Leita í fréttum mbl.is

Icesavefólkið vill inn í ESB

OskBergþorsdottir
Sömu menn og vildu að þjóðin borgaði Icesave-kröfurnar, þótt hún skuldaði þær ekki, vilja nú að Ísland sé áfram ESB-umsóknarríki. Svo segir Ósk Bergþórsdóttir húsmóðir í grein í Morgunblaðinu 10. mars síðastliðinn.
 
Ósk segir þar enn fremur:
 
Flest munum við hvernig ástandið var á Íslandi á allra síðustu árunum fyrir bankahrunið. Þá furðaði hinn dæmigerði Íslendingur sig oft á því sem fram fór í viðskiptalífinu. Bráðungir menn voru skyndilega skráðir eigendur milljarða króna hlutafjár í stórum almannahlutafélögum. Fyrirtæki helstu höfðingjanna keyptu spútnik-félög hvert af öðru, jafnvel sama félagið margoft og hækkaði það í verði í hverjum viðskiptum. Alltaf reyndist einhver banki vera nálægur til að fjármagna æfingarnar. Stærstu fyrirtækin söfnuðu óskiljanlegum skuldum og þóttu því vænlegri lántakendur sem skuldirnar margfölduðust hraðar. Margt venjulegt fólk átti bágt með að skilja þetta. En skilninginn vantaði ekki annars staðar og þar hikuðu menn ekki við að sannfæra venjulega Íslendinga um að í viðskiptalífinu væri allt gull sem glóði. Úr háskólunum kom lofsöngurinn um snillingana, fræðimennirnir klöppuðu hrifnir með, allskyns forsvarsmenn út atvinnulífinu drógu ekki af sér og heill stjórnmálaflokkur lagðist flatur. Þjóðþekktir rithöfundar og listamenn dásömuðu útrásarhöfðingjana. Allir sameinuðust svo um að níða þá fáu sem voru grunaðir um að vera ekki á bandi útrásarvíkinganna.
 
Lofsöngskórinn kom aftur

Útrásarspilaborgin hrundi. En þá mætti lofsöngskór útrásarinnar aftur, ákafur að syngja meira fyrir almenning. Nú var það Icesave. Nú vildu sérfræðingarnir að við, þessir almennu skattgreiðendur, börn okkar og ófædd börn, tækjum á okkur skuldir víkinganna. Samtök atvinnulífsins, háskólamennirnir, kratarnir, rithöfundarnir sem mærðu víkingana, allir mættu þeir aftur. ESB-sinnaðir fjölmiðar lágu ekki á liði sínu. Íslendingar yrðu að borga kröfur Breta og Hollendinga. Annars yrðu Íslendingar ekki þjóð meðal þjóða. Nú væri ekki tíminn til að vera með einangrunarhyggju, þjóðrembu og harðlínu.
 
En skynsemin sigraði

Fyrst bentu skoðanakannanir til þess að þeim tækist ætlunarverkið og þjóðin léti platast til þess að gangast undir Icesave-klafann. Ofsafengin barátta fréttastofu Ríkisútvarpsins hafði eflaust talsverð áhrif í þessa veru um tíma. En af því að fólk missti ekki móðinn þá hafði skynsemin betur á endanum. Þvert gegn vonum „aðila vinnumarkaðarins“, fræðimannanna, rithöfundanna og allra spekinganna sem alltaf voru í fréttum og viðtölum, þá lét meirihluti kjósenda ekki rugla sig til lengdar.

Enn koma þeir

Og enn eru þeir komnir. Nú er það hvorki útrásin né Icesave, heldur er það umsókn Íslands í Evrópusambandið sem alls ekki má afturkalla, þótt hvorki þing né þjóð vilji fara þangað inn. Elítuna langar inn. Þess vegna krefst hún þess að inngöngubeiðnin hennar standi óhögguð, hvað sem lýðræðislega kjörnu Alþingi finnst. Þeir óforskömmuðustu leyfa sér meira að segja að kalla það „sáttatillögu“, að inngöngubeiðnin fái að standa í mörg ár enn, í óþökk Alþingis. Menn sem aldrei sáu neitt að því hvernig Jóhanna og Steingrímur reyndu ítrekað að koma Icesave á herðar komandi kynslóða, eða hvernig þau réðust gegn stjórnarskránni eða hundeltu pólitíska andstæðinga, standa núna þrútnir af réttlætiskennd yfir því að lýðræðislega kjörnir alþingismenn ætli að voga sér að draga umsókn Íslands í ESB til baka. Oft á dag segja þeir þjóðinni, sem ekki vill að Ísland gangi í ESB, að Ísland eigi samt að vera umsóknarríki í ESB. Staðreyndin er hins vegar auðvitað sú að þegar umsóknin er ekki afturkölluð líta allir svo á að Ísland hafi ákveðið að ganga í ESB. Það er dæmigert að þeir, sem telja þetta sjálfsagt mál, séu einmitt þeir sömu og aldrei sáu neitt að því að íslenska þjóðin, venjulegt fólk, tæki að ósekju á sig Icesave-skuldirnar. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 149
  • Sl. sólarhring: 186
  • Sl. viku: 1063
  • Frá upphafi: 1118780

Annað

  • Innlit í dag: 135
  • Innlit sl. viku: 956
  • Gestir í dag: 133
  • IP-tölur í dag: 133

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband