Laugardagur, 27. desember 2014
Hver er Rauðsmýrarmaddaman í dag?
Guðbjartur Jónsson, Bjartur í Sumarhúsum, var illa leikinn af Rauðsmýrarmaddömunni og hennar slekti. Bankarnir kreistu svo úr honum það sem eftir var þegar maddaman hafði fengið sitt. Ýmsir vilja finna í þessum mikla sagnabálki Halldórs Laxness tilvísun til íslensks samfélags í dag, meðal annarra aðstandendur þeirrar leikgerðar sem frumsýnd var í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Þegar grannt er skoðað gæti Rauðsmýrarmaddaman verið fulltrúi ESB hér á landi.
Reyndar hafa ýmsir sagt að peninga- og valdaöflin í sögunni eigi sér hliðstæðu í bönkum og atvinnurekendum í dag - og jafnvel ríkisstjórninni. Þeir ESB-aðildarsinnar sem lengst hafa gengið hafa viljað meina að Bjartur í Sumarhúsum sé fulltrúi fyrir afturhalds- og einangrunarsinna sem ekki vilja vera í ESB (þessir ESB-sinnar átta sig ekki á því að andstæðingar ESB-aðildar vilja ekki loka sig af innan ESB heldur opna sig til alls heimsins - sbr. nafnið Heimssýn).
Sagan lýsir áhættu í lífi einyrkjans
Sagan er þó flóknari og á sjálfstæðari grunni en svo að hægt sé að nota hana sem mælistiku fyrir stöðu mála í dag. Hún á rætur í því samfélagi sem höfundurinn bjó í þegar skáldsagan er skrifuð. Almennt lýsir hún þó þeirri áhættu sem hver einstaklingur tekur með því að vilja standa algjörlega á eigin fótum, hvort sem það er sjálfstæður bóndi, atvinnurekandi eða bara einstaklingur sem vill koma undir sig fótunum.
Leikgerð Símons Birgissonar, Ólafs Egils Egilssonar og Atla Rafns Sigurðarsonar á Sjálfstæðu fólki sem frumsýnd var í gær er um margt áhugaverð og í heild skilar verkið vel þeim aðstæðum, söguþræði og persónusköpun sem lesa má úr bókum skáldsins. Og frammistaða leikara virtist almennt góð. Útúrdúrar í leikgerðinni með efni úr Íslandi samtímans kitluðu hláturtaugar margra í salnum.
Hvað ef ....?
Þar sem sú list er gjarnan iðkuð að staðsetja löngu gengna rithöfunda og verk þeirra í samtímanum skulum við hér ekki liggja á liði okkar í þeim efnum - þótt það sé meira í gamni gert en alvöru: Þegar íslensk þjóð vildi tryggja frelsi sitt og sjálfstæði og neitaði að taka á sig skuldir óreiðubanka, þ.e. ábyrgjast höfuðstól, vexti og kostnað af Icesave-innlánunum í gegnum ríkissjóð og þar með skattgreiðslur höfðu rauðsmýringar og túliníusar í Brussel, Lundúnum, Hag og fleiri aðsetrum ríkisstjórna í ESB-löndunum reynt að knýja íslenska stjórnmálamenn til að velta ábyrgðinni af innlánunum yfir á íslenska skattgreiðendur. Rauðsmýringar í Evrópu og aftaníossar þeirra hér á landi beittu lygum og drottnunaraðferðum líkum þeim sem Rauðsmýrarmaddaman iðkaði. Þeir sem ekki vildu samþykkja Icesave-samningana voru sagðir efnahagslegir hryðjuverkamenn, Ísland yrði einangrað efnahagslega og hér yrði kúbverskt eða norður-kórekst ástand. Íslensk aðlýða braut það rauðsmýrarlið á bak aftur, ólíkt því sem gerðist í sögu Laxness.
ESB-maddaman ....
Annars er ansi góð lýsing á Rauðsmýrarmaddömunni eftir Kristinn Andrésson sem birt var í Verkalýðsblaðinu 13. mars 1936. Hún er látin fljóta hér með og svipar þar margt til ýmissa sem haldið hafa eða hafa viljað halda í ESB-taumana:
Ein af skoplegustu persónunum í Sjálfstæðu fólki" er Rauðsmýrarmaddaman. Hún er hræsnin og fagurgalinn uppmálað. Eigingjörnustu svikráð sín klæðir hún í búning kærleika og umbyggjusemi. Henni er aldrei meiri fláttskapur í brjósti en þegar hún mælir fegurst, þegar hún lyftir sér hæst á vængjum ylríkra orða og breiðir mest út faðminn til að umvefja allt og alla, eins og í drukkinni ást á tilverunni. Þá getur hún haldið langar ræður um fegurð lífsins og kólfinn í mýrinni. Henni lætur ekkert eins vel og tala þvert um huga sér. Það er hennar list og íþrótt. Þegar fólkið hungrar í kring um hana, þá heldur hún hugnæmastar ræður um sælu fátæktarinnar.
Síðasta setninginn gæti vísað í sælu þeirra sem eru atvinnulausir í Evrópu í dag.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 27. desember 2014
Nýjustu færslur
- Þingmaður gefst upp
- Að kalla skóflu skóflu
- Ástæða til upprifjunar
- Meginforsenda brostin
- Skrýtin rök II
- Skrýtin rök I
- Norðmenn greina
- Barnaskapur
- Blóm í grjóthrúgu
- Á útlensku
- Annars hafið þið verra af
- Enn ríða hetjur um héruð
- Á hann að hafa skoðun á nokkrum sköpuðum hlut?
- Ætli hinir séu eins staðfastir?
- Meira lýðskrum
Eldri færslur
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.5.): 159
- Sl. sólarhring: 225
- Sl. viku: 1622
- Frá upphafi: 1120253
Annað
- Innlit í dag: 148
- Innlit sl. viku: 1366
- Gestir í dag: 145
- IP-tölur í dag: 144
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar