Leita í fréttum mbl.is

Lítið eftirlit með sjóðasukkinu í ESB

Flestum er kunnugt um að endurskoðendur og eftirlitsmenn hafa í áravís gert mjöl alvarlegar athugasemdir við reikninga Evrópusambandsins, reyndar svo alvarlegar að reikningarnir hafa ekki verið undirritaður. Nú neita þingmenn ESB að samþykkja reglur um skoðun á meðferð þeirra á styrkjum til þeirra sem nema um sjö milljónum króna á ári og eiga að mæta ýmsum skrifstofu- og ferðakostnaði.

Sænsku vefurinn Europaportalen greinir frá þessu og segir jafnframt að ESB-þingmenn Svía hafi allir stutt breytingar á vinnureglum sem hefðu falið í sér aukið eftirlit. Meirihlutinn á ESB-þinginu kom hins vegar í veg fyrir að reglur um rannsókn og aukið eftirlit yrðu samþykktar. Það er því ekkert vitað hvernig þessum fjármununum er varið.

Stjórnmálamenn og embættismenn í ESB hafa ekki þurft að kvarta yfir þeim launum og styrkjum sem þeir fá. Per G. Gyllenhammar, fyrrverandi forstjóri Volvo, segir í nýlegri bók að það séu aldrei bestu eða þekktustu stjórnmálamennirnir hverju sinni sem veljist til forystu og hæstu embætta í ESB. Slíkt fólk veljist til forystu í sínum heimalöndum. En þetta annars- og þriðjaflokks stjórnmála- og embættismannalið í ESB þarf þó ekki að kvarta yfir kjörunum. Launin eru á bilinu sem svarar einni og hálfri milljón króna og upp í fjórar milljónir króna á mánuði, auk kostnaðarstyrkja fyrir álíka fjárhæðir án þess að fullnægjandi eftirlit sé með notkun þeirra skattpeninga.

ESB sér vel um toppana á meðan almenningur í mörgum löndum býr við hrikalegt og langvarandi atvinnuleysi.

Hér má sjá yfirlit yfr laun embættis- og stjórnmálamanna í ESB.

Sjá einnig hér

 


Bloggfærslur 1. maí 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 110
  • Sl. sólarhring: 117
  • Sl. viku: 935
  • Frá upphafi: 1117827

Annað

  • Innlit í dag: 104
  • Innlit sl. viku: 831
  • Gestir í dag: 102
  • IP-tölur í dag: 102

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband