Leita í fréttum mbl.is

Eru menn eitthvað að hangsa?

jon_bjarnason_1198010Nú fer að líða sá frestur sem ríkisstjórnin hefur til að leggja fyrir yfirstandandi Alþingi tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn um inngöngu í ESB. Jón Bjarnason, formaður Heimssýnar, bendir í bloggi sínu á að 26. mars er síðasti dagurinn til að leggja mál fyrir þingið sem eiga að afgreiðast á þessu voru.

Formenn beggja ríkisstjórnarflokkanna hafa lýst því yfir að tillaga komi fyrir þingið um formlega afturköllun umsóknarinnar um inngöngu í Evrópusambandið, segir Jón. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur eru með skýrar landsfundarsamþykktir að baki sér um afturköllun umsóknarinnar.

Þá segir Jón:

Ísland er formlegt umsóknarríki meðan umsóknin stendur inni og alþingi hefur ekki afturkallað hana. Hún stendur sem stefna þings og ríkisstjórnar á opinberum vettvangi þangað til að hún hefur verið afturkölluð af þeim sömu stjórnsýsluaðilum og samþykktu að senda hana inn.

26. mars nálgast. Fyrir þann tíma hafa bæði formenn ríkisstjórnarflokkanna og utanríkisráðherra lofað að tillagan um afturköllun komi fyrir þingið.

Brostinn er verulegur flótti í lið hörðustu ESB sinnanna. Fyrir stjórnarflokkana er að fylgja eftir samþykktum sínum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sá sem mælir fyrir slíku frumvarpi getur kvatt sína nánustu, áður en frumvarpið verður flutt.

ESB-bankamafían sem stjórnar Íslandi er nefnilega alls ekki friðarbandalag.

Það verður fróðlegt að sjá, hvern á að þvinga til að tala fyrir þessu frumvarpi.

Og leigumorðingjar ESB-mafíunnar sjá um aftökuafganginn. Líklega veit Jón Bjarnason þetta vel, en hann er á sama flótta frá mafíunni, eins og allir aðrir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 10.3.2015 kl. 21:27

2 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta er fróðlegt hvað hefir ESB mafían á okkur.Það er það versta sem við gátum gera að vera að sleikja þessa mafíu.

Valdimar Samúelsson, 11.3.2015 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 124
  • Sl. sólarhring: 257
  • Sl. viku: 1089
  • Frá upphafi: 1118012

Annað

  • Innlit í dag: 100
  • Innlit sl. viku: 957
  • Gestir í dag: 99
  • IP-tölur í dag: 92

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband