Leita í fréttum mbl.is

Eru menn eitthvað að hangsa?

jon_bjarnason_1198010Nú fer að líða sá frestur sem ríkisstjórnin hefur til að leggja fyrir yfirstandandi Alþingi tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn um inngöngu í ESB. Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar, bendir í bloggi sínu á að 26. mars er síðasti dagurinn til að leggja mál fyrir þingið sem eiga að afgreiðast á þessu voru.

Formenn beggja ríkisstjórnarflokkanna hafa lýst því yfir að tillaga komi fyrir þingið um formlega afturköllun umsóknarinnar um inngöngu í Evrópusambandið, segir Jón. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru með skýrar landsfundarsamþykktir að baki sér um afturköllun umsóknarinnar.

Þá segir Jón:

Ísland er formlegt umsóknarríki meðan umsóknin stendur inni og alþingi hefur ekki afturkallað hana. Hún stendur sem stefna þings og ríkisstjórnar á opinberum vettvangi þangað til að hún hefur verið afturkölluð af þeim sömu stjórnsýsluaðilum og samþykktu að senda hana inn.

26. mars nálgast. Fyrir þann tíma hafa bæði formenn ríkisstjórnarflokkanna og utanríkisráðherra lofað að tillagan um afturköllun komi fyrir þingið.

Brostinn er verulegur flótti í lið hörðustu ESB sinnanna. Fyrir stjórnarflokkana er að fylgja eftir samþykktum sínum.

 


Bloggfærslur 10. mars 2015

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 103
  • Sl. sólarhring: 111
  • Sl. viku: 928
  • Frá upphafi: 1117820

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 824
  • Gestir í dag: 96
  • IP-tölur í dag: 96

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband