Leita í fréttum mbl.is

Ætli Baldur viti það?

Smám saman skýrast línur í framboði til embættis forseta Íslands.  Að öðrum frambjóðendum ólöstuðum virðast þrír hafa mest fylgi, Arnar Þór, Baldur og Halla.  Arnar Þór er einarður lyðræðis- og fullveldissinni, en Baldur og Halla hafa mikinn skilning á því að það sé best að afhenda stjórnvaldið til vanda- og umboðslausra í Evrópusambandinu. 

Viðbúið er að frambjóðendur sem stundum eru kallaðir Evrópusinnar muni reyna að þvo af sér þann stimpil eða gera lítið úr fyrri baráttu fyrir innlimun Íslands í stórríki gömlu nýlenduveldanna.  Í svoleiðis hreingerningu gerist oft eitthvað spaugilegt.  Það hefur nú þegar gerst að Baldur hefur talað um að vísa skerðingu á tjáningarfrelsi til þjóðaratkvæðis, fái hann að verða forseti.  Nú vill svo til að Evrópusambandið vinnur einmitt að því hörðum höndum að þagga niður í þeim sem því finnst leiðinlegir.  Fjölmiðlar sem evrópskum yfirvöldum finnst vondir eru bannaðir og ný evrópsk löggjöf um eftirlit með dreifingu á vondu efni tók gildi í fyrra.  Það er með öðrum orðum hrópandi mótsögn í því að vilja vernda fjölmiðla- og tjáningarfrelsi og að ganga í Evrópusambandið.

Þjóðaratkvæði um tjáningarfrelsi í landi þar sem Evrópulög gilda skiptir engu máli.  Það sem skiptir máli er að sjá til þess að Evrópulögin gildi ekki, heldur lög sem íbúarnir sjálfir setja sér.  Það heitir lýðræði.   

Menn geta svo velt því fyrir sér hvort sé verra, að Baldur viti þetta og láti eins og hann viti það ekki eða viti það bara ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 23
  • Sl. sólarhring: 192
  • Sl. viku: 988
  • Frá upphafi: 1117911

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 880
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband