Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júní 2023

Stríđ eru ekki ókeypis

Ekki fer framhjá neinum ađ Evrópusambandiđ tekur ţátt í styrjöldinni í Úkraínu.  Sumir mundu eflaust bćta viđ "meira af vilja en mćtti" međ tilvísun í ákafa Breta og Bandaríkjamanna í ţessu máli.  

Evrópusambandiđ leggur áherslu á ađ ađildarríkin eyđi sem nemur 2% af landsframleiđslu til ţess sem kalla má hermál.  Ţađ yrđu um 70 milljarđar íslenskra króna, ef Íslendingar hygđust stökkva á ţann vagn.  Peningarnir fćru vitaskuld til evrópskra hergagnaframleiđenda.  Ţeir yrđu svo ekki í vandrćđum međ ađ koma framleiđslunni í lóg, međ traustri ađstođ ţeirra sem ráđa í Evrópusambandinu. 

Ţađ er óneitanlega sérstök framtíđarsýn, ađ útlendir sprengjuframleiđendur fengju tvö hundruđ milljónir á dag í póstinum frá sameiginlegum sjóđi Íslendinga. 

https://unherd.com/2023/05/the-rise-of-europes-military-austerity/

 


Ráđagerđ um ólögmćtt framsal stöđvuđ

Ţingmáli um bókun 35 var frestađ.  Kannski til haustsins, kannski til eilífđar.  Annađ hefđi veriđ mjög undarlegt, sbr ţessi orđ Arnars Ţórs sem vert er staldra viđ:

Frumvarp utanríkisráđherra gengur gegn stjórnarskrá og felur í sér ráđagerđ um ólögmćtt framsal á íslensku ríkisvaldi.

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2291142/


Hvert fer valdiđ?

Í umrćđu um EES og Evrópusambandiđ leggja sumir áherslu á mikilvćgi ţess ađ koma valdi úr höndum innlendra ađila.  Ţví fylgja rök sem erfitt er ađ henda reiđur á, hvađ ţá endurtaka.  En hvert mundi valdiđ ţá fara?  Arnar Ţór Jónsson svarar ţvi skilmerkilega:

 

Íslendingar verđa ađ átta sig á ţví ađ ţegar valdiđ hverfur úr höndum kjósenda og kjörinna fulltrúa ţeirra, ţá hverfur ţađ ekki út í tómiđ, heldur fćrist í hendur valdahópa sem ţjóna eigin hagsmunum. Í ţessum hópum situr fólk sem ađhyllist einhvers konar elítisma. Ţar koma saman fulltrúar stórfyrirtćkja og pólitískra valda, sérfrćđingar og fjármálamenn, frćđimenn og fjölmiđlamenn. Ţeir einu sem eiga sér ekki raunverulega fulltrúa á ţessum fundum eru ég og ţú, kćri lesandi. Okkar hlutverk í ţessum nýja heimi er tvíţćtt, ţ.e. ađ borga og hlýđa. 

 

Ţetta svar er óţarfi ađ ţynna út međ masi. 

 

https://arnarthorjonsson.blog.is/blog/arnarthorjonsson/entry/2291108/

 

 


Foringjarnir ákveđa hvađ má lesa

Sitt sýnist hverjum um einstaka ţćtti ófriđarins í Úkraínu, sem og stríđiđ allt.  Eitt og annađ gerist og upp hefst umrćđa um hver beri ábyrgđ á ógćfuverkum.  Ţeir sem vilja fylgjast međ skođa upplýsingar frá helstu ađilum máls og eru vonandi einhverju nćr.  Ţađ á ţó ekki viđ um alla, ţví í sumum löndum ákveđa stjórnvöld hvađ íbúarnir mega lesa.  Svoleiđis ţótti ekki til fyrirmyndar á sínum tíma, en nú blása vindar úr annarri átt.  Ađ minnsta kosti í Evrópusambandinu ţar sem enn er lokađ fyrir fjölmiđla sem stjórnvöldum leiđist, án teljandi athugasemda frá ţegnum sambandsins og međ velţóknun vina ţess á Íslandi.

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur:


Markađur uppspretta óstöđugleika

Morten Harper heitir mađur sem skođađ hefur raforkumarkađinn í Noregi međ tilliti til tengingar viđ önnur Evrópulönd.  Hann skrifar um ýmis atriđi í ţví sambandi og er greinin hér:

 

https://neitileu.no/aktuelt/energipolitiske-handlingsmuligheter

 

Sitthvađ er ţarna athyglisvert, ekki síst ađ Evróputengingin veldur óstöđugleika á raforkumarkađi í Noregi.  Óstöđugleiki er eitur í beinum atvinnurekstrar sem reiđir sig á traustan ađgang ađ orku á verđi sem ekki hoppar og skoppar stjórnlaust.  


Ađ búa til peninga úr lofti

Í Skýrslu starfshóps um EES-samstarfiđ sem út kom áriđ 2019 og fjallađ er um hér á blogginu er fariđ fögrum orđum um stuđning EES viđ rannsóknir.  Ţar segir m.a.:  

Annar viđmćlandi sem sinnt hefur vísindarannsóknum og nýsköpun sagđi ađ međ EES-samningnum hefđu opnast gáttir í styrktarsjóđi Evrópusambandsins sem leiddi til mikilla framfara í rannsóknum og uppbyggingu nýs atvinnulífs á Íslandi.

Ţađ virđist gleymast ađ sjóđir Evrópusambandsins sćkja auđ sinn í vasa ţeirra sem greiđa skatt í ađildarlöndum sambandsins.  Engar vísbendingar hafa komiđ fram um ađ sú milliganga sem Evrópusambandiđ hefur viđ tilfćrslu ţess fjár sem variđ er til rannsókna leiđi til aukinnar framlegđar eđa skapi fé úr engu.  Ţvert á móti eru vísbendingar um ađ fjármunirnir rýrni heldur viđ ađ hafa viđkomu á reikningum Evrópusambandsins, ţví ekki rekur ţađ sig á loftinu einu saman. 

 

 Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur:

 

 

 


Helstu hlunnindi: Ađ sleppa viđ lćknisskođun

Sú saga er lífseig ađ EES hafi lyft grettistaki fyrir íslenska námsmenn erlendis.  Sannleikurinn er sá ađ EES skipti ţá litlu sem engu máli.  Á tímabili fékkst afsláttur á skólagjöldum í Bretlandi, en sá tími er löngu liđinn. 

Fyrir nokkrum árum var skrifuđ löng skýrsla um ágćti EES, "Skýrsla starfshóps um EES-samstarfiđ"  Niđurstađa skýrslunnar var ađ EES vćri dćmalaust gott í alla stađi. Um kjör og ađbúnađ íslenskra námsmanna segir ţar m.a. 

Einn viđmćlandi skýrsluhöfunda sagđist hafa fariđ til náms viđ ţýskan háskóla áriđ 1983. Ţá hefđi veriđ komiđ fram viđ íslenska námsmenn eins og íbúa annarra heimsálfa. Krafist var lćknisskođunar, teknar voru röntgenmyndir og ţvag- og saur[1]sýni. Leggja varđ fram ótal vottorđ vegna búsetu og skráningar til heimilis í ţýskri borg. Ţýskunám og sérstakt próf var sett sem skilyrđi innritunar í háskóla.

 Ţessi lćknisskođun sem "íbúar annarra heimsálfa" ţurftu ađ gangast undir, og EES á ađ hafa bjargađ ţegnum sínum frá, hefur vistast misvel í minni stúdentanna, ţví sumir ţeirra muna alls ekki eftir slíku og ţví síđur hefur ţađ valdiđ ţeim langvarandi angist ađ hafa stađiđ í röđ međ fólki sem var öđruvísi í útliti en ţeir sjálfir.  Menn muna hins vegar eftir ţýskuprófinu, en ekki eftir ţví ađ Frakkarnir hafi veriđ undanţegnir.  Sé ţađ hins vegar satt ađ EES hafi bjargađ Íslendingum sem hugđust lćra í ţýskum háskóla frá ţví ađ sýna ađ ţeir kynnu eitthvađ í ţýsku, ţá er auđvitađ rétt ađ halda ţví til haga.    

 

Heimssýn er líka á Fasbók - gerist áskrifendur:
 

 


EES hindrar frjálsa verslun

Hjörtur fer yfir nokkur atriđi varđandi EES-samninginn og hvernig hann heftir verslun viđ ađra heimshluta, sem reyndar eru vel yfir 90% heimsins.   

Hjörtur dregur ályktun:

Hins vegar er leiđ út úr ţessum ađstćđum, víđtćkur fríverzlunarsamningur viđ Evrópusambandiđ. Leiđ sem ríki heimsins fara allajafna ţegar samiđ er um milliríkjaviđskipti og felur, ólíkt EES-samningnum, ekki í sér vaxandi framsal valds yfir eigin málum og hindranir í viđskiptum viđ ađra heimshluta.

 

Sé vilji til ađ semja um frjálsa búsetu og atvinnu manna, ćtti slíkt varla ađ vera vandamál í ljósi ţess ađ ţegnar Evrópusambandsins á Íslandi eru 5-10 sinnum fleiri en Íslendingar í Evrópusambandinu, sunnan Danmerkur. 

https://www.visir.is/g/20232424298d/vissu-lega-litid-vit-i-slikum-samningi


Andvaraleysi

Ţađ vakti eftirtekt a sínum tíma ađ Evrópusambandiđ taldi lýđheilsu á Íslandi léttvćga ţegar kom ađ ţví ađ knýja fram innflutning á ófrosnu kjöti.  Viđskiptahagsmunir höfđu forgang fram yfir lýđheilsu.  Ţessir heilsuhagsmunir eru raunverulegir, ţeir eru ekki yfirvarp hagsmunaađila í kjötframleiđslu. 

Ástćđa er til ađ vekja athygli á skrifum Vilhjálms Ara.  Hann fjallar um skefjalausan innflutning á kjöti og segir m.a.:

Sýklarnir geta síđan leynst í görninni okkar mánuđum og árum saman. Viđ erum ekki ađ tala um neinar matareitrunarbakteríur. Ţegar illa stendur á hins vegar valdiđ sýkingum sem mjög erfitt getur veriđ ađ međhöndla tímalega og jafnvel sem engin tiltćk sýklalyf vinna á.

 

https://blog.dv.is/vilhjalmurari/2023/03/11/thu-uppsker-eins-og-thu-sair/


« Fyrri síđa

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri fćrslur

Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 220
  • Sl. sólarhring: 274
  • Sl. viku: 1683
  • Frá upphafi: 1120314

Annađ

  • Innlit í dag: 209
  • Innlit sl. viku: 1427
  • Gestir í dag: 205
  • IP-tölur í dag: 202

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband