Leita í fréttum mbl.is

Hollendingar neita að greiða ESB dráttarvexti

Ríki ESB eru að sligast undan greiðslum til að standa undir kostnaðinum við ESB-báknið í Brussel. Hollendingar fara nú fram á frest á greiðslu sem nemur um hundrað milljörðum króna og fjármálaráðherra þeirra segir að þeir muni sko alls ekki greiða dráttarvexti.

EUObserver greinir frá þessu.


Hollendingur með fjórðung fiskveiðikvóta Breta

RisaHollendingurMail Online heldur því fram að eitt hollenskt risaskip geti nýtt 23% af þeim fiskveiðikvóta sem Evrópusambandið úthlutar Bretum í eigin landhelgi. Nær helmingur, eða 43%, kvótans eru í höndum erlendra aðila.

Hollendingurinn nær í fiskinn við Bretlandsstrendur og landar honum að mestu í Hollandi. Samkvæmt opinberum upplýsingum í Bretlandi eru 23% af kvótanum bundinn við eitt sex þúsund tonna fiskveiðiskip frá Hollandi, Cornelis Vrolijk.

Breskir sjómenn eru skiljanlega óhressir með þetta og kalla eftir breytingum á reglum og lögum svo kvótinn fari ekki allur úr landi. Erlendir aðilar eiga 43% kvótans við Bretlandsstrendur. Það vekur einnig furðu að 32% kvótans eru bundin við fimm stór veiðiskip. 

Reglur frá 1999 gera ráð fyrir að skip í eigu útlendinga geti eignast kvóta við Bretlandsstrendur svo lengi sem helmingur áhafnar er búsettur í Bretlandi eða helmingi aflans er landað í breskum höfnum. Breskir andófsmenn gegn kerfinu segja að allur makrílafli Hollendingsins stóra, Cornelis Vrolijk, allur síldarafli og allur kolmunni fari í land í Hollandi. 

Þá kemur fram í fréttinni í Mail Online að smábátar í Bretlandi séu um 80% flotans en þeir megi aðeins veiða 4% kvótans. Þar er einnig haft eftir Kirk Stribling, sjómanni frá Aldeburgh að breska ríkisstjórnin veiti ónógum kvóta til sjómanna í Bretlandi svo stuðla megi að sjálfbærri nýtingu sjávarfangs auk uppbyggingar sjávarbyggða.


Bloggfærslur 5. nóvember 2014

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 19
  • Sl. sólarhring: 190
  • Sl. viku: 984
  • Frá upphafi: 1117907

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 876
  • Gestir í dag: 19
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband