Leita í fréttum mbl.is

Barátta að hefjast - forvitnileg "netkönnun"

Smám saman fjölgar í hópi frambjóðenda til embættis forseta Íslands.

Af þeim fjórum sem flesta smelli fá í neðangreindum kosningaleik DV (sjá tengil hér að neðan) er einn sem gerir sér mjög skýra grein fyrir mikilvægi þess að standa vörð um fullveldið.  Það er Arnar Þór Jónsson. Þeir tveir, sem flest "atkvæði" hafa fengið, hafa barist fyrir því að fullveldinu verði fargað. Það er vægast sagt umhugsunarvert. 

Enn geta menn smellt við það nafn sem menn vilja helst sjá á dyrabjöllunni á Bessastöðum.

https://www.dv.is/eyjan/2024/3/17/thridja-forsetakonnunin-hvern-vilt-thu-sja-bessastodum/


Lítill fiskur flakaður og steiktur

Á íslenskan mælikvarða eru hvorki Danir né Írar smáþjóðir, en á mælikvarða Evrópusambandins eru þar litlir fiskar í stórri tjörn.  Stóru fiskarnir ráða í þeirri tjörn.  Þegar hagsmunir hinna stóru fara saman við hagsmuni hinna litlu fá allir brauðmola að maula.  Þegar hagsmunirnir fara ekki saman fá þeir litlu súrt epli að japla á. 

Þannig var það þegar Dönum var skipað að framfylgja refsiaðgerðum Evrópusambandsins gagnvart Færeyjum, sem þó voru enn undir danskri krúnu.  Það þótti mörgum skondin staða. Á endanum voru málin svo leyst til samræmis við hagsmuni stórríkjanna. Þá fengu Írar epli sem þeim fannst súrt.

Hjörtur rifjar þetta upp í hugvekju um goðsögnina um að það skipti sköpum að hafa sæti við misvel skilgreint borð. 

https://www.fullveldi.is/?p=11975

 


Bloggfærslur 17. mars 2024

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 102
  • Sl. sólarhring: 267
  • Sl. viku: 1067
  • Frá upphafi: 1117990

Annað

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 936
  • Gestir í dag: 79
  • IP-tölur í dag: 72

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband