Leita í fréttum mbl.is

Íslendingar yrðu bundnir af sjávarútvegsstefnu ESB við aðild

Stefán Már Stefánsson, prófessor í Evrópurétti við Háskóla Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að ef Ísland gengi í Evrópusambandið yrði það bundið af lagareglum þess hvað varðar stjórnun fiskveiða nema um yrði að ræða beinar undanþágur sem Ísland fengi í aðildarsamningum. Þá kynni einnig í aðildarviðræðum að koma fram kröfur um skaðabætur vegna tapaðra veiða frá þeim ríkjum sem stunduðu veiðar innan íslensku lögsögunnar fyrir útfærslu hennar á sínum tíma.

Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins fyrir skömmu að ráðgjafi sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins segði að reglan um hlutfallslegan stöðugleika ætti að tryggja að Íslendingar myndu sjálfir ákveða hverjir veiddu í lögsögunni ef Ísland gengi í Evrópusambandið. "Ef við göngum inn í Evrópusambandið og ef við fáum ekki beinar undanþágur í aðildarsamningum erum við bundin af lagareglum þess og getum engu breytt um það."

Stefán Már sagði að það væri út af fyrir sig rétt að það væru teknar meirihlutaákvarðanir í ráðherraráðinu um hvað mætti veiða mikið og því væri síðan úthlutað til aðildarríkjanna. Það væri gert á grundvelli reglunnar um hlutfallslegar stöðugar veiðar. Hins vegar hefði ekki komið fram hjá aðstoðarmanninum að reglan um hlutfallslegar stöðugar veiðar væri mjög laus í reipunum og að stofnanir bandslagsins hefðu mjög víðtækt mat um það hvað teldist hlutfallslegar stöðugar veiðar og gætu hvernær sem er breytt því með lögjöf. Auk þess hefði framkvæmdastjórnin gefið til kynna í svonefndri Grænbók um fiskveiðar frá árinu 2001 að tekið yrði hugsanlega upp allt annað kerfi í framtíðinni.

"Aðalatriðið er að ef við göngum inn í Evrópusambandið og fáum ekki beinar undanþágur í aðildarsamningum þá erum við bundnir af þessu regluverki, sem er háð meirihlutaákvörðunum," sagði Stefán Már. Hann sagði aðspurður að reglan um hlutfallslegar stöðugar veiðar kæmi fram í reglugerð frá árinu 2003 og hefði verið með einum eða öðrum hætti í eldri reglugerðum. Reglugerðum mætti hins vegar breyta með meirihlutaákvörðunum og því ekki á vísan að róa í þeim efnum. Við yrðum að hlíta slíkum ákvörðunum nema við fengjum beinar undanþágur í aðildarviðræðum.

Stefán Már sagði að einnig væri vert að hafa í huga að ef til aðildarviðræðna kæmi gætu komið fram kröfur um fiskveiðikvóta frá öðrum þjóðum, þar á meðal þeim þjóðum sem töpuðu rétti til fiskveiða á sínum tíma þegar fiskveiðilögsagan var færð út í þorskastríðunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

  Í dag er íslenzkur sjávarútvegur utan EES saminingsins. Ef Ísland 
gerðist aðili að Evrópusambandinu (ESB) gerðist það aðili  að
sameiginlegri sjávarútvegfsstefnu sambandsins.  En auk þess sem er
stórmál. Við inngöngu Íslands í ESB fengu ALLIR þegnar þess SÖMU
réttindi og við Íslendingar að eignast hlutafréf í íslenzkum útgerðarfélögum. Það þyddi t.d að spönsk útgerð gæti eignast meirihluta í einhverri íslenskri togaraútgerð. Kæmist þannig yfir
hennar aflaheimildir, kvótann. Og þar sem vinnuaflið er mun ódýrara
á Spáni en Íslandi léti útgerðin togarana sigla með aflan beint til
Spánar án viðkomu í íslenzkri höfn. Virðisaukinn færi sem sagt úr
landi.  Þannig gætu útlendingar keypt sig inn í íslenzka fiskveiði-
lögsögu og eignast fiskveðiréttindin á einum fengsælustu fiskimiðum
heims.

  Evrópusambadsinnar hafa ALDREI geta svarað því hvernig þeir
hyggjast koma í veg fyrir slíkt kvotahopp. Slíkt kvotahopp hefur
t.d lagt breska útgerð í rúst.  Meðan þetta er fyrir hendi, er tómt
mál að tala um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

  Þar sem sjávarútvegurinn er undanþegin EES-samningnum getum
við í dag tryggt íslenzkt eignarhald á kvótanum, því útlendingum er
bannað að eignast meirihluta í íslenkri útgerð.  

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.2.2007 kl. 13:48

2 identicon

Ég kem nú ekki auga á muninn á því hvort kvótagreifinn heiti Ingjaldur og búi í Arnarnesinu, eða Günther og búi í Düsseldorf. Þessi auðlind er þegar komin úr höndum þjóðarinnar. 

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 16.2.2007 kl. 14:29

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Þetta erv nú fráleit athugasemd hjá þér nafni . Á þessu er einmitt grundvallarmunur. Virðisaukinn hjá Ingjaldi skilar sig 100% í  íslenzka þjóðarbúið en í hinu tilfellinu flýst hann úr landi.

  Veit að þið Evrópusinnar getið ekki svarað þessu, ekki nema þá með
útúrsnúnungum. En á meðan eru rök ykkar fyrir ESB-aðild léttvæg,
svo ekki sé  meira sagt.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 16.2.2007 kl. 14:42

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Guðmundur: Þetta er bara uppgjafartónn. Ef þú ert ósáttir við stjórn fiskveiða við Íslands og vilt fá henni breytt á einn eða annan hátt þá eru margfalt meiri líkur á að það verði hægt við núverandi aðstæður en ef við værum aðilar að Evrópusambandinu. Bretar, sú stórþjóð, hafa reynt allar götur frá því þeir gengu í sambandið í byrjun 8. áratugarins að breyta því hvernig stjórn fiskveiða innan þess er háttað en án alls árangurs.

Hjörtur J. Guðmundsson, 16.2.2007 kl. 15:10

5 identicon

Sæll, Hjörtur !

Þökkum Guðmundi Jónasi skörungsskap og einurð, í málafylgju þessarri. Ég er oft ósammála Guðmundi, í þjóðmálunum, en þarna sannar hann, enn og aftur; að hann er góður Íslendingur, af gamla skólanum.

Með beztu kveðjum /

Óskar Helgi Helgason  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 19.2.2007 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 830
  • Frá upphafi: 1117722

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 732
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband