 14a í Mjódd. 

 

Jakob Frímann Magnússon, Arnar Þór Jónsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Birgir Steingrímsson og Haraldur Ólafsson flytja stutt ávörp

 

Léttar veitingar

 

Allir velkomnir

 


Hver á að ráða heilbrigðismálum? - Skýrsla að lenda

Furðu lítil umræða hefur verið um samninga og samskipti við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina (WHO) sem sækist eftir auknu valdi yfir þegnum jarðar. Þar er ýmislegt að varast og ekki er laust við að margir bíði óþreyjufullir eftir að fá að lesa það sem Arnar Þór Jónsson, fv. dómari hefur tekið saman um málið. 

Arnar Þór segir þetta m.a.í Morgunblaðinu:

 Á þessum vettvangi þurfa menn að standa vaktina og verja fullveldið, ellegar vera reiðubúnir að hafna breyttum reglum með beinni yfirlýsingu þar að lútandi. Vakandi hagsmunagæsla fellur undir starfshlutverk kjörinna fulltrúa. Fullveldisréttur þjóða er fjöregg þeirra og forsenda virks lýðræðis. Umræðu um þau mál á ekki að drepa á dreif eða reyna að jaðarsetja með órökstuddum fullyrðingum og óígrunduðum staðhæfingum. Ég skora á alþingismenn að kynna sér minnisblað sem ég hef unnið um þessi mál og sent verður þeim öllum síðar í dag. Þeirri hvatningu er sérstaklega beint til heilbrigðisráðherra og mun ég afhenda honum minnisblaðið í eigin persónu á fundi okkar í dag.

Hér verður skýrslan sem fengið hefur hið hógværa heiti "minnisblað" birt í dag, 30. nóvember 2023: 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296861/


Fullveldisfagnaður 1. desember 2023

Fullveldisfagnaður 1. desember 2023

 

Heimssýn fagnar afmæli fullveldis Íslands kl. 19:00 föstudaginn 1. desember næstkomandi.  Fundað verður við Álfabakka 14a í Mjódd. 

 

Arnar Þór Jónsson, Þorvaldur Þorvaldsson, Birgir Steingrímsson og Haraldur Ólafsson flytja stutt ávörp

 

Léttar veitingar

 

Allir velkomnir

 

 

Það vantar líka fleiri áskrifendur á Fasbókina:  https://www.facebook.com/groups/heimssyn

 


Samtalið sem lak

Það lekur meira en Landsréttur.  Þetta meinta samtal milli embættismanna á Íslandi og í Evrópusambandinu gengur manna á milli.  Það skýrir kannski hvers vegna ekkert heyrist frá útlendu sérfræðingunum sem komu til að leiðbeina við rýmingu og að spá eldgosi. 

 

E: Við fréttum að allt væri í hers höndum hjá ykkur á Íslandi

Í: Ætli þetta reddist ekki.

E: Það skiptir ekki máli.  Nú þarf að sýna samstöðuna.  Samstöðuna, maður! Má ég segja að þið hafið beðið um aðstoð og senda svo Alessandró og Eeví til þín? 

Í: Við höfum nú ágæt tök á þessu og það sér örugglega einhver í gegnum það, ef við förum að biðja ykkur um aðstoð.

E: Hvaða vitleysa, það sér aldrei neinn í gegnum neitt. Mundu svo að ef þú biður okkur að koma bjóðum við þér á næsta fund.  Og þarnæsta líka.  Og þann sem kemur á eftir, eins langt og augað eygir.

Í: Jæja þá.  Eins og ykkur sýnist.

 


Hakkavél rökfræðinnar

Þegar eitthvað hljómar undarlega er gott að beita tækjum rökfræði til að greina hljóminn.  Hjörtur J. Guðmundsson gerir það ágætlega þegar hann veltir fyrir sér fylgi flokka og meintri löngun manna til að verða þegnar í stórríki gömlu evrópsku nýlenduveldanna.

Tiltekinn flokkur hefur lítið og minnkandi fylgi.  Þá eru tveir möguleikar: 

  1. Eitthvað (annað en skortur á skilningi á gildi fullveldis) er að flokknum
  2. Íslendingar hafa þegar öllu er á botninn hvolft ekki mikinn áhuga á að gerast þegnar í stórríki gömlu nýlenduveldanna á meginlandi Evrópu.

 https://www.fullveldi.is/?p=30048

 

 


Töfraformúla og fleiri aukastafir

Magnús Tumi Guðmundsson og félagar hans hafa komist að þvi að kvikan í ganginum undir Svartsengi sé að mestu storknuð.  Ætli þeir hafi reiknað það sjálfir, eða fengið til þess aðstoð frá margrómuðum sérfræðingum sem Evrópusambandið sendi hingað norður? 

Kannski búa eldfjallafræðingar Evrópusambandsins yfir töfraformúlu til að reikna varmaleiðni.  Kannski eiga þeir nýsmurða evrópska reiknistokka og kunna betur á aukastafi en lopapeysuliðið í Háskóla Íslands.

Eða voru þeir kannski bara gerðir út til að geta sagt hinum í Evrópusambandinu að sambandið hefði komið Íslandi til bjargar á ögurstundu? 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/11/25/um_90_prosent_kvikugangsins_storknud/


Alvöru sérfræðingar

Það hlýtur að hafa verið léttir fyrir Þorvald Þórðarson prófessor í eldfjallafræði og félaga hans að fá styrka leiðsögn alvöru sérfræðinga í eldfjallafræðum frá Evrópusambandinu. Það hafa ugglaust verið sérfræðingar sem eru hoknir af reynslu og þekkingu, annað en þetta afdalalið norður á Íslandi sem hvorki hefur séð eldgos né leyst bylgjujöfnu. 

Ætli hin 700 útköll Evrópusambandsins hafi verið svipuð og þetta útkall til Íslands?  

https://www.eeas.europa.eu/delegations/iceland/eu-civil-protection-mechanism-dispatches-expert-iceland_en  

 

 

 


Nexit

Hlutverk Hollendinga í Evrópusambandinu hefur í meginatriðum verið að hlýða og borga. Smám saman komast Hollendingar að því að það sé ekki að breytast.  Á endanum verða menn leiðir á hlutverki af þessu tagi og fara. 

Það verður forvitnilegt að sjá til hvaða bragða Evrópusambandið mun grípa til að halda Hollendingum við sinn keip. 

https://nltimes.nl/2023/11/23/european-commission-concerned-nexit-pvvs-election-win


Samningur aldarinnar

Fréttir berast af samningum við Evrópusambandið.  Ísland styrkir ýmis verðug verkefni þar á bæ. Eins og menn vita fær Ísland líka í tölvupósti ótal reglur sem Evrópusambandsmenn vilja að Íslendingar fylgi.

Í staðinn fá Íslendingar að halda fund um tolla á helstu útflutningsafurð einhvern tímann seinna. 

Það er kannski í góðu lagi að það dragist að funda, ef talið er ólíklegt að viðskiptakjör Íslendinga batni svo máli skipti og verði alls ekki eins góð og kjör utansveitarmanna á borð við Kandamenn og Breta. 

Kannski er betra að huga að því að verða utansveitar.

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-11-21-fresta-liklega-vidraedum-vid-esb-um-markadsadgang-fyrir-sjavarafurdir-397844


Hver græðir á því?

Það er hart í ári hjá fjölmiðlum.  Sífellt færri vilja borga fyrir áskrift og auglýsendur eru margir horfnir í faðm samfélagsmiðla. 

Hvaðan fá fjölmiðlar þá peninga?  Arnar Þór Jósson ræðir þetta á blogginu sínu og vísar í grein sem hér fylgir.  Upplýsingarnar í töflunni sem sýnir styrki frá auðmanni til breskra fjölmiðla koma á óvart.  Hvernig ætli þessu sé háttað með stóru fréttastofurnar sem útvega þeim íslensku efni?  Hvernig er þessu háttað hjá fjölmiðlum í Evrópusambandinu? Ætli þar fléttist saman hagsmunir fjölmiðla, hergagna- og lyfjaiðnaðar sem eru mjög háðir ákvörðunum stjórnvalda og þar af leiðandi vilja kjósenda?

 

https://dailysceptic.org/2023/11/16/billionaire-funds-the-guardian-to-tune-of-116-per-reader-of-print-edition/

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2296431/


Næsta síða »

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 190
  • Sl. viku: 985
  • Frá upphafi: 1117908

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 877
  • Gestir í dag: 20
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband