Leita í fréttum mbl.is

ESB-andstaðan á Íslandi verður frétt í Kína

Einn útbreiddasti fjölmiðill í heimi, China Daily, segir frá vaxandi andstöðu almennings á Íslandi við inngöngu í Evrópusambandið.

Össur Skarphéðinsson utaríkisráðherra er að semja við Kína um fríverslun. Undirbúningur að samningnum hófst árið 2006 en heldur dró úr samningafundum eftir að Ísland, þ.e. Össur, sótti um aðild að Evrópusambandinu sumarið 2009.

En núna er skriður kominn á samningana og Össur segir að fríverslunarsamningur við Kína verði tilbúinn á næsta ári.

Talsmaður Evrópusambandsins segir að aðildarríki ESB geti ekki ein og sér haft fríverslunarsamning við önnur ríki. Í frétt Mbl.is segir

„Evrópusambandið hefur með viðskiptatengsl að gera [fyrir ríki sambandsins], þar með talið gerð fríverslunarsamninga, við önnur ríki. Almennt séð, sem aðildarríki Evrópusambandsins, yrði Ísland að segja upp öllum fríverslunarsamningum sínum og fríverslunarsamningar Íslands innihalda ákvæði um uppsögn,“ sagði Ulrike Pisiotis hjá skrifstofu stækkunarmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í svari við fyrirspurn frá mbl.is

Það er sem sagt ekki hægt að vera aðildarríki ESB og hafa sjálfstæðan fríverslunarsamning við önnur ríki. En Össur ætlar að gera hvorttveggja. 

Kannski að fréttir um vaxandi andstöðu við ESB-umsóknina geri Kínverja rólegri. Þeim finnst líklega ekkert gaman af því að vera hafðir að fíflum af síkátum utanríkisráðherra smáríkis.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Heimssýn

Heimssýn

hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.

 

Sími 895 5334 (Haraldur Ólafsson, formaður)


Nánar um Heimssýn

Vertu með!

Frjáls framlög

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 830
  • Frá upphafi: 1117722

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 732
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband